Matreiðslunámskeið á Litla-Hrauni

Úlfar Finnbjörnsson meistarakokkur hélt matreiðslunámskeið fyrir fanga á meðferðarganginum á Litla-Hrauni í síðustu viku. Farið var yfir helstu atriði varðandi meðferð, geymslu og matreiðslu nokkurra fisktegunda að ósk þeirra sem þar dvelja. Þá fór Úlfar yfir helstu atriði varðandi ræktun kryddplantna. Námskeiðið er haldið í samstarfi við Gestgjafann. (meira…)

Flóahreppur gæti stöðvað virkjun

Flóahreppur getur komið í veg fyrir að Urriðafossvirkjun rísi en það gæti þýtt að ekki verði hægt að skipuleggja neitt annað í staðinn á næstunni, segir oddviti hreppsins. Urriðafossvirkjun þarf að komast að aðalskipulag í 4 sveitarfélögum.Þrjú þeirra hafa þegar sett virkjunina inn á skipulagið: Ásahreppur, Rangárþing ytra og Skeiða- og Gnúpverjahreppur. Flóahreppur er ekki […]

Annasamir dagar

Það er mikið búið að gerast og enn meira framundan. Fór á sjó miðvikudag, fimmtudag og föstudag, fiskaði einhver 4 tonn, mest stórþorskur og veðurspáin segir að það verði sjóveður á morgun og hugsanlega á fimmtudag, svo ég náði næstum því að beita upp með því að beita alla helgina, en samt ekki alveg. Um […]

Friðrik og Mary í Húsinu á Eyrarbakka

FRIÐRIK krónprins Danmerkur og eiginkona hans Mary krónprinsessa eru nú í Húsinu á Eyrarbakka sem var hús dönsku kaupmannana á Eyrarbakka um aldir. Áður fóru þau í kirkjuna og skoðuðu altaristöfluna en hún er eftir Louise drottningu Kristjáns IX, formóður krónprinsins. Heimsókninni á Suðuströndina lýkur svo með kvöldverði í veitingahúsinu Við Fjöruborðið á Stokkseyri. (meira…)

Danska konungsfólkið að koma á Eyrarbakka

FRIÐRIK krónprins Danmerkur og eiginkona hans Mary krónprinsessa eru í heimsókn á Suðurlandi. Nú um kl. 18:00 koma hinir konunglegu gestir til Eyrarbakka eftir smá tafir við Gullfos og Geysi. Altaristaflan í kirkjunni verður skoðuð en hún er eftir Louise drottningu Kristjáns IX, formóður krónprinsins. Einnig verður farið í Húsið. Síðan verður kvöldverður í veitingahúsinu […]

Fékk verðlaunapeninginn 40 árum seinna

Gísla Ásmundssyni fyrrum leikmanni Íslandsmeistaraliðs ÍBV í 4. flokki 1964, hlotnaðist sá óvænti heiður að fá verðlaunapeninginn sinn 40 árum eftir sigurinn. Þannig er að Gísli var varamarkvörður fyrstu Íslandsmeistara ÍBV. Af einhverjum ástæðum fórst fyrir að taka Gísla með í hóp meistaranna á sínum tíma. Nú hefir hins vegar verið úr því bætt, þegar […]

Skemmdarverk á Kirkjugerði

Hún var heldur óskemmtileg aðkoman í gærmorgun þegar starfsmenn leikskólans Kirkjugerði mættu í vinnuna. Búið var að vinna skemmdir á leikkastala í bakgarði leikskólans þannig að ekki er hægt að hleypa börnunum í hann enda slysahættan mikil. Eins og sjá má á myndunum hér að neðan er tjónið talsvert. (meira…)

Konungleg máltíð í kvöld

FRIÐRIK krónprins Danmerkur og eiginkona hans Mary krónprinsessa eru í heimsókn á Íslandi. Síðdegis um kl. 17 liggur leið gestanna til Eyrarbakka, þar sem altaristaflan í kirkjunni verður skoðuð en hún er eftir Louise drottningu Kristjáns IX, formóður krónprinsins. Síðan verður kvöldverður í veitingahúsinu Við Fjöruborðið á Stokkseyri. (meira…)

Luka Kostic með fyrirlestur fyrir unga knattspyrnumenn

Luka Kostic landsliðsþjálfari U-17 og U-21 heldur fyrirlestur fyrir leikmenn 2 og 3ja flokks karla og kvenna í knattspyrnu. Umræðuefnið eru einstaklingsæfingar og fleira. Allir knattspyrnuþjálfarar ÍBV eru einnig hvattir til að mæta á fundinn sem er á miðvikudag kl 17:30 í Týsheimilinu. Luka kom þrisvar sinnum á síðasta ári til Eyja og hélt fyrirlestra […]

Opnun Gallerý Gónhóll

Árni Valdimarsson og fjölskylda ætla að blása lífi í gamla hraðfrystihúsið á Eyrarbakka í sumar með því að starfrækja þar Gallerý Gónhól, listamiðstöð, handverksmarkað og sölumarkað með nýja og notaða hluti. Í tilefni af Vorhátíð Árborgar verður opnað með pompi og prakt þann 8.maí kl. 18.00 en sú hátíð mun standa í 10 daga. (meira…)

U.M.F.E. 100 ára í dag.

