Mwesigwa frá í tæpan mánuð

Úgandamaðurinn Andrew Mwesigwa mun ekki spila með ÍBV næsta mánuðinn eða svo þar sem hann er að fara að leika í undankeppni HM 2010 með landsliði sínu. Úganda tekur á móti Níger í dag og síðan er leikið á viku fresti í undankeppninni á næstunni. Um næstu helgi leikur Úganda gegn Benín, 14. júní fær […]
Bryggjufjör í dag

Hátíðarhöldin yfir sjómannadagshelgina halda áfram en klukkan 13.00 í dag verður Sjómannafjör í Friðarhöfn. Klukkutíma síðar hefst skákmót í Friðarhöfn þar sem landkrabbar mæta sjómönnum. Veðrið í Vestmannaeyjum er mjög gott, sól og blíða og því ætti enginn að láta sig vanta við bryggjukantinn á eftir. (meira…)
Selfoss með sigur
Selfoss sigraði Þór 5-2 í fyrstu deild karla í kvöld á Selfossi. Fyrr í kvöld unnu Eyjamenn lið Víkings frá Ólafsvík á útivelli. Selfoss 5 – 2 Þór 1-0 Arilíus Marteinsson 1-1 Hreinn Hringsson 2-1 Sævar Þór Gíslason 2-2 Matthías Örn Friðriksson 3-2 Henning Jónasson 4-2 Viðar Örn Kjartansson 5-2 Henning Jónasson (meira…)
Karlaliðið sigraði Víking á �?lafsvík 0:2

Karlalið ÍBV vann enn á ný með sömu markatölunni þegar strákarnir lögðu Víking frá Ólafsvík af velli, 0:2 en leikurinn fór fram fyrir vestan. Þetta var fjórði sigurleikur ÍBV í röð í 1. deildinni og allir hafa þeir endað með sömu markatölunni. Kvennalið ÍBV féll hins vegar úr bikarkeppninni í kvöld þegar stelpurnar tóku á […]
Draga lærdóm af skjálftunum árið 2000
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir að aðgerðir viðbragðsaðila í tengslum við jarðskjálftana í gær hafi heppnast mjög vel. Hann segir að fullt traust hafi ríkt á milli allra aðila sem komu að björgunarstarfi. Á innan við klukkustund hafi verið byrjað að koma fólki til hjálpar. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem Björn hélt ásamt fulltrúum ríkislögreglustjóra […]
Misstu húsið í skjálftanum
Hjónin Emil Ragnarsson og Ingibjörg Guðmundsdóttir eru niðurbrotin eftir jarðskjálftann á Suðurlandi í gær. Aðilar frá almannavörnum litu við hjá hjónunum í morgun þar sem húsið þeirra var metið óíbúðarhæft. Í veggjum hússins má hvernig skjálftinn hefur skilið eftir sig risasprungur. Hjónin hafa búið á Eyrarbakka í fimmtán ár og er heimilið líkt og sprengjusvæði. […]
Ráðherrar á fundi með heimamönnum
Þau Geir H. Haarde, forsætisráðherra, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, eru á Selfossi og eiga þar nú fund með fulltrúum björgunarsveita, almannavarnanefnda og sveitarfélaga á skjálftasvæðinu. (meira…)
Fagna því að ríkisstjórnin ætli að hefja ferjusiglingar 2010

Bæjarráð Vestmannaeyja fagnar yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þess efnis staðið verði við þau loforð að ný og öflug farþega- og bílaferja hefji siglingar milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar 1. júlí 2010. Samgöngur við Vestmannaeyjar byggjast að langmestu leyti á samgöngum á sjó og því afar mikilvægt að vel takist til við þessa mikilvægu framkvæmd. Þá lýsir bæjarrá ánægju […]
Nýr Herjólfur smíðaður í eiginframkvæmd ríkisins á næstu tveimur árum

Samgönguráðuneytið hefur sent frá sér frétt vegna ákvörðunar ríkisstjórnarinnar, sem hefur að tillögu samgönguráðherra ákveðið að falla frá hugmyndum um smíði Vestmannaeyjaferju í einkaframkvæmd. Í stað þess verði smíði ferju boðin út með hefðbundnum hætti og í framhaldi af því verði rekstur hennar boðinn út sérstaklega. (meira…)
Ríkisstjórnin hafnar tilboði Eyjamanna

