Fjárlaganefnd Alþingis í heimsókn á Litla-Hrauni
Fjárlaganefnd Alþingis heimsótti Fangelsið Litla-Hraun í gær. Forstjóri Fangelsismálastofnunar, Páll E. Winkel og forstöðumaður Fangelsisins Litla-Hrauni, Margrét Frímannsdóttir, funduðu með nefndarmönnum og sýndu þeim fangelsið. Á fundinum var farið yfir þau mál sem efst eru á baugi á Litla-Hraun svo sem uppbyggingu fangelsisins. Fjárlaganefnd óskaði eftir að fá að heimsækja fangelsið. (meira…)
Braut rúðu í ráðhúsi Árborgar
Ung kona var handtekin aðfaranótt sunnudags eftir að hún hafði brotið rúðu í ráðhúsi Árborgar á Selfossi. Konan bar því við að henni hefði liðið illa andleg og hún fundið þörf fyrir að taka upp stein og kasta í rúðuna. (meira…)
Bossinn
Ekkert orðagjálfur. Bara að kíkja þetta myndbrot. Skyldi einhver þekkja sig. (meira…)
Venni ætlar ekki að spila í sumar

Sigurvin Ólafsson mun ekki leika knattspyrnu þetta sumarið en það staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í dag. Sigurvin hefur leikið með FH undanfarin ár en tilkynnti í haust að hann hyggðist ekki leika með liðinu áfram. Hann hefur í vetur íhugað hvort hann haldi áfram knattspyrnuiðkun en hefur ekki fengið fiðringinn aftur og hefur […]
Vor í Árborg – Tónleikar í dag
Tónlistin verður ríkjandi í dag föstudaginn 9.maí á Vori í Árborg. Tónleikar barnakóra Selfosskirkju Íslenskur vorblær” verða haldnir kl.18:00 í Selfosskirkju. Ásamt barnakórunum mæta fjórir af fremstu tónlistarmönnum landsins sem munu spila með kórunum. Tónleikarnir eru hluti af fjölskylduleiknum og verður hægt að nálgast vegabréf á tónleikunum sem og að fá stimpil fyrir viðburðinn. “ […]
Fjölbreytt dagskrá um fjölskylduhelgi
Fjölskylduhelgin verður haldin í fjórða sinn nú um helgina en fjölskylduhelgin hefur vaxið með hverju árinu. Dagskrá fjölskylduhelgarinnar er fjölbreytt en hún hefst á laugardegi og síðustu dagskrárliðirnir eru á mánudaginn, annan í hvítasunnu. Markmið helgarinnar er að hvetja fjölskyldur til aukinnar samvistar og hafa gaman. (meira…)
Gaman saman sem fjölskylda
Bryddað upp á þeirri nýung að halda fjölskylduleik í tengslum við hátíðina Vor í Árborg og hefur hann hlotið nafnið „Gaman saman sem fjölskylda“. Fjölskylduleikurinn er stimpilleikur sem er ætlað að auka samverutíma fjölskyldunnar en allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi á hátíðinni. Stimplum er safnað á ákveðnum dagskrárliðum sem eru þátttakendum […]
Hóll 100 ára og Inga �?yri 65

Í tilefni af tvennum að þeim tímamótum, 100 ára afmæli Hóls og 65 ára afmæli Ingu Þyri verður opið hús að Hóli þann 10. maí, daginn fyrir Hvítasunnudag frá kl 16-19. Gaman væri nú ef ættingjar , vinir og gamlir skólafélagar ásamt þeim sem tengjast sögu Hóls á einhvern hátt létu sjá sig og gleddust […]
Upphitunarkvöld fyrir fótboltann í kvöld

