Smáey VE var vísað til hafnar í gærmorgun en grunur leikur á að skipið hafi verið við veiðar inna 3 mílna við suðausturströndina. Það var ein af þyrlum Landhelgisgæslunnar sem kom að Smáey og vísaði bátnum til hafnar þar sem Jón Logason, skipstjóri fór í skýrslutöku og aflinn var gerður upptækur en þar sem veiðar voru nýhafnar var ekki um mikinn afla að ræða, aðeins nokkur kíló.