Fróði ÁR frá Stokkseyri aflahæstur humarbáta sem fyrr

Humarlisti númer 5. Friðrik Sigurðsson ÁR er byrjaður á humri. Smá hreyfng er á listanum að þessu sinni. Skálafell ÁR fer uppfyrir Sigurð Ólafsson SF og Þorsteinn Gíslasson GK fer uppfyrir Narfa VE og vekur það nokkra athygli þar sem eins og flestir vita þá er þónokkuð mikill stærðarmunur á milli þessara tveggja báta. Fróði […]

Sementssala jókst í apríl

Sementssala án stóriðju virðist vera að aukast en fram kemur í hagvísum Seðlabankans í dag, að ársvöxtur sölunnar í mánuðinum nam tæplega 35%. Á fyrsta fjórðungi ársins var hins vegar 1% samdráttur í sementssölu miðað við sama tímabil í fyrra. Seðlabankinn segir, að helstu vísbendingar um eftirspurn bendi til að áfram hafi hægt á vextinum […]

Hamar í Hveragerði vann aldursflokkamótið í sundi þriðja árið í röð

Aldursflokkamót HSK í sundi var haldið á Hvolsvelli 3. maí sl. og mættu keppendur frá þremur félögum tl leiks. Stigakeppnin var spennandi í ár, en í lok móts munaði 24 stigum á liðum Hamars og Selfoss. Hamar hlaut 196 stig og Selfoss 176 stig. Dímon varð síðan í þriðja sæti með 76 stig. Hamar vann […]

62 ökumenn voru kærðir fyrir að aka of hratt

62 ökumenn voru kærðir fyrir að aka of hratt, flestir innanbæjar en í vikunni var gert átak í mælingu á ökuhraða í þéttbýli á Selfossi. Fyrirhugað er að halda því áfram á næstu dögum og fara þá í Hveragerði, Þorlákshöfn Stokkseyri og Eyrarbakka og einnig í þéttbýlinu í uppsveitunum. Við eftirlitið verða m.a. notaðir ómerktir […]

HB Grandi kvótahæsta útgerðin með 11,91% af heild

HB Grandi hefur ráðstöfunarrétt yfir 11,91% heildaraflaheimilda fiskveiðiflotans í þorskígildum talið, samkvæmt nýrri úttekt Fiskistofu. Samkvæmt lögum má engin útgerð eiga meira en 12% og er fyrirtækið því rétt undir kvótaþakinu. Samherji er næstkvótahæsta útgerðin með 7,72% af heildaraflaheimildunum, þar á eftir kemur Brim með 5,38%, Ísfélag Vestmannaeyja með 4,32%, FISK Seafood með 4,25%, Þorbjörn […]

Ríkiskaup óska enn um frest til að svara tilboði Eyjamanna

Samkvæmt heimildum Eyjafrétta hefur Ríkiskaup óskað eftir frekari frest til að svara tilboði Vestmannaeyjabæjar og Vinnslustöðvarinnar í rekstur og smíði Bakkafjöruferju. Eyjamenn skiluðu inn tilboði í síðustu viku og var svarfrestur gefinn fram að hádegi á þriðjudaginn síðasta. Ríkiskaup óskuðu eftir frest fram á hádegi í dag sem síðar var framlengdur fram yfir ríkisstjórnarfund á […]

Sýslumannsembættið í Vestmannaeyjum í 22. sæti

SFR – stéttarfélag í almannaþjónustu stóð nú í þriðja sinn að vali á Stofnun ársins. Könnunin átti sér stað meðal félagsmanna SFR á starfsskilyrðum þeirra og líðan á vinnustað. Í flokki minni stofnana trónir embætti Skattrannsóknarstjóra með 4.64 í heildareinkunn. Á listanum eru 54 stofnanir. Embætti Sýslumannsins í Vestmannaeyjum er þar í 22. sæti með […]

Hermann brotinn og dregur sig úr landsliðshópnum

Hermann Hreiðarsson, nýkrýndur enskur bikarmeistari með Portsmouth, getur ekki leikið með íslenska landsliðinu gegn Wales á Laugardalsvelli 28. maí þar sem staðfest hefur verið að hann er kinnbeinsbrotinn. Atli Sveinn Þórarinsson úr Val kemur í hans stað. Hermann fékk mikið högg í bikarúrslitaleiknum, frá félaga sínum, David James markverði, en lék samt allan síðari hálfleikinn. […]

Skora á samgönguráðherra að gæta hagsmuna Vestmannaeyinga

Bæjarráð Vestmannaeyja skorar á samgönguráðherra og ríkisstjórn Íslands að gæta hagsmuna Vestmannaeyinga í ákvörðunum er tengjast samgöngum við Vestmannaeyjar. Þá hvetur bæjarráð samgönguráðherra og ríkisstjórn til að varast vítin hvað varðar kostnaðarmat ráðgjafa um smíði og endurgerð ferja. Krafa bæjarráðs er að væntanleg ferja hefji siglingar í Landeyjahöfn 1. júlí 2010. Þá gerir bæjarráð einnig […]

