Tveir teknir fyrir ölvunarakstur

Lögreglan á Selfossi stöðvaði í morgun tvo ökumenn við hefðbundið eftirlit. Annar reyndist undir áhrifum áfengis og annarra fíkniefna en hinn hafði verið að drekka um nóttina en lagt of snemma af stað. Lögreglan vill af þessu tilefni benda ökumönnum á fá að blása í mæli hjá lögreglu áður en lagt er í hann. (meira…)

Vigdísarhús opnað á Sólheimum

Sólheimar halda upp á 78 ára afmæli sitt á laugardaginn og af því tilefni opnar nýtt þjónustuhús sem skýrt er í höfuðið á frú Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta lýðveldisins. Frú Vigdís Finnbogadóttir mun opna húsið formlega og Sigurbjörn Einarsson biskup mun blessa húsið. Á sunnudaginn, 6. júlí, verður messa í Sólheimakirkju þar sem sr. Eiríkur […]

Eitt stærsta golfmót ársins á Íslandi hófst í morgun

Eitt stærsta golfmót þessa árs hér á landi, hófst í morgun á golfvellinum í Vestmannaeyjum þegar ræst var út á Volcano Open golfmótinu. Mótið hefur verið haldið undanfarin ár en aldrei hafa jafn margir kylfingar skráð sig til leiks, 188 talsins sem gerir Volcano Open golfmótið eitt stærsta, ef ekki stærsta golfmót ársins. Og það […]

Fyrsta skóflustunga að nýju fjölbýlishúsi tekin á morgun

Klukkan 10 í fyrramálið, laugardag, verður tekin fyrsta skóflustunga að nýju fjölbýlishúsi við Hilmisgötu við Stakkagerðistún eða þar sem lögreglustöðin var í eina tíð. Um er að ræða tveggja hæða hús með verslun á fyrstu hæð og íbúðum á annarri hæð en það eru Geisli og Eyjablikk sem reisa húsið. (meira…)

Breyting á ferðum Eydísar

Skemmtibáturinn Eydís fer í skemmtiferðir föstudag og laugardag kl. 13.00 og 15.00 báða dagana. Farið verður í kringum Elliðaey og Bjarnarey og síðan leikið og sungið í Klettshelli. Hluti af kór ÁTVR undir stjórn Hafsteins Guðfinnssonar heldur tónleika í Klettshelli í eitt ferðinni á laugardag. Ennþá laus pláss. (meira…)

�?jóðhátíðardagur Bandaríkjamanna

4. júlí. Þjóðhátíðardagur Bandaríkjamanna er í dag og af því tilefni rifjum við upp 4. júlí á Stokkseyri árið 2005 sem var með miklum tólistrarstæl. Haldið var upp á þjóðhátíðardag Bandaríkjanna í gær mánudaginn 4. júlí á Stokkseyri. Bandaríski fáninn blakti við hún allan daginn á Lista- og menningarverstöðinni Hólmaröst og þeim rúmlega eitthundrað Bandaríkjamönnum […]

Tekinn með 80 grömm af hassi við komuna með Herjólfi

Lögreglan í Vestmannaeyjum handtók í gær, mann við komu Herjólfs til Eyja vegna gruns um að hann væri með fíkniefni meðferðis. Við leit í farangri hans fundust um 80 grömm af ætluðu hassi og lagði lögregla hald á efnið. Við yfirheyrslur viðurkenndi maðurinn brot sitt og telst málið að mestu upplýst. (meira…)

Nýr starfsmaður

Gyða Guðmundsdóttir hefur verið ráðin tímabundið í hlutastarf við bókhald á skrifstofu Flóahrepps. Gyða hefur mikla reynslu af störfum á skrifstofu sveitarfélaga en hún hefur unnið í tæp átján ár fyrir Rangárvallahrepp og seinna Rangárþing ytra. Gyða er búsett á Hellu. (meira…)

Vorið okkar

Það verður mörgum brottfluttum Eyjamanninum hugsað til eyjunnar sinnar fögru á tímamótum eins og nú, þegar 35 ár eru frá goslokum. Hugurinn leitar til horfinna stunda, gömlu vinanna og minningarnar hrannast upp. Sönghópur brottfluttra Eyjamanna, ÁTVR, – tók upp lag eftir Gísla Helgason við texta Iðunnar Steinsdóttur. Með þessu lagi, Vorið okkar. senda þau öllum […]

Jón á Hofi ÁR 42 frá �?orlákshöfn aflahæstur

Mjög mikil hreyfing er núna á listanum svo til allir bátar skipta um sæti. Erlingur SF fer framúr Ársæli ÁR sem og Fróða ÁR. Svo virðst vera sem Brynjólfur VE og Þorsteinn Gíslasson GK séu hættir humarveiðum. Einnig Sigurður Ólafsson SF enn hannhefur engu langað síðan í enda maí. . Athyglisver að fylgjast með Reginn […]

