�?tboð á – Krýsuvíkurvegur – �?orlákshafnarvegur hefst í dag

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í gerð Suðurstrandarvegar (427), á milli Krýsuvíkurvegar og Þorlákshafnarvegar. Verkið felst í nýbyggingu Suðurstrandarvegar á 33,6 km löngum kafla ásamt 2,3 km löngum tengingum við hann, smíði 12 m steyptrar bitabrúar á Vogsós neðan Hlíðarvatns í Selvogi, auk ræsa, grjótvarnargarða, reiðstígs og girðinga. (meira…)

Báran byggir sumarhús á Flúðum

Báran stéttarfélag verkafólks í Áressýslu hefur lokið við byggingu tveggja veglegra orlofshúsa á Flúðum. Húsin eru 100 fm. að stærð búin heitum potti og öðrum nútíma þægindum. Það voru SG hús á Selfossi sem sá um byggingu húsana sem voru formlega tekin í notkun síðastliðinn fimtudag. Í framhaldinu mun Báran hefja byggingu á þriðja orlofshúsinu […]

Herjólfi seinkar

Seinkum verður á ferðum Herjólfs í dag vegna vélarbilunar. Stefnt er að því að ferð Herjólfs sem áætluð var frá Vestmannaeyjum klukkan 8:15 í morgun verði farin klukkan 9:30. Þetta mun einnig valda seinkum frá Þorlákshöfn síðar í dag en ekki liggur fyrir hversu mikil sú seinkun verður. (meira…)

Bryggjuhátíð á Stokkseyri

Bryggjúhátíð Brú til brottfluttra” verður haldin á Stokkseyri dagana 10. júlí til 14. júlí n.k. Það eru Hrútavinir við Suðurströndina sem hafa forystu um hátíðina í umboði breiðfylkingar meðal heimamanna. Þetta er fimmta Bryggjuhátíðin og að þessu sinna eru sérstakir samstarfsaðilar Ungmennafélag Stokkseyrar sem fagnar 100 ára afmæli og Búnaðarfélag Stokkseyrarhrepps sem fagnar 120 ára […]

Fjölmenni á verðeldi í Eyrarbakkafjöru

Formlegri dagskrá Jónsmessuhátíðar á Eyrarbakka lauk með Jónsmessubrennu í fjörunni vestan við þorpið þar sem Eyrbekkingurinn Íris Böðvarsdóttir á Óseyri ávarpaði samkomugesti. Hið margrómaða Bakkaband spilaði undir söng og dansi. Fjölmenni var við brennuna og vel tekið undir í söng og stiginn dans með tilþrifum. (meira…)

Jafntefli hjá KFS og KV

Ekkert mark var skorað í leik KFS og KV sem áttust við á Helgafellsvelli í dag. Liðin leika í A-riðli 3. deildar en hafa bæði átt misjöfnu gengi að fagna, KV þó gengið öllu betur. Leikurinn var tilþrifalítill, liðin skiptust nánast á að sækja án þess þó að skapa sér nein veruleg marktækifæri. Besta færið […]

Verslun á Selfossi blómstrar í kjölfar jarðskjálftans

Verslun á Selfossi blómstrar sem aldrei fyrr í kjölfar Suðurlandsskjálftanna og hafa flatskjáir notið sérstakra vinsælda. Minnir ástandið á jólavertíðina og rúmlega það, að sögn Orra Smárasonar verslunarstjóra BT á Selfossi. (meira…)

Jörg Sondermann lék í Eyrarbakkakirkju á Jónsmessuhátíðinni

Kl. 17:00 í dag lék Jörg Sondermann á orgel Eyrarbakkakirkju. Að þessu sinni lék hann barokkverk og spuna eins og honum einum er lagið. Magnús Karel Hannesson, fyrrum oddviti og bæjarstjóri á Eyrarbakka, flutti tölu áður og gerði grein fyrir upphafi Jónsmessuhátíðarinnar fyrir 10 árum. (meira…)

Selfoss tapaði stigum gegn KS/Leiftri

KS/Leiftur og Selfoss gerðu 1-1 jafntefli í 1. deild karla í dag en lið Selfoss er í öðru sæti deildarinnar og hefur því misst topplið ÍBV fimm stigum fram úr sér í toppbaráttunni. KS/Leiftur lyfti sér upp úr fallsæti með stiginu, eru í tíunda sæti af 12 með 6 stig. Smelltu hér til að sjá […]

Jarlinn af Gónhól afhjúpar skilti

Kl 13:00 í dag afhjúpaði Vigfús Markússon, Jarlinn af Gónhól, með aðstoð Tómasar Grétars Sigfússonar skilti með örnefnum í fjörunni framan við Eyrarbakka. Skiltið er á sjógarðinum við hús Vigfúsar og fjölskyldu, Garðshorn, vestan Gónhóls. Fjölmenni var við athöfnina og buðu húsráðendur síðan til sjávarréttasúpu af bestu gerð. (meira…)

Metár hjá �?Marka-Láru�?

