Wenger heimsótti Skipalyftuna

Þau eru margvísleg verkefnin sem Skipalyftan tekur að sér. Í vikunni fengu þeir frekar óvenjulegan viðskiptavin inn á gólf til sín. Þar var mættur hrúturinn Wenger, sem er landsmönnum kunnur af síðum Fréttablaðsins og vísis.is ásamt eiganda sínum Hauk á Reykjum og höfðu þeir félagar allt á hornum sér. (meira…)
Fengu höfðinglegar móttöku í Grímsey

Ferðin til Grímseyjar gekk vel. Morgunhlaðborð í Grímsey var í boði Kvenfélagsins, Sveitarfélagsins og Kiwanis manna sem einnig styrktu þau málefnið um 100.000 krónur og erum við þeim ævinlega þakklát síðan fengu áhafnarmeðlimir persónulega skoðunarferð um eyjuna og súpu í boði veitingarstaðsins Kríunar sem kom sér vel fyrir sjóferðina sem var fyrir höndum. Takk Grímseyingar […]
Tryggingamiðstöðin og Margrét Lára
Tryggingamiðstöðin og knattspyrnugoðið Margrét Lára Viðarsdóttir hafa opnað heimasíðu, þar sem er að finna ýmsar upplýsingar um þess dáðu knattspyrnukonu. (meira…)
Jónsmessuhátíð á Eyrarbakka hefst í kvöld
Dagskráin hefst í kvöld, 27. júní og verður farið út í náttúruna í fylgd Jóhanns Óla Hilmarssonar fuglafræðings á Stokkseyri, en hann mun leiða göngu um friðland fugla á Ölfusárbökkum. Lagt verður af stað frá Eyrarbakkakirkju kl. 21:30 með rútu og komið aftur að kirkjunni undir miðnætti. Samverustundinni lýkur með því að Jörg Sondermann organisti […]
50 milljónum króna í jarðvegsframkvæmdir við nýja Knattspyrnuhúsið við Hásteinsvöllinn

Á fundi framkvæmda- og hafnarráðs, sem haldinn var í gær, gerði Ólafur Snorrason, framkvæmdastjóri Umhverfis- og framkvæmdasviðs, grein fyrir viðræðum við verktaka um jarðvegsframkvæmdir við fjölnota íþróttahús við Hásteinsvöllínn. – Verkið hefur tekið nokkrum breytingum frá því að öllum tilboðum í það var hafnað þann 23. maí 2008. (meira…)
Lögreglan hefur upp á þjófum

Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur upplýsti í gær þrjú þjófnaðarmál sem tilkynnt hafa verið til lögreglu á undanförnum þremur mánuðum. Um er að ræða þjófnað á skjávarpa og effect-ljósi sem Leikfélag Vestmannaeyja var með í láni frá Vestmannaeyjabæ. (meira…)
Shellmótið verður sett í kvöld

Eitt fjölmennasta knattspyrnumót ársins verður flautað á þegar Shellmótið verður sett á Týsvellinum í kvöld. Mótið, sem er það 18. í röðinni, fer nú fram í fyrsta sinn á þremur dögum, í stað fjögurra áður og lýkur því næstkomandi laugardag. Meðal gestadómara mótsins er Mike Riley, afar þekktur dómari í ensku úrvalsdeildinni og víðar. (meira…)
Hafa virkjanir áhrif á hrygningu þorsks?
Er hugsanlegt að takmörkun á framrennsli ferskvatns til sjávar á vorin vegna virkjana í stórám hafi áhrif á hrygningarstöðvar þorsks við suðurströndina? Þetta er ein af þeim spurningum sem leitast verður við að svara í nýrri rannsókn. Fyrir skömmu hófst rannsókn sem eflaust á eftir að vekja mikla athygli þegar niðurstöður verða kynntar. (meira…)
Sísí og stelkurinn

Einn af okkar tryggustu lesendum er Sigríður Högnadóttir, Sísi í Tryggingamiðstöðinni. Hún sendir okkur oft myndir og þá helst náttúrulífsmyndir enda hefur hún einstakt auga fyrir náttúrunni og því sem þar er að gerast. (meira…)
Nýr konsúll Dana í Eyjum