Ungmennafélag Eyrarbakka fékk fyrir skömmu úthlutað úr menningasjóði Árborgar kr. 50.000 til að gefa út afmælisrit í tilefni 100 ára afmælis félagsins. U.M.F.E var stofnað 5. maí 1908. Í forsvari fyrir félagið var í fyrstu P.Níelsen í Húsinu en hann var mikill frumkvöðull um íþróttir og þjálfaði ungmenni á Eyrarbakka um langt skeið. (meira…)

Vor í Árborg verður haldin 8. til 18 maí næstkomandi.

Afmælis- og menningarhátíðin Vor í Árborg verður haldin 8. til 18 maí næstkomandi. Á þessum tíu dögum verður gestum og gangandi boðið upp á ýmsan fróðleik, skemmtun og og afþreygingu. Tónlistin verður í fyrirrúmi, kórar, klassík, jazz, rokk og dægurlög og þar mun gleðin rísa hæst þegar „Saga sveitaballanna” verður rifjuð upp og helstu hljómsveitir […]

ÍBV Íslandsmeistari í 6. flokki kvenna

C-lið ÍBV í 6. flokki kvenna, varð um helgina Íslandsmeistari í handbolta. Síðasta fjölliðamót vetrarins fór fram í Eyjum um helgina en liðin vinna sér inn stig á hverju móti yfir veturinn. Þegar upp var staðið var C-liðið efst með 38 stig eða átta stigum meira en næsta lið og er því Íslandsmeistari. B-lið ÍBV […]

Aðsúgur gerður að lögreglumönnum

Lögreglan hafði að vanda í mörg horn að líta í vikunni sem leið. Nokkuð var um pústra og þá var flösku hent í lögreglubifreið fyrir utan veitingastaðinn Drífanda. Tvær líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglu í vikunni sem leið og áttu þær sér báðar stað aðfaranótt 1. maí sl. á veitingastaðnum Drífanda. Í fyrra tilvikinu var […]

Farþegum FÍ til og frá Eyjum fjölgar

Fjöldi farþega í flugi Flugfélags Íslands til og frá Vestmannaeyjum jókst um 27% fyrstu fjóra mánuði ársins 2008 miðað við sama tímabil á fyrra ári. Félagið segir, að um sé að ræða marktæka breytingu á fjölda erlendra ferðamanna og séu bókanir fyrir sumarið mjög góðar. (meira…)

TM aðalstyrktaraðili Pæjumótsins í Eyjum

Tryggingamiðstöðin (TM) og ÍBV Íþróttafélag hafa undirritað samstarfssamning til tveggja ára. Samkvæmt honum verður TM aðalstyrktaraðili Pæjumótsins í Eyjum, og heitir mótið nú Pæjumót TM Eyjum. Pæjumótið, sem er eitt stærsta knattspyrnumót landsins hvert ár, fer fram 12. til 14. júní næstkomandi og er fyrir stúlkur í 5.flokki eða á aldrinum 11-12 ára. (meira…)

Rekstur Vestmannaeyjabæjar jákvæður á síðasta ári

Bæjarstjórn Vestmannaeyja fjallaði um ársreikninga Vestmannaeyjabæjar og stofnana bæjarins á fundi sínum síðastliðinn föstudag en fundurinn var haldinn í fundarherbergi Hitaveitu Suðurnesja. Samkvæmt fundargerð er hagnaður af rekstri Vestmannaeyjabæjar í flestum tilvikum, einungis er tap á rekstri Hafnarsjóðs og svo að sjálfsögðu er tap á félagslega íbúðakerfinu. Reyndar er einnig lítillegt tap á Náttúrustofu Suðurlands […]

�?Faðmaði stúlkurnar og smellti kossi�?

Séra Gunnar Björnsson, sóknarprestur á Selfossi, telur að kærur vegna kynferðislegrar áreitni séu á misskilningi byggðar. Tvær unglingsstúlkur hafa kært hann fyrir kynferðislega áreitni. Lögreglan rannsakar málið. Gunnar segir að nú sé of seint að setjast niður og greiða úr flækjunni. „Það hefur lengi verið minn stíll að faðma fólk að mér. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.