Engin ákvörðun tekin á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun

Engin ákvörðun var tekin á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun varðandi tilboð Vestmannaeyjabæjar og Vinnslustöðvarinnar í Bakkafjöruferju. Kristján L. Möller, samgönguráðherra lagði fram tillögur sínar á fundinum en ekki náðist að afgreiða málið á fundinum. Engar upplýsingar fengust hvað fólst í tillögum ráðherra en Róbert Marshall, aðstoðarmaður Kristjáns sagði að málið yrði afgreitt á föstudag. (meira…)

Ingibjörg Sólrún á Selfossi

„Þjóðarsátt um velferð“ — fundum Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur formanns Samfylkingarinnar með flokksmönnum og stuðningsfólki um landið — lýkur á Selfossi í dag, þriðjudag, í Tryggvaskála og er það fimmti fundurinn í þessari lotu. Búast má við góðu yfirliti frá formanninum um velferðarmálin og efnahagsútlitið, stöðuna í stjórnmálum og samstarfinu í ríkisstjórn. Umræður og fyrirspurnir taka […]

Fjölgunin mest á Vestfjörðum

Opinberum störfum fjölgaði um 30 á Vestfjörðum á tímabilinu frá 1. maí 2007 til 1. maí 2008. Á sama tímabili fjölgaði opinberum störfum á landsbyggðinni allri um samtals 85. Þetta kemur fram í svari iðnaðarráðherra við fyrirspurn Guðnýjar Hrundar Karlsdóttur, varaþingmanns Samfylkingarinnar. (meira…)

Tilboði Eyjamanna verður hafnað á ríkisstjórnarfundi á eftir

Allt bendir til þess að tillaga samgönguráðherra um væntanlega ferju vegna Landeyjahafnar verði lögð fyrir ríkisstjórnarfund sem haldinn verður núna klukkan hálf tíu. Ekki hefur tekist að afla upplýsinga um innihald tillögunnar en samkvæmt heimildum verður tilboði Eyjamanna hafnað. (meira…)

�?Hann er algjörlega saklaus�?

Rannsókn á meintum brotum séra Gunnars Björnssonar, sóknarprests á Selfossi, er langt komin, að sögn lögreglunnar á Selfossi. Hjá henni hafa fengist upplýsingar um að meint brot hans séu nú rannsökuð sem brot gegn blygðunarsemi. Lögmaður séra Gunnars Björnssonar, Sigurður Þ. Jónsson, segir að sóknarpresturinn sé algjörlega saklaus. (meira…)

Íbúafjöldi í Árborg

18. maí 2008 eru 7.753 skráðir íbúar í Sveitarfélaginu Árborg og dreifast sem hér segir: Á Selfossi eru skráðir 6.425Í Sandvík 168Á Eyrarbakka og dreifbýli 604Á Stokkseyri og dreifbýli 542Óstaðsettir 14 (meira…)

Betra að veiða humarinn en selja

EKKI er vandi að veiða humarinn á vertíðinni og horfur á að helstu vinnslufyrirtækin ljúki vinnslu í júlí eða byrjun ágúst. Hins vegar hefur gengið verr að selja á erlendum mörkuðum og verðið heldur látið undan síga í erlendri mynt. (meira…)

FH er bara sprungin blaðra eins og ÍBV

Miðjan, stuðningsmannahópur KR, tók upp á því að syngja stuðningsmannalög ÍBV í leik liðsins gegn FH í Landsbankadeild karla í gærkvöldi. ,,Við ákváðum að taka þetta á vellinum í gær. FH er bara bóla eins og ÍBV og við ákváðum að syngja sautjánda júní lög. Þá kom upp ÍBV lag og það var hressandi og […]

Róleg vika að baki hjá lögreglunni

Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu og ekkert alvarlegt sem kom uppá þrátt fyrir nokkurn fjölda fólks í bænum um helgina og fjölda Evróvisionpartýa víðs vegar um bæinn. Sl. laugardagskvöld héldu ungmenni sem voru að ljúka 10. bekk upp á áfangann með varðeldi og skemmtun við Hrafnakletta. Fór sú skemmtun að mestu leyti ágætlega […]

Hátíðarfundur í tilefni af 10 ára afmæli

Bæjarstjórn Árborgar hefur samþykkt að halda hátíðarfund bæjarstjórnar og UNGSÁ, Ungmennaráðs sveitarfélagsins Árborgar, þann 7. júní. Tilefnið er að þann dag verða liðin 10 ár frá því fyrsti bæjarstjórnarfundurinn var haldinn í Árborg. Fundarefnið verður málefni ungs fólks í Árborg. (meira…)