Tryggvi Ágústsson með góðan stuðning

Tryggvi Ágústsson, fangavörður og húmoristi, á Selfossi er meðal efstu manna í kosningu á heimasíðunni www.frambjodandi.is Þar er hægt að tilnefna menn sem erindi eiga í forsetastólinn á Bessastöðum fyrir komandi kosningar í sumar. Tryggvi er í 23. sæti listans. (meira…)

Sr. Guðbjörg þjónar Selfosskirkju

Sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir verður sett í embætti sóknarprests Selfosskirkju frá júlíbyrjun til októberloka á meðan sr. Gunnar Björnsson er í leyfi frá störfum. Sr. Guðbjörg þjónar við Háteigssókn í afleysingum um þessar mundir, en starfaði þar á undan við Sauðárkrókskirkju. (meira…)

Möguleikar ferjutilboðs kynntir ríkisstjórn á föstudag

Samgönguráðherra mun á föstudag kynna fyrir ríkisstjórn þá valmöguleika sem Siglingastofnun leggur til vegna tilboðs Vinnslustöðvarinnar og Vestmannaeyjabæjar um smíði og rekstur nýrrar Vestmanna-eyjaferju. Frestur ríkisins til að svara tilboðinu mun að öllum líkindum framlengjast sem því nemur. Þessar upplýsingar fengust í samgönguráðuneytinu. (meira…)

Kvörtunum um lausagöngu búfjár rignir yfir lögregluna

Kvörtunum um lausagöngu búfjár á þjóðvegum í Rangárþingi rignir yfir lögregluna á Hvolsvelli, en lausaganga er bönnuð með lögum á svæðinu. Einkum eru það hross, kindur og nautgripir sem spóka sig á þjóðvegunum. En svo virðist bændum bústofninn laus í hendi, að þeir passa ekki einusinni upp á hænurnar, og barst lögreglunni nýverið kvörtun um […]

Samdráttur í sölu kindakjöts

Sala á dilkakjöti í aprílmánuði 2008 var rúm 479 tonn samanborið við 569 tonn í apríl 2007. Það er 15.8% minna hlutfallslega. Miðað við sama ársfjórðung og í fyrra (feb-apr) er 10.2% samdráttur og sé litið til 12 mánaða er 0.9% samdráttur. Meðalsala á dilkakjöti fyrstu fjóra mánuði ársins var 513 tonn á mánuði samanborið […]

Brenndur formaður Framsóknar

Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, vakti mikla athygli um helgina þar sem hann sprangaði um Strikið í Kaupmannahöfn ásamt eiginkonu sinni. Hjónin voru léttklædd í steikjandi sólskininu, bæði í eins konar khaki-klæðnaði. (meira…)

Queentónleikar kórs FSu í kvöld

Stórtónleikar með Magna Ásgeirssyni, Kór Fjölbrautaskóla Suðurlands ásamt hljómsveit í Íþróttahúsinu Iðu á Selfossi í kvöld miðvikudag 21. maí . . Öll bestu og vinsælustu lög Queen verða flutt á tónleikunum og ekkert til sparað svo sem: (meira…)

�?tskrift úr grunnnámi Fangavarðaskólans 2008

Nemendur Fangavarðaskólans luku prófum 7. maí síðastliðinn og voru útskrifaðir úr grunnnámi eða fyrri önn skólans föstudaginn 9. maí síðastliðinn. Skólinn var starfræktur á grundvelli reglugerðar um menntun fangavarða. Þetta er í annað sinn sem Fangavarðaskólinn starfar samkvæmt tillögum nefndar sem dómsmálaráðherra skipaði árið 2005 og skilaði skýrslu sama ár um menntun og þjálfun fangavarða. […]

Framleiðsla og sala á kjöti í apríl

Framleiðsla á kjöti í apríl nam 1.777 tonnum og var 33,4% meiri en í apríl 2007. Framleiðsla jókst á öllum kjöttegundum. Sala á kjöti var 14,4% meiri en í sama mánuði í fyrra og nam 2.237 tonnum. Mest jókst sala á nautakjöti, um 40%, sem lætur nærri að svara til framleiðsluaukningar í mánuðinum. (meira…)

Frestur framlengdur fram á fimmtudag

Hinu opinbera hefur verið veitt framlenging á fresti til að svara tilboði Vinnslustöðvar og Vestmannaeyjabæjar í smíði og rekstur farþegaferju í Bakkafjöru. Upphaflegi frestur til svars rann út að hádegi í dag en frestur til svars nú rennur út að hádegi fimmtudags. Ákvörðun varðandi tilboð Eyjamanna er í höndum samgöngu- og fjármálaráðherra. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.