Thomsensbílinn á Eyrarbakka

Fyrsti bíllinn á Íslandi, sem kenndur er við Ditlev Thomsen, kaupmann og konsúl, var fransk-þýskur af svonefndri Cudell-gerð. Alþingi samþykkti árið 1903 að veita 2.000 kr. styrk til að flytja inn bifreið og taldi ráðlegast að einkaaðili stæði fyrir því. Thomsen kaupmaður varð fyrir valinu og sá hann um rekstur bifreiðarinnar. Þorkell Þ. Clementz varð […]

Erlend olíufyrirtæki sýna áhuga

Íslensk stjórnvöld finna fyrir áhuga erlendra fyrirtækja vegna olíuleitar á drekasvæðinu, að sögn Geirs H. Haarde forsætisráðherra. Olíuleitin var mikið rædd á síðasta ríkisstjórnarfundi, en undirbúningsvinna um framtíðarskipan þessara mála, undir forystu iðnaðarráðuneytisins, er langt komin. Þá hefur fjármálaráðuneytið látið vinna tillögur um hugsanlega skattlagningu í greininni. (meira…)

Áframhaldandi þorskkvótaskerðing tilkynnt

„Menn þurfa að gera sér grein fyrir því að svona mikil þorskkvótaskerðing samfara stórhækkuðu olíuverði kann að leiða til þess að togurum verði lagt í einhverjum mæli. Togari sem ekki hefur heimild til þess að veiða þorsk í blönduðum veiðum verður ekki gerður út. Útgerð hans borgar sig ekki,“ segir Gunnþór B. Ingvason framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar […]

Eyjamenn smæla framan í heiminn!

Það er sannarlega tilefni til að fagna þegar höfuðsnillingur eins og Magnús Þór Jónsson – Megas – sækir Vestmannaeyjar heim. Megas hefur fyrir löngu skipað sér sess meðal ástsælustu tónlistarmanna þjóðarinnar og eru lög og textar eftir hann meðal þess allra besta sem komið hefur út á íslenskri tungu. (meira…)

Megas er mættur

Megas og félagar hans í Senuþjófunum eru komnir til Eyja en flugsamgöngur hafa ekki gengið eins og vera ber í morgun vegna veðurs. Það er því ekkert því til fyrirstöðu að stórtónleikar Megasar og Senuþjófanna fari fram í Höllinni í kvöld en húsið opnar klukkan 20 og stígur meistari Megas og Senuþjófarnir á stokk klukkustund […]

Andri ökklabrotinn?

Andri Ólafsson, miðju- og varnarmaðurinn sterki hjá ÍBV meiddist undir lok bikarleiksins gegn Fjölni í gær á ökkla. Meiðslin eru alvarleg og jafnvel talið að Andri hefði ökklabrotnað. Það gæti þýtt að tímabilið sé búið hjá þessum öfluga leikmanni, sem tók við fyrirliðabandinu í gær í fjarveru fyrirliðans Matt Garner. Það þarf ekki að fara […]

Leó Snær hitar upp á tónleikum Megasar og Senuþjófanna

„Það verður stór stund, ekkert öðruvísi, segir Leó Snær Sveinsson aðspurður um hvernig leggist í hann að hita upp á tónleikum Megasar og Senuþjófanna í Höllinni í kvöld. „Megas er mikill meistari og frumkvöðull. Þannig að þetta verður alger toppur.”” (meira…)

Hálf ríkisstjórnin í hópreið

Landsmót hestamanna verður sett með viðhöfn klukkan átta í kvöld. Í hópreiðinni verða fimm ráðherrar, forseti Alþingis og fleiri góðir gestir, að ógleymdum fulltrúum allra hestamannafélaga á landinu. Alls verða á vellinum rétt 500 hross og knapar þeirra, sem ríða við blaktandi fána svo sem venja er. Þeir ráðherrar sem prýða hópreiðina annað kvöld eru: […]

Góður leikur þrátt fyrir tap

Eyjamenn féllu í kvöld úr leik í bikarkeppninni en liðið sótti úrvalsdeildarlið Fjölnis heim í Grafarvoginn. Fjölnir hefur komið flestum á óvart með góðu gengi á fyrsta ári sínu í efstu deild en liðið er í fimmta sæti deildarinnar og vann m.a. topplið Keflavíkur í síðustu umferð. Eyjamenn voru síst lakara liðið í kvöld en […]

Vatnsleiðslan komin til Eyja

Ný vatnsleiðsla, sem fyrirhugað er að leggja milli lands og Eyja, kom til Vestmannaeyja nú fyrir skömmu. Það er danska fyrirtækið NKT sem framleiðir leiðsluna, eins og fyrir 40 árum síðan þegar fyrsta vatnsleiðslan var lögð milli lands og Eyja. Og það sem meira er, sama flutningaskip, Henry P. Lading flytur leiðsluna nú og fyrir […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.