Framkvæmdaleyfi veitt

Framkvæmdarleyfi til hafnargerðar við Bakkafjöru var tekið fyrir í dag hjá sveitarstjórn Rangárþings eystra og skipulagsnefnd Rangárþings. Ólafur Eggertsson, oddviti sveitarstjórnar Rangárþings eystra, segir að framkvæmdarleyfið hafi verið samþykkt án allra athugasemda. (meira…)
Sandsílastofninn virðist vera að ná sér á strik

Sandsílastofninn við strendur landsins virðist vera að ná sér á strik eftir tvö til þrjú slæm ár, að því er sjómenn herma. Þeir marka þetta af því að þorskur sem þeir veiða, er oft fullur af síli, en það er mikilvæg fæða fleiri fisktegunda. Sjófuglar og kría nærast einnig á sílinu og hefur varp þessara […]
Megas og Senuþjófarnir stela senunni á Bryggjuhátíð
Nýr viðburður hefur bæst inn í dagskrá Bryggjuhátíðar á Stokkseyri sem verður um næstu helgi en það eru tónleikar með Megas og Senuþjófunum. Tónleikarnir verða á laugardagskvöldið frá kl. 21-23:00 í stóra salnum í Lista og menningarverstöðinni. Í beinu framhaldi verður svo dansleikur á Draugabarnum með hljómsveitinni Vítamín og gildir aðgangseyrir að tónleikunum einnig fyrir […]
100 miljónir boðnar á Landsmóti
Mikil viðskipti hafa átt sér stað á Landsmóti hestamanna. Íslenskir auðmenn hafa boðið allt að hundrað milljónir króna fyrir stóðhest á Landsmóti hestamanna sem lauk í dag. Landsmót hestamanna eru ekki síður orðin markaðstorg viðskipta en íþróttakeppni að sögn þeirra sem til þekkja. Tilboð eru gerð bæði í merar og stóðhesta sem þykja skara fram […]
Ganglimir nokkurra goslokagesta létu ekki að stjórn

Lögreglan hafði í mörg horn að líta í vikunni sem leið enda töluverður fjöldi fólks í bænum í tengslum við Goslokahátíð. Hátíðin fór að mestu leiti vel fram en eins og gerist og gengur var eitthvað um pústra en engar kærur liggja fyrir. Þá þurfti lögreglan að aðstoða nokkra gesti hátíðarinnar til síns heima þar […]
Alex hættur hjá ÍBV

Alex Cerdeira, leikmaður ÍBV og stjórn knattspyrnudeildar hafa komist að samkomulagi um að leikmaðurinn yfirgefi herbúðir liðsins. Alex lofaði góðu í vorleikjum liðsins en hefur verið meiddur síðan tímabilið hófst og útséð með þátttöku hans í Íslandsmótinu. Þetta kemur fram í tilkynningu stjórnar knattspyrnudeildar á heimasíðu ÍBV sem má lesa hér að neðan. Samkvæmt heimildum […]
Vatnsleiðslan komin í land í Bakkafjöru

Í morgun hófust framkvæmdir við lagningu nýrrar vatnsleiðslu til Vestmannaeyja. Flutningaskipið Henry P. Lading er notað til að leggja leiðsluna en skipið liggur nú við ankeri um 300 metra frá landi. Hafist var handa við að koma leiðslunni í land í Bakkafjöru í morgunsárið og náði leiðslan landi um ellefu fyrir hádegi. Þegar búið verður […]
Land tekið eignarnámi

