Hefur þú gaman af boltanum?

Fjölmennum á kvennaleik ÍBV og Þróttar R. miðvikudagskvöldið kl. 20.00. Lið ÍBV er í öðru sæti A-riðli 1. deildar og Þróttur í því fjórða, því má búast við skemmtilegum og spennandi leik á milli liðanna tveggja sem treysta að miklu leyti á ungar og efnilegar stelpur. Aðeins 500 krónur á leikinn. Vonumst til að sjá […]
Nýr og endurbættur vefur Sigurgeirs ljósmyndara

Þann 1. júlí s.l. var nýtt útlit á vefsetri Sigurgeirs ljósmyndara opnað á veraldarvefnum og hefur aukinni virkni verið bætt inn á vefinn. Má þar t.d. nefna, · flokkun ljósmynda einfölduð í yfir- og undirflokka og þeir gerðir aðgengilegri á forsíðu. · endurbætta leitarvél · notendum gefst kostur á að skrá athugasemdir við einstakar myndir […]
Sami þorskkvóti í ár og í fyrra
Einar Kristinn Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur heimilað veiðar á 130 þúsund tonnum af þorski á næsta fiskveiðiári sem hefst þann 1. september. Er það sama magn og í fyrra en þá var kvótinn skorinn niður um 60 þúsund tonn. Á vef sjávarútvegsráðuneytisins kemur fram að Hafrannsóknarstofnun hafi lagt til 124 þúsund tonna kvóta af […]
Mæta úrvalsdeildarliði Fjölnis í kvöld

Í kvöld leikur karlalið ÍBV gegn úrvalsdeildarliði Fjölnis í 16 liða úrslitum Visa bikarkeppninnar en leikur liðanna fer fram á Grafarvoginum. Fjölnismenn hafa komið flestum á óvart í sumar með góðum leik á sínu fyrsta ári í úrvalsdeild en Fjölnir, Þróttur og Grindavík komust upp úr 1. deild í fyrra á meðan ÍBV sat eftir. […]
Logar mæta á Goslokahátíðina
Hljómsveitin Logar hafa ákveðið að koma á Goslokahátíðina þrátt fyrir að hafa ekki náð saman með goslokanefndinni um að koma fram í opinberri dagskrá hátíðarinnar. Þess í stað munu Logar koma á eigin vegum og verða með eigið atriði í kirkjugarðinum í Vestmannaeyjum þar sem þeir afhjúpa minnisvarða og leika lagið Minning um mann. (meira…)
Stelpa frá Selfossi í norska landsliðinu í fótbolta
María Þórisdóttir, 15 ára stelpa frá Selfossi (fædd 1993), leikur í norska U-16 ára landsliðinu, en það tekur nú þátt í Norðurlandamótinu sem fram fer á Íslandi þessa dagana. Tveir landsleikir fara fram á Selfossi. María hefur á hverju sumri komið á Selfoss og dvalið hjá ömmu sinni og afa, þeim Fanneyju og Hergeiri á […]
Matt Garner frá í sex vikur og Mwesigwa fastur í �?ganda

Nú er ljóst að fyrirliði karlaliðs ÍBV í knattspyrnu, Matt Garner verður frá vegna meiðsla næstu sex vikurnar. Garner hefur leikið einstaklega vel í sumar, líklega hans besta tímabil síðan hann spilaði fyrst með liðinu fyrir fjórum árum síðan. Auk þess hefur hann borið fyrirliðabandið í sumar hjá ÍBV og verið góður leiðtogi fyrir hið […]
Nýjar reglur um lundaveiði samþykktar á bæjarstjórnarfundi