Sigríður Jakobsdóttir er nýr ræðismaður Dana í Vestmannaeyjum. Sigríður tekur við af manni sínum Eyjólfi Martinssyni sem hefur verið ræðismaður Dana undanfarin ár. Danski sendiherrann Lasse Reimann setti Sigríði inn í embættið við hátíðlega afhöfn á heimili þeirra hjóna á þriðjudag. (meira…)
Fyrsta slætti víða lokið
Allmargir bændur á Suðurlandi hafa nú þegar lokið 1. slætti sem hlýtur að teljast óvenju snemmt, þ.e. að ljúka honum í júní. Víðast hvar hefur viðrað vel til heyskapar, verið góður þurrkur og ættu því að hafa náðst hey með hámarksgæðum. (meira…)
Flugumferðarstjórar stöðva flug í fyrramálið

Boðuð verkföll flugumferðarstjóra munu hafa mikla röskun í för með sér fyrir innanlandsflugið. Ekkert verður flogið innanlands þá fjóra klukkutíma, sem verkfallið stendur hvern dag. Allt flug á Bakkaflugvöll fellur því niður í fyrramálið og óvíst hvenær Flugfélag Íslands getur flogið til Eyja á morgun. (meira…)
Nýr framkvæmdastjóri Skipalyftunnar

Sindri Ólafsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Skipalyftunnar. Tók hann við starfinu 1. júní sl. Sindri er 25 ára gamall, og er að ljúka hagfræðinámi. Kærastan hans Hildur Sólveig Sigurðardóttir, er sjúkraþjálfari og starfar sem slíka á Sjúkrahúsinu hér. (meira…)
Suðurlandsvegi lokað í nótt
Vegna malbikunarframkvæmda verður Suðurlandsvegi lokað við Selfoss frá Ölfusárbrú að Arnbergi frá kl. 24 í kvöld til kl. 5. Lögreglan á Selfossi biður vegarendur að hafa lokunina í huga og gera viðeigandi ráðstafanir, hafi þeir ætlað að fara um veginn á þessu tímabili. (meira…)
�?tflutningur á kindakjöti með minna móti

Útflutningur á kindakjöti hefur verið með minna móti það sem af er árinu. Búið er að flytja út nánast alla útflutningsskyldu ársins 2007 en lækkun gengis krónunnar undanfarna mánuði hefur gert útflutning hagstæðari. Það virðist þó ekki hafa ýtt undir hann að magni til, því útflutningur á sama tíma árið 2007 var 248,8 tonn (skv. […]
Eru á leið til Grímseyjar

Verkefnið Kraftur í kringum Ísland, sem ýtt var úr vör á 17. júní er nú á leið til Grímseyjar. Hópurinn heldur úti heimasíðu þar sem nálgast má helstu fréttir ferðinni. Átta manns sigla á tveimur tuðrum og er ferðin farin til að vekja athygli á Krafti, stuðningsfélagi fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein. […]
Sex í haldi fyrir ólöglega skartgripasölu
Lögreglan á Selfossi handtók fjóra karla og tvær konur fyrir ólöglega skartgripasölu. Skartgripasalarnir sögðu að um átján karata gull væri að ræða en svo var ekki. Glingrinu var smyglað hingað til lands í bíl. Samkvæmt heimildum Vísis voru skartgripirnir sannkallað glópagull. (meira…)
Erum að makrílveiðum suðaustur af landinu
Við Strákarnir á Huginn erum búnir að vera duglegir hér síðustu daga, við eru að fiska makríl, hann er aðeins síldar blandaður þannig að við höfum flokkað alla síld frá og flakað og erum við komnir með um 80 tonn í lest af frosnum síldarflökum og um 700-800 tonn af makríl, með þessu erum við […]
Reisum knattspyrnuhúsið í Löngulág frekar en við Hásteinsvöll

Fyrir nokkru voru opnuð tilboð í jarðvegsvinnu við nýja knattspyrnuhúsið sem áætlað er að reisa vestan við Týsheimilið, langþráð hús, sem íþróttahreyfingin telur forsendu fyrir því að knattspyrnufólk í Eyjum geti áfram verið meðal þeirra bestu í knattspyrnunni. Vonandi verður knattspyrnuhús risið áður en langt um líður. (meira…)
Jónsmessa í Stafkirkjunni

Það eru ekki allir með það á hreinu af hverju við tölum um Jónsmessu og hver hann var þessi Jón. Til að minnast þess verður haldin helgistund í Stafkirkjunni á Heimaey á Jónsmessunni, í dag kl. 18. Védís Guðmundsdóttir og Árni Óli Ólafsson annast tónlistarflutninginn. Védís mun syngja tvo nýja sálma og verður það frumflutningur […]