Samningaviðræður Siglingastofnunar við landeigendur á Bakka báru engan árangur. Samgönguráðuneytið fer með heimild til eignarnáms á landinu sem þarf undir fyrirhugaða Bakkafjöruhöfn. (meira…)
Vegagerðin varðveitir elstu hengibrú landsins
Yfir Örnólfsdalsá í Borgarfirði stendur enn hengibrú sem var byggð árið 1899 og er því elsta uppistandandi hengibrú landsins. Hún hefur lítið viðhald fengið en nýtur þess að þjóðleiðin norður í land færðist frá henni. Því var snemma lítil umferð yfir hana og loks lá enginn vegur að henni. Í stað þess að vegfarendur færu […]
Starfshópur um endurreisnarstarf vegna jarðskjálftanna á Suðurlandi 29. maí s.l
Ríkisstjórnin hefur ákveðið, að tillögu forsætisráðherra og dóms- og kirkjumálaráðherra, að setja á laggirnar starfshóp ráðuneyta sem ætlað er að vinna náið með fulltrúum sveitarstjórna á jarðskjálftasvæðunum á Suðurlandi við að meta hvernig fara skuli með ótryggð tjón einstaklinga og fyrirtækja svo og hvernig haga skuli fjárhagslegum stuðningi við sveitarfélög, m.a. vegna endurreisnarstarfsins. (meira…)
Ingvar áfram oddviti Grímsnes- og Grafningshrepps
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps kaus nýlega oddvita og varaoddvita. Ingvar G. Ingvarsson var kosinn oddviti og Ólafur Ingi Kjartansson var kosinn varaoddviti.Athygli vekur að kosningin var leynileg, en að sögn Ingvars er hefð fyrir því í sveitarfélaginu að kosningar um oddvita séu leynilegar. Einnig var samþykkt að auka starfshlutfall oddvita úr 40% starfi í 50% […]
Garða- og götuverðlaun 2008
Margar tilnefningar bárust Umhvefisnefnd um garða og götur vítt og breitt um sveitarfélagið og fór nefndin og skoðaði fallega garða og snyrtilegar götur. Niðurstaða nefndarinnar var sú að eftirtaldir garðar hefðu borið af: Lyngheiði á Stokkseyri, Merkisteinsvellir 11 á Eyrarbakka og Ártún 15 á SelfossiFallegasta gatan 2008 var valin og voru nefndarmenn sammála um það […]
Bílahátíð á Bakkanum
Í dag sunnudaginn 6. júlí var mikil fornbílahátíð á Eyrarbakka sem Árni Valdimarsson og fjölskylda í Gallerý Gónhól stóðu fyrir. Bar þar hæst endurgerðan Thomsensbílinn svokallaða, en upprunalegi bíllinn var fyrsti bíllinn sem kom til Íslands og var það árið 1904. Þá var honum m.a. ekið úr Reykjavík austur á Eyrarbakka og var það minnisstætt […]
ÍBV – Selfoss fimmtudaginn 10. júlí kl. 20.00.
Selfyssingar sitja taplausir í öðru sæti 1. deildarinnar með 22 stig, fimm stigum á eftir Eyjamönnum með 27 stig. Næsti leikur í deildinni er gegn ÍBV, úti í Vestmannaeyjum, fimmtudaginn 10. júlí kl. 20.00. Fjöldi Selfyssinga ætlar á leikinn og verður Flugklúbbur Selfoss m.a. með loftbrú til Eyja.. (meira…)
Ný og betri aðstaða á tjaldstæðinu.
Ný og betri aðstaða var tekin í notkun á tjaldstæði Stokkseyrar fyrr í sumar. Gestir geta nú komist í rafmagn með ferðahýsin sín. Aðsóknin hefur ekki látið á sér standa og hefur hún aukist jafnt og þétt það sem af er sumri. Nú er mjög góð aðstaða er fyrir tjöld, tjaldvagna, fellihýsi, hjólhýsi og húsbíla. […]
Toppliðin ÍBV og Selfoss unnu sína leiki
Fjórir leikir fóru fram í 1. deild karla í dag þar sem liðin í efstu tveimur sætunu, ÍBV og Selfoss unnu sína leiki eins og Víkingur og Haukar gerðu einnig. Selfoss sigur í blíðunni Selfoss 4-1 Fjarðabyggð: 0-1 Sveinbjörn Jónasson (’13) 1-1 Arelíus Marteinsson (’47) 2-1 Sjálfsmark (’56) 3-1 Andri Freyr Björnsson (’66) 4-1 Viðar […]
Augljós þreytumerki á ÍBV

ÍBV vann nauman sigur á KS/Leiftri í dag þegar liðin mættust á Hásteinsvelli. Lokatölur urðu 2:1 en Eyjamenn skoruðu sigurmarkið skömmu fyrir leikslok. ÍBV vann þar með níunda sigur sinn í fyrstu tíu leikjunum og er efst í 1. deild með 27 stig. Italo skoraði fyrra mark ÍBV sem var sérlega fallegt, þrumuskot upp í […]
ÍBV nær góðum árangri á N1-mótinu
Fimmti flokkur karla í knattspyrnu náði frábærum árangri á hinu árlega N1-móti sem haldið er á Akureyri. ÍBV komst í átta liða úrslit í A-, B-, C- og D-liðum en bestum árangri náði D-liðið sem endaði í þriðja sæti. B- og C-liðin enduðu í fjórða sæti, A-liðið í sjöunda og E-liðið í 22. sæti. Þá […]
KFS náði í stig gegn Berserkjum á útivelli

KFS gerði sér lítið fyrir og náði í stig á útivelli gegn varaliði Víkings í Reykjavík, Berserkjum en liðin mættust í höfuðborginni í gærkvöldi. Fyrri leik liðanna í Vestmannaeyjum lauk með óvæntum sigri Berserkja, 2:3 og því áttu Eyjamenn harma að hefna. Lokatölur í gær urðu hins vegar 2:2 jafntefli og náðu leikmenn KFS þar […]
Selfoss – Fjarðabyggð
Selfyssingar taka á móti Fjarðabyggð á Selfossvelli í dag laugardaginn 5. júlí kl. 14:00. Selfyssingar eru sem fyrr í öðru sæti 1. deildar eftir 1-1 jafntefli í erfiðum útileik gegn KS/Leiftri í síðustu umferð. Það var Henning Eyþór Jónasson sem jafnaði fyrir Selfoss á 18. mínútu leiksins. Á sama tíma gerði Fjarðabyggð jafntefli við Víking […]