Á fundi ríkisstjórnarinnar, sem lauk rétt í þessu, var samþykkt að hafna tilboði Eyjamanna í smíði á nýrri ferju sem ætlað er að sigli í Landeyjahöfn. Um leið var ákveðið að fara í ríkisframkvæmd og verður smíðin boðin út. (meira…)
Metið hvort fólki sé óhætt að vera í húsum sínum
Almannavarnanefnd Árborgar og nágrennis kom saman til fundar kl. 8:00 í morgun og tók eftirfarandi ákvörðun: Íbúum á jarðskjálftasvæðum er bent á að snúa sér til tryggingarfélaga sinna varðandi tjón á fasteignum og innbúi. (meira…)
Opið mót en sjómenn sérstaklega boðnir velkomnir

Hið árlega Net/Hampiðjumót verður haldið á morgun, laugardag. Leiknar verða 18 holur með og án forgjafar en mótið hefst klukkan 10.30. Leikur hefst á öllum holum og verða glæsileg verðlaun í boði. Golfklúbbur Vestmannaeyja hvetur sjómenn sérstaklega til að spreyta sig í mótinu. (meira…)
Vínbúðir á Selfossi og Hveragerði lokaðar í dag
Lokað verður í dag í Vínbúðunum á Selfossi og í Hveragerði vegna rasks sem varð af völdum jarðskjálftans í gær. Báðar búðirnar eru illa farnar og mikið brotið. (meira…)
Jói danski heldur upp á 80 ára afmælið í dag

Kæru vinir!Í tilefni af 80 ára afmælisdegi mínum þá langar mig að bjóða ykkur að þiggja kaffi í sal Eyjabústaða föstudaginn 30 maíFrá kl 16.00 – 19.00 Gaman væri að sjá sem flesta. Jói Danski. (meira…)
Engin niðurstaða í dag?

Samkvæmt nokkuð öruggum heimildum Eyjafrétta mun ekki verða tekin ákvörðun varðandi tilboð Vinnslustöðvar og Vestmannaeyjabæjar í rekstur og smíði Bakkafjöruferju á fundi ríkisstjórnarinnar sem nú er að hefjast. Ríkiskaup hafa enn á ný beðið um frest til að svara tilboði heimamanna og hefur hið opinbera nú frest til klukkan 16 föstudaginn 6. júní. (meira…)
Sjómannadagsblað Vestmannaeyja kemur út í dag

Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2008, 58 árgangur, kemur út í dag, fimmtudaginn 29. maí. Blaðið er eins og síðustu ár undir dyggri ritsjótn Friðriks Ásmundssonar frá Löndum. (meira…)
Eins og að vera fleka úti á sjó

Öflugur jarðskjálfti sem varð klukkan 15.45 og var samkvæmt síðustu upplýsingum 6,7 á Ricther og átti upptök sín suðvestur af Selfossi fannst vel í Vestmannaeyjum. (meira…)
Tímasetningar endurstilltar

Síðustu daga hefur verið unnið við að breyta tímasetninum á umferðarjósunum á gatnamótum Heiðarvegs og Bessastíg. Eins og kunnugt er hafa þessi ljós verið að pirra suma óþolinmóða vegfarendur. Biðtími á rauðu ljósi hefur verið styttur úr 40 sekúndum í 20 sekúndur en grænt ljós logar stöðugt fyrir umferð á Heiðarvegi nema þegar umferð kemur […]
Birkir Ívar skrifar undir hjá Haukum

Landsliðsmarkvörðurinn Birkir Ívar Guðmundsson hefur ákveðið að snúa heim til Hauka í sumar og hefur gert 3 ára samning við félagið. Birkir Ívar fór í atvinnumennsku frá Haukum árið 2006 og hefur hann leikið með TUS N-Lübbecke í Þýskalandi síðastliðin 2 tímabil. Birkir Ívar er 32 ára og hefur leikið 145 landsleiki fyrir Ísland. (meira…)
Gangið til samninga við Eyjamenn eða yfirtakið tilboð þeirra

Fjöregg Vestmannaeyinga hefur verið til meðferðar á Alþingi, í samgönguráðuneyti og Siglingastofnun síðustu daga og vikur. Þarna á ég við málefni Landeyjahafnar sem á verða tilbúin árið 2010 og um mitt það ár á ný ferja að vera tilbúin til að hefja siglingar milli hennar og Eyja. (meira…)