Víða vart við sandsíli

Vísbendingar eru um að hrygning sandsíla hafi tekist vel í fyrra en ekki fæst úr því skorið fyrr en eftir sandsílaleiðangur í sumar, að því er fram kemur í nýjustu Fiskifréttum. Sjómenn sem stunda veiðar við suðurströndina hafa tekið eftir því að óvenjumikið er um sandsíli ef miðað er við tvö til þrjú síðastliðin ár. […]
Umferðarljósin voru gefin í góðri trú

Fyrir nokkru varð umferðarslys á gatnamótum Heiðarvegs og Bessastígs, þar sem nýverið voru sett upp umferðarljós. Í slysinu hlutu tvær ungar stúlkur nokkur meiðsli. – Neikvæð umræðu í bænum um ljósin í framhaldi af þessu umferðaróhappi, hafa valdið okkur Kiwanisfélögum áhyggjum. Við gáfum þessi ljós í góðri trú um að þau yrðu til að auka […]
Eldsneytiskostnaður orðinn 22% af aflaverðmæti fiskiskipa

Hlutur eldsneytiskostnaðar af aflaverðmæti fiskiskipa er rokinn upp úr öllu valdi vegna olíuverðshækkana og hefur aldrei verið jafn hár. Um árabil var olíukostnaðurinn átta til tíu prósent af aflaverðmætinuewn stefnir nú í rúm 22 próset. Fyrir ári var hann kominn upp í 15 prósent, sem olli þungum áhyggjum meðal útgerðarmanna. (meira…)
Á Móti Sól á lokaballi Framhaldsskólans annað kvöld

Á morgun, laugardag mun Nemendaráð Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum halda lokaball skólaársins. Nemendur skólans hafa undanfarnar vikur staðið í prófum og margir eflaust fegnir að sleppa fram af sér beislinu á stórdansleik í Týsheimilinu. Hlómsveitin Á Móti Sól, með stórsöngvarann Magna fremstan meðal jafningja, mun leika fyrir dansi. (meira…)
Engin Vakt í dag
Vegna óviðráðanlegra orsaka kemur fréttablaðið Vaktin ekki út í þessari viku. Lesendur blaðsins eru beðnir velvirðingar á þessu en Vaktin verður á sínum stað í næstu viku, föstudaginn 23. maí. (meira…)
Skemmtun í Knarrarósvita
Föstudagskvöldið 16. maí verður hátíð í Knarrarósvita við Stokkseyri í tilefni af menningarhátíðinni Vor í Árborg. Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir, dómkirkjuprestur í Reykjavík, rifjar upp sögur af gönguferðum föðurs síns Páls Ísólfssonar, tónskálds, út að vitanum. Einnig verður saga Knarrarósvita rifjuð upp. (meira…)
Kennari kærir nemanda

Grunnskólakennari hefur kært nemanda til lögreglu eftir að nemandinn réðist á kennarann í síðustu viku. Tryggvi Kr. Ólafsson, lögreglufulltrúi, staðfesti að kæra vegna líkamsárásar hefði borist frá kennara gagnvart nemanda undir 15 ára aldri. „Barnið er ósakhæft þannig að málið fer ekki í ákæru en það verður rannsakað og sent áfram til barnaverndaryfirvalda, sagði Tryggvi. […]
Bjargveiðimenn leggja til styttingu lundaveiðitímabils

Vegna óska bæjaryfirvalda um að Bjargveiðifélag Vestmannaeyja myndi leggja fram ráðgjöf varðandi það hvernig veiði á lunda yrði háttað sumarið 2008, þá hittust félagsmenn í gær þriðjudaginn 13. maí og fóru yfir málin. Á fundinu var samþykkt eftirfarandi tillaga: (meira…)
Hvítasunnuhelgin var róleg
Hvítasunnuhelginvar róleg hjá lögreglunni í Árnessýslu. Vor í Árborg hefur farið vel af fram. Af því tilefni er minnt á sýningu Gunnars Sigurgeirssonar sem opnuð verður kl. 17:00 fimmtudaginn 15. maí n.k., og ber nafnið “Löggur og ljósmyndir” og “Flóð í Ölfusá”. Þar gefur að líta ljósmyndir úr starfi lögreglunnar auk ýmiss konar búnaður sem […]
Hafði í ýmsu að snúast í síðustu viku

Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í vikunni sem leið og enn og aftur þurfti að hafa afskipti af skemmtistöðum bæjarins m.a. vegna ungmenna sem ekki höfðu aldur til að vera inni á stöðunum og eins vegna brota á reglum um opnunartíma. Þá þurfti lögreglan að sinna hinum ýmsu útköllum m.a. vegna kvartana borgaranna um […]
Við viljum betri tjaldstæði í Dalnum