Gunnar Heiðar fær ekki mörg tækifæri hjá Vålerenga

Gunnar Heiðar Þorvaldsson, framherji Vålerenga og íslenska landsliðsins, verður í eldlínunni í kvöld þegar varalið Vålerenga spilar gegn Levanger í norsku 2. deildinni. Hann mun síðan væntanlega vera í byrjunarliði Íslands sem tekur á móti Wales á Laugardalsvellinum á miðvikudaginn. Framtíð Gunnars Heiðars hjá Vålerenga er óráðinn því lánssamningur hans við félagið rennur út í […]

Ísfélagið í fjórða sæti yfir kvótahæstu útgerðirnar

Á vef Fiskistofu, www.fiskistofa.is, er nú hægt að sjá lista yfir 100 kvótahæstu útgerðir landsins. Ísfélag Vestmannaeyja er í fjórða sæti listans með 4,32% af heildarkvóta landsins en Vinnslustöðin er í því sjöunda, með 4,08%. HB Grandi er hins vegar í efsta sæti með 11,91% en í öðru sæti er Samherji með 7,72%. Tíu kvótahæstu […]

Grunaðir um veiðar innan landhelgi

Smáey VE var vísað til hafnar í gærmorgun en grunur leikur á að skipið hafi verið við veiðar inna 3 mílna við suðausturströndina. Það var ein af þyrlum Landhelgisgæslunnar sem kom að Smáey og vísaði bátnum til hafnar þar sem Jón Logason, skipstjóri fór í skýrslutöku og aflinn var gerður upptækur en þar sem veiðar […]

Bjóðum flóttamenn velkomna til landsins

Íslendingar eru ein ríkasta þjóð veraldar og á að beita sér af myndarskap í mannúðar- og hjálparstarfi hvort sem er á innlendum eða erlendum vettvangi. Ríkisstjórn og Alþingi eiga að setja mun meira fjármagn til málaflokksins á komandi árum en verið hefur til þessa. Í stefnuskrá Frjálslynda flokksins er vikið að málefnum flóttamanna ogþar er […]

Sigurður bestur annað árið í röð

Sigurður Bragason, fyrirliði og leikmaður meistaraflokks karla í handbolta, var í kvöld útnefndur leikmaður tímabilsins hjá liðinu. Sigurður fékk sömu nafnbót fyrir síðasta tímabil en fyrirliðinn hefur svo sannarlega farið fyrir sínu liði undanfarin ár. Þá fengu þau Heiða Ingólfsdóttir og Kolbeinn Arnarson Fréttabikarana sem eru veittir þeim ungu íþróttamönnum sem þykja hvað efnilegust en […]

Tóti maður, Gústi hirðusami, Bjössi míla, Kumlið og Gilli gulltilli

Þessa dagana er að koma í bókabúðir landsins, bók eftir Sigurgeir Jónsson frá Þorlaugargerði, sem ber nafnið Viðurnefni í Vestmannaeyjum. Í formála bókarinnar segir Sigurgeir, að mörg viðurnefni hafi niðrandi merkingu, og oft hafi þau verið gefin af illgirni og öfund. Sum viðurnefni hafa þó orðið að einkennum heilla ætta á jákvæðum nótum, svo sem […]

2:0 sigur í þriðja sinn

Karlalið ÍBV vann sinn þriðja 2:0 sigur í 1. deildinni í kvöld þegar liðið tók á móti Stjörnunni. Það var ekki langt liðið á leikinn þegar Þórarinn Ingi Valdimarsson hafði komið boltanum í netið en það gerðist á 4. mínútu. Þórarinn var í fyrsta sinn í byrjunarliði ÍBV og nýtti tækifærið vel því stuttu síðar […]

Stórsigur í fyrsta leik hjá stelpunum

Kvennalið ÍBV fór heldur betur vel af stað á ný eftir tveggja ára hlé en ÍA kom í heimsókn til Eyja í dag. Þessi fyrrum stórveldi leika bæði í 1. deild og það voru Skagastúlkur sem byrjuðu betur, komust í 0:1 undan sterkri austan áttinni. En á tveimur síðust mínútum fyrri hálfleiks tókst ÍBV að […]

Ríkisstjórnin dregur enn lappirnar varðandi Bakkafjöruferju

Kristján L. Möller, samgönguráðherra, sagði eftir ríkisstjórnarfund í dag, að engin ákvörðun hefði verið tekin um málefni nýrrar Vestmannaeyjaferju. Kristján sagði, að verið væri að fara yfir málið í samgönguráðuneytinu en ljóst væri, að útboð vegna ferjunnar hefði verið á óheppilegum tíma og fjármagnskostnaður hefði hækkað mikið. (meira…)

Nú vantar okkur vinnandi hendur í Dalinn.

Á morgun laugardag vantar okkur duglegt fólk til að ganga frá Dalnum undir tyrfingu. Stór flutningavagn kemur með þökur í Herjólfi laugardagskvöld. Þá verðum við að vera búin að ganga frá svæðinu og gera allt klárt. Hvetjum alla, sem vettlingi geta valdið til að koma í Dalinn laugardag kl. 13.00. Nú er kærkomið tækifæri fyrir […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.