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti á fundi sínum í gær reglur varðandi nytjar á lunda í Vestmannaeyjum. Um er að ræða tilraun til að bregðast við slæmum varpárangri lundastofnsins á undanförnum árum og um leið að styðja við eftirlit og rannsóknir á stofninum. Reglugerðina má lesa í heild sinni hér að neðan en meðal annars er veiði […]
Samningur um sorpmál
Flóahreppur hefur fyrst sveitarfélaga á Suðurlandi tekið af skarið og samþykkt að allir íbúar þess flokki allan úrgang allt frá lífrænu sorpi, pappa, plasti yfir í litla málmhluti. Fulltrúar Flóahrepps skrifuðu undir samning við fulltrúa Íslenska Gámafélagsins þann 30. júní eftir fund með íbúum sveitarfélagsins. Samningurinn mun taka gildi þann 1. júlí 2008 og gildir […]
Samvinna Almannavarna og fangelsisyfirvalda vegna jarðskjálftans 29. maí sl.
Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi fundaði á Litla-Hrauni sl. miðvikudag ásamt fulltrúum fangelsisyfirvalda. Fundurinn var haldinn að beiðni forstjóra Fangelsismálastofnunar en fundarefnið var samvinna Almannavarna og fangelsisyfirvalda vegna jarðskjálftans 29. maí sl. Fundinn sátu; (meira…)
Ung stúlka alvarlega slösuð eftir umferðaróhapp
Síðastliðinn sunnudag varð alvarlegt slys á gatnamótum Höfðavegs og Illugagötu. Ung stúlka lenti á reiðhjóli lenti þar fyrir bifreið. Að sögn föður stúlkunnar bjargði hjálmur hennar því, að ekki fór ver. (meira…)
7.789 skráðir íbúar í Árborg
Á síðasti fundi veitustrjórnar hjá Sveitarfélaginu Árborg komu fram upplýsingar um fólksfjölda í sveitarfélaginu. 18. júní 2008 eru 7.789 skráðir íbúar í Árborg. Á Selfossi eru skráðir 6.452Í Sandvík 169Á Eyrarbakka og dreifbýli 609Á Stokkseyri og dreifbýli 541Óstaðsettir 18 (meira…)
Karl Björnsson nýr framkvæmdastjóri
Á FUNDI stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga sl. föstudag var samþykkt samhljóða að ráða Karl Björnsson í starf framkvæmdastjóra þegar Þórður Skúlason hættir í sumar eftir 18 ára starf. Karl Björnsson útskrifaðist frá HÍ sem viðskiptafræðingur úr þjóðhagskjarna, hagrannsóknasviði, árið 1982. (meira…)
Visíterar Strandir
Strandamenn hafa tekið Guðna Ágústssyni, formanni Framsóknarflokksins og fyrrverandi landbúnaðarráðherra, með kostum og kynjum en ráðherrann er á ferð í Árneshreppi þessa dagana. Guðni kom við hjá Guðmundi bónda Þorsteinssyni á Finnbogastöðum á sunnudagskvöld og vottaði honum samúð sína vegna brunans mikla á Finnbogastöðum þann 16. júní. Þá hét Guðni Guðmundi stuðningi við endurreisn Finnbogastaða. […]
Dæmdur fyrir að ráðast þrisvar á sambýliskonu sína
Karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands í dag dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa í þrígang ráðist á fyrrverandi sambýliskonu sína. Fyrsta árásin átti sér stað í febrúar 2004 við skemmtistað á Selfossi en þá hrinti hann konunni þannig að hún úlnliðsbrotnaði. Þá áttu tvær árásir sér stað í fyrra, önnur á Selfossi […]
�?orlkákshafnarbúar fagna útboði Suðurstrandarvegar
Sjálfstæðisfélagið Ægir í Þorlákshöfn bauð til humnarsúpu í Ráðhúskaffi í Þorlákshöfn nú í hádeginu. Með þessu fagna þeir og Sunnlendingar útboði Suðurstrandarvegar sem hófst í dag og skila skal inn tilboðum fyrir 12. ágúst n.k. Ólafur Áki Ragnarsson, bæjarstjóri ávarpaði gesti sem og Árni Johnsen, alþingismaður. Einnig verður þessi fagnað í Hafnarfirði miðdegis og í […]
FH hafði betur gegn HK í úrslitaleiknum
Á laugardaginn lauk Shellmótinu en í fyrsta sinn lauk mótinu á laugardegi en ekki sunnudegi eins og verið hefur til þessa. Mótið var í alla staði mjög vel heppnað enda einmuna veðurblíða á meðan mótinu stóð. Auk þess að stytta mótið um einn dag voru gerðar fleiri breytingar á Shellmótinu í ár, m.a. á leikjafyrirkomulaginu […]
Hringferðin gengur vel
Hringferðin Kraftur í kringum Ísland gengur eins og í sögu en farið er á tveimur tuðrum hringinn í kringum landið. Sex menn eru á tuðrunum auk þess sem tvær konur keyra landleiðina með búnað fyrir hópinn. Í gær var komið við á Eskifirði, Norðfirði og Reyðarfirði en hægt er að fylgjast með ferðalagi hópsins á […]
Hnullungar eftir jarðskjálftann skoðaðir
STÆRSTI steinninn sem féll úr Ingólfsfjalli í jarðskjálftanum 29. maí sl. reyndist vera 50 rúmmetrar og hafa skoppað rúmlega 370 metra frá brotstálinu í sunnanverðu Ingólfsfjalli. Þetta kom fram í mælingu starfsmanna Veðurstofunnar, sem héldu í Ölfus um helgina til að kanna ummerki skjálftans. Tóku þeir niður staðsetningarhnit stærstu hnullunganna og áætluðu stærð þeirra. (meira…)
Ofurölvi við Eyrarbakka
LÖGREGLAN á Selfossi þurfti að hafa afskipti af ökumanni á Eyrarbakkavegi vegna undarlegs aksturslags um hádegisbilið í gær. Kom í ljós að maðurinn var verulega ölvaður og reyndist við blástursmælingu vera með 2,90 prómill af vínanda. Að sögn lögreglunnar er hér um mjög mikla ölvun að ræða og flest venjulegt fólk væri í svefndrunga með […]