Nýr fáni Félags skógarbænda á Suðurlandi

Agnes Geirdal, formaður Félags skógarbænda á Suðurladi, afhenti fyrir stuttu Landsamtökum skógareigenda og öðrum skógarbændafélögum nýjan fána félagsins en Félag skógarbænda hafði staðið fyrir samkeppni varðandi merki félagsins. (meira…)

Tveir leikir á Hásteinsvellinum á föstudag

Búið er að breyta leiktímum næstu leikja knattspyrnuliða ÍBV. Eins og áður hefur komið fram fer fyrsti leikur kvennaliðs ÍBV fram á föstudag og hefst leikurinn klukkan 16.00. Stelpurnar taka á móti ÍA á Hásteinsvellinum. Karlalið ÍBV leikur síðar sama dag en leikur ÍBV og Stjörnunnar hefst klukkan 19.00 á Hásteinsvellinum. (meira…)

Fróði ÁR frá Stokkseyri aflahæstur

Enn er Fróði ÁR 33, frá Stokkseyri, og gerður er út frá Þorlákshöfn, efstur humarbáta á vertíðinni. Segja að lítil hreyfing sé á öðrum bátum á listanum, enn þó fór Þórir SF frammúr Erlingi SF. Glófaxi VE kemur inná listann í fyrsta sinn. Sjá listann hér undir meira: (meira…)

Endurheimti pípu sem lá 16 ár á hafsbotni

Sú einstaka tilviljun varð á dögunum að reykjarpípa sem kastað var í sjóinn fyrir 16 árum kom í veiðarfæri báts og er nú komin til eiganda síns. Þannig var að Bjartmar Ágústsson var háseti á Skógey SF árið 1992 og ákvað hann að hætta að reykja í einum róðrinum og kastaði pípunni sinni í sjóinn. […]

Aflinn í apríl 2008

Heildaraflinn í apríl 2008 var 127.441 tonn. Aflinn í apríl 2007 var 122.367 tonn. Meira veiddist af kolmunna í ár og skýrir það aflaaukningu að mestu leyti. Botnfiskafli í apríl 2008 var 51.313 tonn en botnfiskaflinn var 51.316 tonn í apríl 2007. Þorskafli dróst lítillega saman milli ára og ufsaafli var tvö þúsund tonnum minni […]

Hrefnukvóti gefinn út í gær

Hrefnuveiðimenn segjast reikna með að halda til veiða í dag, verði veður hagstætt en reglugerð var gefin út í gær þar sem heimiluð verður veiði á 40 dýrum á þessu ári. Stefán Ásmundsson, skrifstofustjóri í landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneyti, segir að um sé að ræða framhald af þeirri ákvörðun, sem tekin var árið 2006 þegar ákveðið […]

Stafræn smiðja verður sett upp í Eyjum í sumar

Nýsköpunarmiðstöð Íslands ætlar að setja upp stafræna smiðju, Fab Lab (Fabrication Laboratory), með tækjum og tólum í Vestmannaeyjum í sumar. Smiðjunni er ætlað að gefa frumkvöðlum, nemendum, almenningi og starfsmönnum fyrirtækja og stofnana tækifæri til að þjálfa sköpunargáfuna og láta hugmyndir sínar verða að veruleika með því að hanna, móta og framleiða hluti með aðstoð […]

Tilboði Eyjamanna ekki tekið?

Samkvæmt nokkuð öruggum heimildum Eyjafrétta bendir allt til þess að stýrihópur Samgönguráðherra, sem fer með ferðina varðandi útboð í smíði og rekstur Bakkafjöruferju, muni ekki taka síðara tilboði Vestmannaeyjabæjar og Vinnslustöðvarinnar. Eyjamenn skiluðu inn nýju tilboði í síðustu viku en frestur til að svara tilboðinu rennur út að hádegi á morgun, þriðjudag. (meira…)

Fjör í æðar færist…

Eins og fram hefur komið verður sveitarhátíðin Fjör í Flóanum haldin nú í lok mánaðarins, eða dagana 30. maí – 1. júní. Undirbúningur er í fullum gangi og verður margt á seyði. (meira…)

Höldum fána ÍBV hátt á loft

Forráðamenn ÍBV hvetja stuðningsmenn að flagga á leikdegi í fréttatilkynningu sem lesa með því að smella á meira. Á föstudaginn næsta verða tveir leikir sama daginn á Hásteinsvellinum. Annars vegar mun kvennalið ÍBV leika sinn fyrsta leik í 1. deildinni en ÍBV tekur þá á móti öðru fyrrum stórveldi í kvennaboltanum, ÍA. Kvennaleikurinn hefst klukkan […]

