�?kumaður lést í Kömbunum
Ökumaður bifreiðar sem ekið var austur Suðurlandsveg í Kömbum lést þegar bifreið hans fór út af veginum og niður fyrir Hamarinn ofan Hveragerðis. Maðurinn, sem var á sjötugsaldri, var einn í bílnum. (meira…)
Friðrik krónprins og Mary í heimsókn á Suðurlandi
FRIÐRIK krónprins Danmerkur og eiginkona hans Mary krónprinsessa koma í heimsókn til Íslands 5.-8. maí næstkomandi í boði forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar, og Dorrit Moussaieff forsetafrúar. (meira…)
Ekið á unga stúlku á Selfossi
Ekið var á unga stúlku á Selfossi í kvöld. Ökumaður bifreiðarinnar fylgdi stúlkunni heim til hennar þar sem hann talaði við foreldra stúlkunnar. Þeir fóru með hana á Heilbrigðisstofnun Suðurlands til skoðunar hjá lækni og var hún síðan flutt áfram á slysadeild Landspítalans í Fossvogi til frekari rannsókna. (meira…)
ÍBV endaði í neðsta sæti

Karlalið ÍBV endaði í neðsta sæti N1 deildarinnar en þrátt fyrir að vera löngu fallið, skýrðist það ekki fyrr en í dag hvort liðið endaði í neðsta eða næst neðsta sæti. Þrátt fyrir ágætis gengi á lokakafla Íslandsmótsins tókst Eyjamönnum ekki að komast upp úr neðsta sætinu, þar sem liðið hefur setið sem fastast. Í […]
Mikið tap á rekstri Vinnslustöðvarinnar

Tap á rekstri Vinnslustöðvarinnar var 1153 milljónir króna á fyrsta fjórðungi ársins en á sama tímabili á síðasta ári var 765 milljóna króna hagnaður á rekstrinum. Segir félagið að skýringa þessara breytinga er fyrst og fremst að leita í fjármagnsliðum félagsins. Heildartekjur félagsins voru 1623 milljónir króna en 1750 milljónir króna á sama tímabili í […]
Sigurður skoraði átta og Elverum er Noregsmeistari

Sigurður Ari Stefánsson skoraði átta mörk þegar Elverum tryggði sér Noregsmeistaratitilinn í handknattleik með sigri á Drammen. Leikurinn fór fram í Bergen og var úrslitaleikur um titilinn en leikurinn endaði 33:31 fyrir Elverum. Ingimundur Ingimundarson skoraði sjö mörk en þjálfari liðsins er Axel Stefánsson og var þetta síðasti leikur liðsins undir hans stjórn. (meira…)
Góðum körfuboltavetri lokið

Fimmtudaginn 1. maí fór fram lokahóf yngri flokka körfuboltans hjá ÍBV. Árangur körfuknattleiksliða frá Vestmannaeyjum hefur aldrei verið betri og því næg ástæða til að fagna góðum árangri en auk þess voru fjölmörg einstaklingsverðlaun veitt. Leikmenn fjölmenntu auðvitað á hófið en fjölmargir foreldrar einnig og þar sem veðurblíðan var einstök á fimmtudag, þá skelltu allir […]
Söngleikur í Versölum sunnudaginn 4. maí klukkan 14:00
Síðustu tónleikar Tóna við hafið á þessum vetri verða sunnudaginn 4. maí, þegar fluttur verður söngleikurinn Lifandi skógur í Versölum, Ráðhúsi Ölfuss.Tónleikarnir eru skipulagðir í samstarfi við Tónlistarskóla Árnesinga og Grunnskóla Þorlákshafnar. (meira…)
Hjálma- og hjóladagurinn í dag

Kiwanisklúbburinn Helgafell, Eimskip og Flytjandi ætla að gefa börnum grunnskólanna, sem byrjuðu í 1. bekk síðastliðið haust, öryggishjálma. Hjálmarnir verða afhentir í dag, laugardag, 3. maí kl. 11 á planinu við Kiwanishúsið. (meira…)
Hreinsunardagur á morgun

Á morgun, laugardaginn verður hinn árlegi hreinsunardagur á Heimaey. Félagasamtök í Eyjum hafa í gegnum tíðina tekið þátt í þessu verkefni og hefur fyrirkomulagið gengið mjög vel. Hið sama verður uppi á teningnum í ár, félagasamtökum verður úthlutað sérstökum svæðum sem þau síðan hreinsa. Starfsmenn Sorpeyðingastöðvarinnar munu svo vera hópunum innan handar. (meira…)
Herrakvöld fótboltans í kvöld

