Ríkið vill lengri frest

Rétt fyrir hádegi barst Eyjamönnum, Vestmannaeyjabæ og Vinnslustöðinni, ósk um frekari frest á svari ríkisins vegna tilboðs þeirra í smíði á ferju í Landeyjahöfn. (meira…)
Eyjamenn gagnrýna ríkisstjórnina vegna ferjusmíði

Ríkisstjórnin hefur fjallað í tvígang um tilboð Vestmannaeyjabæjar og Vinnslustöðvarinnar í smíði og rekstur nýrrar farþegaferju án niðurstöðu, segir í bókun bæjarráðs Vestmannaeyja í gær. Kristján L. Möller samgönguráðherra segir að heimildir Eyjamanna séu ekki réttar og enginn ágreiningur sé innan ríkisstjórnarinnar um málið. Bæjarstjóri hefur engar upplýsingar fengið um framvindu málsins eftir að svarfrestur […]
Fleiri farþegaskip til Vestmannaeyja

Átján skemmtiferðaskip koma til Vestmannaeyja í sumar, sem er töluverð fjölgun frá því sem verið hefur undanfarin ár þegar um tíu skip hafa að jafnaði komið yfir sumarið. Að sögn Andrésar Sigurðssonar, hafnsögumanns í Vestmannaeyjum, er ekki gert ráð fyrir að um tilfallandi fjölgun sé að ræða. Samkvæmt upplýsingum 24 stunda verður ekki sambærileg fjölgun […]
Sjómannadagurinn á Eyrarbakka
Kl. 10 hjólaskoðun Slysavarnaskýlið Kl. 13 hjólakeppni við skýlið og dorgveiðikeppni að því loknu Um Kl. 14 verður boðið upp á skerjasiglingu Kl. 14. Hátíðarmessa í Eyrarbakkakirkju. Að lokinni messu verður gengið að Vesturbúðarlóð og blómsveigur lagður að minnisvarðanum um drukknaða sjómenn. Frá kl. 15. Sjómannadagskaffi á Stað, á vegum Slysavarnadeildarinnar Bjargar, Eyrarbakka (meira…)
Færri banaslys á sjó

Sjómennska hefur löngum verið eitthvert hættulegasta starf sem hægt er að stunda hér við land, svo tíð voru slys um borð og svo oft fórust skip. Á síðustu árum hefur slysunum fækkað og munar að sjálfsögðu mest um fækkun banaslysa. Ástæðurnar eru margvíslegar, m.a. gjörbreytt fjarskipti, tilkynningarskylda, öruggari skip, breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu og á sjósókn, […]
Sjómannadagurinn á Stokkseyri
11.00 Hátíðarguðþjónusta í Stokkseyrarkirkju.Blómsveigur lagður að minnisvarða um drukknaða sjómenn. 13.30 Skemmtidagskrá á íþróttavellinum. Kassaklifur, stígvélaþeyta, reiptog, boðhlaup. Við Stokkseyrarhöfn: Koddaslagur og skemmtisigling Fólk er hvatt til að taka þátt í koddaslag Það er Björgunarfélag Árborgar sem sér um Sjómannadaginn á Stokkseyri. (meira…)
Landnámsdagur í Skeiða- og Gnúpverjahreppi
Landnámsdagur verður haldinn í Skeiða- og Gnúpverjahreppi nk. laugardag. Meðal annars verður dagskrá í Þjóðveldisbænum. Opið hús verður á tveimur bæjum í sveitinni, Reykjahlíð og Skaftholti, frá kl. 10 til 12. Landgræðslan og Skógræktin bjóða upp á gönguferðir og sérfræðingur frá Fornleifavernd ríkisins verður við bæjarrústirnar að Stöng kl. 11 til 13. (meira…)
Kapp lagt á að efla Sogn
Umræðan um brot Magnúsar Skúlasonar, geðlæknis á Sogni, sem vikið hefur verið frá störfum fyrir að svíkja út lyf í nafni skjólstæðinga sinna hefur reynt mjög á starfsfólkið á réttargeðdeildinni að sögn Drífu Eysteinsdóttur, deildarstjóra þar. (meira…)
Bjarni Harðarson með gull í ýkjum
Það þótti vel við hæfi að alþingismaðurinn Bjarni Harðarson nældi sér í gullið í ýkjusögukeppni sem Gísli Einarsson heldur úti. Bjarni hefur verið áberandi í þjóðfélagsumræðunni síðan hann var kosinn á þing og þykir vera ýktur á köflum. Hann rúllaði svo upp andstæðingum sínum í Landnámssetrinu í Borgarnesi þegar hann fékk frítt spil til að […]
Sjómannadagshelgin í �?orlákshöfn
Laugardagur 31. maíDagskrá á SvartaskersbryggjuKynnir: Bergsveinn Theódórsson 13:00 Skemmtisigling. 14:00-17:00 Kappróður, koddaslagur, reiptog, leiktæki, ökuleikni glæpagengisins og fleira. Harmonikkufélag Suðurlands annast tónlistarflutning. 20:30 -23:30 Bryggjutónlist. Fram koma hlómsveitirnar Fargan, Svartasker og 3 hjól undir Baldri. Dansleikur Knattspyrnufélagsins Ægis í Versölum um kvöldið. (meira…)
Margrét Lára með tvö í 4:0 sigri á Serbíu

Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði tvívegis í 4:0-sigri íslenska landsliðsins á útivelli gegn Serbíu í dag í undankeppni Evrópumótsins. Sara Björk Gunnarsdóttir og Katrín Ómarsdóttir bættu við mörkum fyrir Ísland sem á enn góða möguleika á að komast í úrslitakeppni Evrópumótsins á næsta ári í Finnlandi. Fylgst var með gangi mála í beinni textalýsingu á mbl.is, […]
Rúmlega 900 látnir í umferðinni á 40 árum
916 manns hafa látist í umferðarslysum á síðustu 40 árum, eða frá því að hægri umferð var tekin upp, samkvæmt upplýsingum Umferðarráðs. Það stendur nú fyrir umferðaröryggisviku. Bent er á að það jafngildi því að allir íbúar Bolungarvíkur eða Blönduóss hefðu látist. Þessi fjöldi dugir einnig til að fylla fjórar Boeing 757 þotur. (meira…)
Gæti vel hafa kviknað út frá rafmagni

Þrátt fyrir að allt benti til þess að kveikt hafi verið í Þjóðhátíðarmannvirkjunum í morgun hefur rannsókn leitt í ljós að ekki eru minni líkur á að eldurinn hafi blossað upp út frá rafmagni. Þegar blaðamaður Eyjafrétta leit við fyrir skömmu var Tryggvi Kr. Ólafsson við störf en hann sagði allt eins líklegt að kviknað […]
Aðgát skal höfð
�?g vil segja nokkur orð sem varða ákærur á hendur Gunnari Björnsyni vegna kynferðislegrar áreitni gagnvart nokkrum sóknarbarna sinna. Ástæða skrifa minna er sú mikla umfjöllun sem þetta mál hefur hlotið bæði í fjölmiðlum og ekki síður manna á meðal í sókn Gunnars. Grein Höllu �?marsdóttur í Dagskránni 15.maí var innlegg í þá umræðu. Svo […]
Tekið á FIT-kostnaði
Frumvarp viðskiptaráðherra sem meðal annars felur í sér að fjármálafyrirtækjum verður óheimilt að taka gjald vegna óheimils yfirdráttar á tékkareikningi eigi það sér ekki stoð í samningi var afgreitt úr annari umræði á Alþingi í gær. Í frumvarpinu segir einnig að kostnaður vegna óheimils yfirdráttar skuli vera hóflegur. (meira…)
Kveikt í �?jóðhátíðarmannvirkjum við hlið slökkvistöðvarinnar

Um klukkan hálf sex í morgun barst slökkviliði Vestmannaeyja tilkynning um eld við Áhaldahúsið. Kveikt hafði verið í mannvirkjum sem notuð eru á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og eru geymd á svæðinu en um er að ræða gámaeiningar sem notuð eru undir svið og önnur mannvirki. Vel gekk að ráða niðurlögum eldsins enda er slökkvistöðin einungis […]
Segist ekki á leiðinni í meðferð
Magnús Skúlason yfirgeðlæknir á Sogni segist ekki vera á leiðinni í meðferð eins og kom fram í fréttum Rúv í hádeginu. Í Fréttablaðinu í morgun er sagt frá því að landlæknisembættið sé með til rannsóknar mál þar sem Magnúsi er gert að sök að hafa ávísað ávanabindandi fíknilyfjum á menn án þeirrar vitundar. Magnús vill […]
�?�?jóðarsátt um velferð�? í Tryggvaskála á Selfossi
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir flutti yfirlit um velferðarmálin og efnahagsútlitið, stöðuna í stjórnmálum og samstarfinu í ríkisstjórn. Umræður og fyrirspurnir voru á eftir. Björgvin G. Sigurðssun flutti einnig framsögu og svaraði fyrirspurnum. Húsfyllir var í Tryggvaskála og góður rómur gerður að málflutningi þeirra beggja. (meira…)
Mótvægisaðgerðir við atvinnuþróun og nýsköpun
Byggðastofnun hefur nú gengið frá styrkveitingum og hlutafjárframlögum vegna mótvægisaðgerða ríkistjórnarinnar til eflingar atvinnuþróunar og nýsköpunar 2008 og 2009. Alls voru 200 milljónir króna til úthlutunar, 100 milljónir fyrir hvort ár. Alls bárust 253 umsóknir og var samtals sótt um rúman 1,5 milljarð. Alls hlutu 69 verkefni styrk, en nokkrar umsóknir eru til frekari skoðunar. […]
Fimmtán glæsimeyjar taka þátt í Sumarstúlkukeppninni 2008

Sumarstúlkukeppni Vestmannaeyja 2008 fer fram í Höllinni þann 21. júní nk. Alls munu 15 stúlkur taka þátt í ár. Keppnin mun verða með svipuðu sniði og undanfarin ár, þar sem stelpurnar munu koma fram í opnunaratriði, tískusýningum og kjólainnkomu auk þess sem ýmis önnur skemmtiatriði verða í boði. Veisluþjónusta Einsa kalda mun sjá um matinn […]