Nú er komið að því, ÍBV Íþróttafélag vantar fólk til að aðstoðar í Herjólfsdal í dag og næstu daga. Það verður byrjað eftir hádegi og í kvöld, við frágang í götum og það sem lagfæra þarf undir nýjar túnþökur á nokkrum stöðum í Dalnum. Hvetjum alla sem aðstöðu hafa, til að njóta útiveru, og hjálpa […]
�?ú ert það sem þú gerir á netinu
SAFT, vakningarverkefni Heimilis og skóla um jákvæða og örugga netnotkun barna og unglinga á Netinu og tengdum miðlum, stendur fyrir opnum málþingum um allt land í apríl og maí í samstarfi við Vodafone. Þingið verður haldið í Vestmannaeyjum á morgun, miðvikudag en þingið fer fram í fundarsal Hamarsskóla og hefst klukkan 20.00. (meira…)
Selfyssingar unnu Víking í Reykjavík
Fyrsta deild karla hófst í dag þegar að fimm leikir voru á dagskrá. Selfyssingar unnu óvæntan 3-2 útisigur á Víkingi Reykjavík en þetta var fyrsti leikur liðsins í 1.deild í 15 ár. (meira…)
Ánægður með fyrsta leikinn

Matt Garner var í hlutverki fyrirliða ÍBV í fyrsta sinn en Garner er að leika sitt fjórða tímabil með liðinu. Garner átti góðan leik í öftustu vörn ÍBV, eins og reyndar flestir leikmanna ÍBV en fyrirliðinn var ánægður með sigurinn. „Þetta var nokkuð öruggt hjá okkur en við hefðum átt að geta skorað fleiri. Ég […]
Sannfærandi sigur sem hefði átt að vera stærri

ÍBV vann sannfærandi sigur á Leikni á Hásteinsvellinum í dag. Lokatölur urðu 2:0 og skoraði Atli Heimisson bæði mörk ÍBV en sigur Eyjamanna hefði í raun átt að vera mun stærri. Hins vegar var margt jákvætt að sjá í þessum fyrsta knattspyrnuleik sumarsins og ljóst að Eyjamenn mæta mun einbeittari til leiks en á sama […]
Kjálkabrotnaði en ekki höfuðkúpubrotinn

Maður hefur játað að hafa slegið annan fyrir utan skemmtistað í Vestmannaeyjum aðfaranótt laugardags. Grunur lék á tímabili að viðkomandi hefði höfuðkúpubrotnað þegar hann datt og skall með höfuðið í stétt eftir hnefahöggið. Var farið með manninn með sjúkraflugi til skoðunar á Landspítalann. Reyndist hann þó einungis vera kjálkabrotinn. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Vestmannaeyjum […]
5 konur sýna í Skálholti
Listsýning fimm kvenna úr uppsveitum Árnessýslu opnar í Skálholtsskóla í dag, sunnudag, hvítasunnudag kl. 15:00. Um er að ræða listakonurnar Sigurlínu Grímsdóttur, Katrínu Briem, Sigríði Helgu Olgeirsdóttur, Sigurlínu Kristinsdóttur og Eygló Jósefsdóttur. (meira…)
KFS fær tvo bandaríska leikmenn

3.deildarlið KFS frá Vestmannaeyjum hefur fengið tvo Bandaríkjamenn til liðs við sig. Um er að ræða Michael Brown og Shawn Dixon en þeir hafa leikið í háskóla í Atlanta í vetur. Í fyrra komu leikmennirnir til Reynis Sandgerði en þeir skiptu snemma sumars um félög, Brown fór til GG en Dixon gekk til liðs við […]
�?ttast að maður hafi höfuðkúpubrotnað

Óttast er að maður hafi höfuðkúpubrotnað eftir átök fyrir framan skemmtistað í Vestmannaeyjum í nótt. Hann var fluttur með sjúkraflugi suður til Reykjavíkur og var hann með augljósan skurð á hnakka og augabrúnum samkvæmt heimildum lögreglunnar. Þær upplýsingar fengust hjá vakthafandi lækni á slysadeild að líðan mannsins væri eftir atvikum. (meira…)
Aukaferðir vegna Vor í Árborg
Í tilefni af Vori í Árborg gengur Strætó í Árborg aukalega um Hvítasunnuhelgina, 10. – 12. maí, og helgina 17. til 18. maí. Ferðir verða skv. hefðbundinni tímaáætlun, nema að morgunferðin kl. 06:55 frá Selfossi og til baka á Selfoss kl. 08:10 fellur niður. Aukaferð verður að morgni laugardagsins 10. maí í tengslum við Hópshlaup […]