Í kvöld verður haldið Herrakvöld knattspyrnudeildar ÍBV. Herrakvöldið verður haldið í Vélasalnum og opnar húsið klukkan 19.30. Í boði verður fínasti grillmatur, skemmtiatriði, bögglauppboð og margt fleira. Ræðumaður kvöldsins er bakarinn góðkunni Magnús Bergur Sigmundsson. Þá verður boðið upp á léttar veitingar á vægu verði. Aðgangur er 3500 krónur en áhugasamir geta haft samband við […]
Hestamannakaffi Umf. Baldurs
Hestamannakaffi Umf. Baldurs, sem frestað var í apríl, verður haldið í Þingborg laugardaginn 3. maí næstkomandi. Nú er um að gera að mæta í kaffi og sýna þá gæðinga sem fólk hefur alið í vetur og monta sig aðeins. Húsið opnar kl. 13:00 og stendur kaffið til 17:00. Allir eru hvattir til að mæta, á […]
Miklu munar á tilboðum og kostnaðaráætlun

Á þriðjudag voru opnuð tilboð í jarðvegsframkvæmdir vegna byggingar fjölnota íþróttahúss í Vestmannaeyjum. Sex tilboð bárust og voru öll langt yfir kostnaðaráætlun. Fyrirtæki sem buðu í verkið eru: Borverk ehf. 49.3 milljónir króna, Nettur ehf. 52 milljónir, Hallgeir ehf., Bíldrangur ehf., Sigurgeir L. Ingólfsson 55.5 milljónir, Íslenska Gámafélagið ehf. 64,7 milljónir, GT Verktakar ehf. 66.4 […]
�?fingaleikur í Vík í dag

ÍBV leikur síðasta æfingaleik sinn fyrir Íslandsmótið í dag 1. maí. Leikurinn er gegn ÍA og átti upphaflega að fara fram í Eyjum en þar sem vellirnir eru ekki tilbúnir var ákveðið að flytja hann til Víkur í Mýrdal. Leikurinn hefst klukkan 14.00 og er gott innlegg í 1. maí dagskrána í Vík. (meira…)
Birkir Kristinsson í Fram

Gamla kempan Birkir Kristinsson hefur fengið félagaskipti yfir í Fram frá ÍBV. Ögmundur Kristinsson varamarkvörður Framara meiddist í leik með U19 ára landsliðinu fyrr í vikunni og því mun Birkir vera á varamannabekk Fram í kvöld þegar að liðið mætir Val í úrslitaleik Lengjubikarsins. (meira…)
Frábærir Eagles heiðurstónleikar í gær

Í gærkvöldi voru haldnir Eagles heiðurstónleikar í Höllinni en þeir Eyjólfur Kristjánsson, Sigurjón Brink, Edgar Smári og Davíð Smári flutu helstu smelli bandarísku hljómsveitarinnar Eagles ásamt afar vel skipaðri hljómsveit. Tónleikarnir voru hreint út sagt frábærir og rúmlega 400 áhorfendur sem fylltu Höllina skemmtu sér prýðilega. (meira…)
Enn lifir bára.
Árið 1942 standa Eyrbekkingar að stofnun útgerðarfélags og hraðfrystistöðvar sem átti eftir að breyta afkomumöguleikum verkafólks á Eyrarbakka um langt skeið. Forustumenn verkalýðsfélagsins Bárunnar lágu ekki á liði sínu við að eggja hreppsnefndarmenn og aðra til að stíga fram á veginn í hinum ýmsu framfaramálum sem snertu alla þorpsbúa. Þá eru liðin um 40 ár […]
1. maí – Kaffisala að Stað á Eyrarbakka
1. maí – Kaffisala að Stað á Eyrarbakki Kaffisala verður á Stað, Eyrarbakka í dag fimmtudaginn 1. maí, uppstigningardag, kl.15:00 -17:00. Allur ágóði rennur til dvalarheimilisins Sólvalla á Eyrarbakka. (meira…)
Vortónleikar Söngsveitar Hveragerðis
Söngsveit Hveragerðis heldur árlega vortónleika í Hveragerðiskirkju, á morgun fimmtudaginn 1. maí, uppstigningardag, kl. 17:00 Á efnisskrá er íslensk og erlend tónlist. Stjórnandi Söngsveitarinnar er Margrét Stefánsdóttir og undirleikari á píanó er Ester Ólafsdóttir. Margir einsöngvarar syngja með kórnum: (meira…)
Kynningarfundur fyrir Ungmennafélag Íslands
Sunnudaginn 27. apríl kom hópur frá Ungmennafélagi Íslands í heimsókn í Árborg og skoðaði íþróttaaðstöðu Sveitarfélagsins. Bragi Bjarnason íþrótta- og tómstundafulltrúi hélt kynning á íþrótta- og tómstundamálum í Sveitarfélaginu fyrir hópinn í íþróttahúsinu Iðu. Þar var farið yfir stöðuna í Árborg í dag og hvað væri á döfinni í náinni framtíð. (meira…)