Nú líður að fyrsta leik karlaliðs ÍBV í knattspyrnu en á mánudaginn tekur liðið á móti Leikni á Hásteinsvellinum klukkan 17.00. Í Vaktinni er ÍBV-liðið kynnt til sögunnar en í kvöld verður blásið til upphitunar fyrir fótboltann með upphitunarkvöldi í Týsheimilinu. Fjörið byrjar klukkan 20.30 en upphitunarkvöldið heppnaðist mjög vel fyrir ári síðan. (meira…)
Lyklar að viðburðum á Vori í Árborg
Gestum hátíðarinnar Vor í Árborg, sem sett var í dag, gefst kostur á að kaupa sér lykil að þeim viðburðum sem aðgangseyrir er að. „Með kaup á lykli geta menn sparað þúsundir króna,“ segir Andrés Sigurvinsson, verkefnisstjóri íþrótta- forvarna- og menningarmála sveitarfélagsins og einn skipuleggjandi hátíðarinnar. (meira…)
Elfar Guðni opnaði í kvöld sína 47. málverkasýningu
Elfar Guðni Þórðarson listmálari á Stokkseyri opnaði sína 47. málverkasýningu frá upphafi kl. 20:00 í kvöld í sýningarsal sínum Svartakletti í Lista- og menningarverstöðinni á Stokkseyri. Þetta er 35. hvítasunnusýningin samfellt frá árinu 1974 Fjöldi manns var við opnunina og seldust mörg málverk. (meira…)
Litla – Vesturbúðin opnaði í dag
Á Vesturbúðarhólinn er komið lítið hús. Hér er um að ræða söluhús með upplýsingum fyrir ferðamenn. Regína Guðjónsdóttir handverkskona á Eyrarbakka mun reka Litlu-Vesturbúðina, eins og húsið hefur verið nefnt, í sumar og hafa til sölu ýmsa áhugaverða handverksmuni. (meira…)
Ekið á vespu við nýju umferðarljósin

Um tvöleytið í dag fékk lögregla tilkynningu um að slys á gatnamótum Bessastígs og Heiðarvegs en þar var fyrr í vetur komið upp umferðarljósum. Pallbíll, sem ekið var suður Heiðarveg, lenti þá á vespu en á henni voru tvær unglingsstúlkur á fimmtánda ári. Við höggið köstuðust þær á lítinn jeppa sem kom úr gagnstæðri átt […]
Vor í Árborg hefst í dag og stendur til 18. maí næstkomandi.
Afmælis- og menningarhátíðin Vor í Árborg verður sett í dag 8. maí og stendur til 18. maí næstkomandi. Á þessum ellefu dögum verður gestum og gangandi boðið upp á ýmsan fróðleik, skemmtun og og afþreygingu. Tónlistin verður í fyrirrúmi, kórar, klassík, jazz, rokk og dægurlög og þar mun gleðin rísa hæst þegar „Saga sveitaballanna” verður […]
Arnar besti leikmaðurinn

Arnar Pétursson úr Haukum var útnefndur besti leikmaðurinn í umferðum 22-28 í N1 deild karla í handknattleik en viðurkenningar til þeirra sem þóttu skara frammúr á þessu tímabili voru afhentar í dag. (meira…)
�?k of hratt á ótryggðum bíl
Lögreglumenn frá Selfossi stöðvuðu í gær bíl, eftir að hann hafði mælst á 129 kílómetra hraða. Fyrir það fær ökumaðurinn 70 þúsund króna sekt. Þegar lögreglumenn voru að gera skýrslu um málið í nótt kom í ljós að bíllinn var auk þess ótryggður. Fóru þeir því heim til ökumannsins og klipptu númerin af bílnum. Vísast […]
ÍBV spáð öðru sæti

Íslenskar Getraunir stóðu fyrir spá á meðal þjálfara í 1. karla þar sem þeir spáðu fyrir um gengi liðanna í deildinni. ÍBV er spáð öðru sæti deildarinnar, Víkingum því efsta en Víkingar var eina liðið sem féll úr efstu deild síðasta sumar vegna fjölgunar í deildinni. Njarðvík og KS/Leiftri er spáð falli en nýliðum Selfoss […]
Fangar snúa við blaðinu
Síbrotamaður segist sjá fram á að geta snúið lífi sínu til betri vegar eftir að hann fékk vistun á meðferðargangi á Litla-Hrauni. Afbrotaferillinn er langur og fangavistin var jafnan deyfð með fíkniefnum. Mbl sjónvarp heimsótti fangelsið og fann að vonarneisti hefur kviknað innan veggja þess. Fangarnir á Litla-Hrauni hafa ýmsa aðra hæfileika en að brjóta […]
Samningur um meðferðargang á Litla Hrauni
Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, og Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, undirrituðu í dag samning sem tryggir fé til að standa undir rekstri við sérstakan meðferðargang í fangelsinu á Litla-Hrauni þar sem fangar sem kjósa svo fá hjálp við að vinna sig út úr vítahring andfélagslegs hugarfars, afbrotahegðunar og vímuefnamisnotkunar. (meira…)
Eldri borgarar fá uppbót
Ellilífeyrisþegar sem ekki fá eftirlaun úr lífeyrissjóðum munu fá sérstaka uppbót ef frumvarp sem félagsmálaráðherra hefur lagt fram verður að lögum. Uppbótin getur numið allt að 25 þúsund krónum á mánuði en gert er ráð fyrir að um fimm þúsund einstaklingar fái uppbót á sín eftirlaun. (meira…)