5000 króna sekt fyrir hvert nagladekk

Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í vikunni sem leið, þrátt fyrir að nokkur fjöldi hafi verið að skemmta sér um helgina. Að vanda þurfti lögreglan að aðstoða fólk til síns heima eftir að það hafði fengið sér heldur mikið neðan í því en annars fór skemmtanahaldið að mestu vel fram. Rétt er að minna […]

Selfoss á toppi 1. deildar

Selfoss er á toppi 1. deildar ásamt ÍBV eftir fyrstu tvær umferðir Íslandsmótsins. Í gærkvöldi lagði liðið Leikni að velli á Selfossi 4:2 en lokamínútur leiksins voru vægast sagt skrautlegar. Selfyssingar virðast eiga auðvelt með að finna netmöskvana því þeir hafa einnig skorað flest mörk deildarinnar, sjö talsins í þessum tveimur leikjum. (meira…)

Kolmunni til bjargar þegar loðnan brást

Ísfélagið í Vestmannaeyjum á mikið undir uppsjávarveiðum og lítill kvóti í loðnu á nýliðinni vertíð var því mikið högg fyrir félagið. (meira…)

Eyjamenn unnu �?ór 0:2

Eyjamenn lögðu Þór að velli í dag en liðin áttust við í knattspyrnuhúsinu Boganum á Akureyri. Lokatölur urðu 0:2 ÍBV í vil en bæði mörkin komu í fyrri hálfleik. Atli Heimisson kom ÍBV og Andri Ólafsson bætti við öðru marki en í millitíðinni fékk Atli að líta rauða spjaldið fyrir brot á markverði Þórsara. (meira…)

Spila á gervigrasi í dag

Karlalið ÍBV í knattspyrnu leikur í dag gegn Þór á Akureyri í 2. umferð Íslandsmótsins í 1. deild. Eyjamenn hófu mótið vel, unnu Leikni örugglega á heimavelli 2:0 en sigur ÍBV hefði átt að vera mun stærri. Í dag er hins vegar fyrsti útileikurinn og það sem meira er, hann verður leikinn innandyra í knattspyrnuhúsinu […]

Hermann enskur bikarmeistari

Hermann Hreiðarsson varð í dag enskur bikarmeistari í knattspyrnu með liði sínu Portsmouth, þegar þeir lögðu Cardiff að velli 1:0 á Wembley. Hermann stóð fyrir sínu, var traustur fyrir í vörninni og tók þátt í sóknarleik liðsins en Eyjamaðurinn lék í stöðu vinstri bakvarðar. Hermann fékk að líta gula spjaldið í fyrri hálfleik en lét […]

Tilboð Eyjamanna gildir fram á þriðjudag

Vinnslustöðin og Vestmannaeyjabær skiluðu í gær, föstudag inn nýju tilboði í rekstur og smíði Bakkafjöruferju. Eyjamenn höfðu átt í viðræðum við samgönguráðuneytið og kemur tilboðið í framhaldi af þeim viðræðum. Tilboð Eyjamanna gildir fram á hádegi þriðjudagsins 20. maí en Elliði Vignisson, bæjarstjóri, telur þetta vera lokasvar heimamanna. (meira…)

Stór hópur Eyjamanna fylgir Hermanni á Wembley

Í dag klukkan 14.00 mæta Hermann Hreiðarsson og félagar hans í Portsmouth, 1. deildarliðinu Cardiff í úrslitum ensku bikarkeppninnar. Leikurinn fer fram á Wembley en hópur Eyjamanna fóru á leikinn. Í heildina er samankominn um 50 manna hópur til að styðja Eyjamanninn á vellinum en um helmingur þeirra kemur frá Vestmannaeyjum. (meira…)

Hlynur í formannsslaginn

Hlynur Sigmarsson, sem um árabil stóð í fylkingarbrjósti handknattleiksdeildar ÍBV og setið hefur í stjórn Handknattleiks-sambandsins síðan í vor, hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns á ársþingi HSÍ sem fram fer á morgun, laugardag. Í tilkynningu frá Hlyni segir: Verkefnin eru mörg og krefjandi. (meira…)

Nýju tilboði skilað inn í dag

Vestmannaeyjabær og Vinnslustöðin skila inn nýju tilboði í dag, föstudag í rekstur og smíði nýrrar ferju sem sigla mun í fyrirhugaða höfn í Bakkafjöru. Eyjamenn voru einu bjóðendurnir sem höfðu gilt tilboð í útboði Ríkiskaupa en tilboði þeirra var engu að síður hafnað. Samgönguyfirvöld boðuðu Eyjamenn hins vegar í viðræður og er nýtt tilboð lokahnykkur […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.