Margrét Lára Viðarsdóttir setti nýtt met í leiknum á móti Slóveníu á laugardaginn þegar hún varð fyrsti A-landsliðsmaður Íslands, karla eða kvenna, til þess að skora tíu landsliðsmörk á einu ári. Hún bætti síðan tveimur mörkum við í stórsigri á Grikkjum í fyrrakvöld. Margrét Lára er nú komin með þrettán mörk í þeim átta leikjum […]

Shellmótinu lýkur í kvöld

Einu af glæsilegustu Shellmótum síðari ára lýkur í dag með úrslitaleikjum en mótið hófst að morgni fimmtudags. Þetta er í fyrsta sinn sem mótinu lýkur á laugardegi en sú tilraun hefur fengið góð viðbrögð og verður þessi háttur að öllum líkindum hafður á næstu ár. Mótið í ár hefur gengið afar vel, um 1000 þátttakendur […]

KFS tekur á móti KV í dag

Í dag klukkan 14.00 tekur KFS á móti KV í A-riðli 3. deildar í knattspyrnu. KFS fór illa af stað í Íslandsmótinu en hafa aðeins rétt úr kútnum í síðustu leikjum og hafa m.a. unnið síðustu tvo heimaleiki sína. Þrátt fyrir það er KFS í næst neðsta sæti riðilsins með sex stig en KV er […]

KS/Leiftur- Selfoss á Siglufirði í dag laugardaginn 28. júní kl.16.00

Næsti leikur Selfoss verður í Fjallabyggð, nánar tiltekið á Siglufirði, en þar keppa Selfyssingar við sameiginlegt lið KS frá Siglufirði og Leifturs frá Ólafsfirði. Leikurinn hefst kl 16.00. í dag laugardaginn 28. júní. Vitað er að margir Flóamenn fara norður til þess að hvetja liðið. (meira…)

Jónsmessuhátíðin á Eyrarbakka hafin.

Fjöldi fólks tók þátt í ferð er farið var út í náttúruna í fylgd Jóhanns Óla Hilmarssonar fuglafræðings á Stokkseyri, en hann leiddi göngu um friðland fugla á Ölfusárbökkum. Um miðnætti var síðan samverustund í Eyrarbakkakirkju þar sem Örlygur Benediktsson lék rómantíska tónlist á orgelið í forföllum Jörg Sondermann organista. (meira…)

Sigurinn var mjög sætur – en leikurinn ekkert fyrir augað

IBV bar sigurorð af Njarðvíkingum á Hásteinsvelli í kvöld, 2-1. Sigurinn var sætur og stigin þrjú sem honum fylgdu. En leikurinn var hinsvegar ekkert fyrir augað. Í hálfleik var staðan 1-0 fyrir ÍBV. Bjarni Rúnar Einarsson skoraði markið á markamínútunni miklu, þeirri 43. Liðið hefur fengið 24 stig í 9 leikjum og er efst í […]

Fánastemmning á Eyrarbakka.

Fánamenning er með besta móti á Eyrarbakka og er Túngatan gott dæmi þess og fánastangir þar víða við hús og íbúarnir duglegir að flagga. Í blíðunni í dag var Rúnar Eiríksson við Túngötuna að fánavæða sína lóð. Gamli Eyrarbakkafáninn hefur verið til sölu fyrir Jónsmessuhátíðina um helgina og víst að honum verður flaggað víða um […]

r að kaupa sér ís

Eee….ég veit ekki alveg, ætli það sé ekki sú sem sýgur ísinn?….eða eitthvað “Neeiiii” segir Sturla litli (meira…)

Njarðvíkingar heimsækja ÍBV í kvöld

1. deildarlið ÍBV karla, fær Njarðvíkinga í heimsókn í kvöld. Hefst leikurinn kl. 20.00 á Hásteinsvelli. Miðað við stigatöfluna, ætti þessi viðureign að verða leikur kattarins að músinni. En þannig gerast kaupin ekki á eyrinni. (meira…)

Shellmótið í fullum gangi

Shellmótið rennur eins og vel smurt. Allt skipulag og framkvæmd í góðu lagi og ekki hvað síst eru veðurguðirnir hagstæðir mótinu. Þá daga sem mótið stendur, gefur Shellmótsnefndin út dagblað, með helstu fréttum af mótinu. Blaðinu stýrir Jóhann Ingi Árnason. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.