Miðjan, stuðningsmannahópur KR, tók upp á því að syngja stuðningsmannalög ÍBV í leik liðsins gegn FH í Landsbankadeild karla í gærkvöldi. ,,Við ákváðum að taka þetta á vellinum í gær. FH er bara bóla eins og ÍBV og við ákváðum að syngja sautjánda júní lög. Þá kom upp ÍBV lag og það var hressandi og kveikti í mannskapnum. Tryggvi er náttúrulega úr Eyjum og svona þannig að þetta tvinnast allt saman, sagði Ingvar Örn Ákason eða Byssan í stuðningsmannahópi KR. “