�?rlygur Helgi Vestmannaeyjameistari í golfi

Meistaramóti Golfklúbbs Vestmannaeyja lauk í dag en óhætt er að segja að lokadagurinn hafi verið erfiður, rok og rigning var í allan dag og aðstæður mjög erfiðar. Að lokum varð það Örlygur Helgi Grímsson sem bar sigur úr býtum og það nokkuð örugglega en hann lék hringina fjóra á 282 höggum. Annar varð Karl Haraldsson […]
Andlit Eyjabarna Lækjatorgi

Á Lækjatorgi var sett upp óvenjulegt listaverk á vegg, sem hylur brunnin hús á horni Lækjargötu og Austurstrætis í Reykjavík. Verkið er eftir pólsku listamennina Önnu Leoniak og Fiann Paul og þar sjást andlit tæplega þúsund barna frá þorpum og bæjum víðs vegar af landsbyggðinni á Íslandi. Verkið er sett upp í tilefni af Listahátíð […]
Hæsta upphæðin fer til Eyja

Menntamálaráðherra hefur ákveðið að veita allt að 180 milljónir króna til menntaverkefna á landsbyggðinni sem eru þáttur í mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna tímabundins aflasamdráttar. Veittir verða styrkir til 59 verkefna að þessu sinni. (meira…)
KFS fyrsta liðið sem nær í stig í �?orlákshöfn

KFS varð fyrst liða til að ná í stig í Þorlákshöfn í A-riðli 3. deildar karla en KFS sótti Ægi heim í gærkvöldi. Sigurður Ingi Vilhjálmsson kom KFS yfir á 77. mínútu og stefndi allt í sigur Eyjamanna en Ægismenn náðu að jafna á lokamínútunum. Staða KFS er þó enn slæm í A-riðli, liðið er […]
Listasmiðjan Svölukot opnar í haust í miðbæ Vestmannaeyja

Hjónin Anna Svala Johnsen, fyrrverandi matráðskona í Grunnskóla Vestmannaeyja og tréskurðarlistamaður, og Guðjón Jónsson, rafvirkjameistari, fengu hæsta styrkinn af 23, 350 þúsund krónur, sem Atvinnuþróunarfélag Suðurlands úthlutaði á miðvikudaginn var, 2. júlí, til nýsköpunarverkefna. Styrkurinn er ætlaður til hönnunar á húsnæði, gerðar heimasíðu og kynningarefnis fyrir listasmiðju, sem þau hjón vinna við að koma á […]
Smíði ferjunnar óvissuþátturinn

Útboð í smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju verður opnað í ágúst. Gerð Landeyjahafnar á að vera lokið 1. júlí 2010. Þrátt fyrir að knappur tími sé til stefnu telur Kristján Möller samgönguráðherra að smíði ferjunnar verði helsti óvissuþáttur bættra samgangna milli lands og Eyja. Ekki þurfi að kvíða því að hafnar- og vegagerð á svæðinu tefjist en […]
Landhelgisgæslan kemur til Stokkseyrar á þyrlu og Fokkerinn flýgur yfir
Landhelgisgæslan verða sérstakir gestir Bryggjuhátíðarinnar á Stokkseyri í kvöld. Ein af stóru þyrlunum mun lenda á Stokkseyrarbryggju og áhöfninni verður boðið til hátíðarkvöldverðar á veitingahúsinu Við Fjöruborðið. Síðan hefst setningarathöfn hátíðarinnar kl. 20:00. (meira…)
Hjalti spilaði í fyrsta sinn með Selfyssingum gegn ÍBV

Hjalti Jóhannesson var í fyrsta sinn í leikmannahópi Selfyssinga í kvöld en þessi eldfljóti bakvörður lék með ÍBV á gullaldartímabili félagsins seint á síðustu öld. Stuðningsmenn ÍBV kunnu því illa að sjá Hjalta í vitlausum” búningi en klöppuðu hins vegar þegar honum var skipt inn á í seinni hálfleik. Hjalti var þarna að spila sinn […]
Eyjamenn með afgerandi forystu eftir sigur á Selfyssingum í kvöld

Leikmenn ÍBV sýndu styrk sinn í uppgjöri toppliða 1. deildarinnar þegar þeir tóku á móti Selfyssingum á Hásteinsvellinum í kvöld. Eyjamenn unnu 3:0 og áttu í raun ekki í teljandi vandræðum með slaka Selfyssingar, sem oft hafa leikið betur. ÍBV er nú komið með afgerandi forystu á toppi deildarinnar, er nú með 30 stig í […]
Gunnar Heiðar með tvö fyrir Esbjerg

Gunnar Heiðar Þorvaldsson byrjar svo sannarlega vel með sínu nýja félagi því í gær lék hann með Esbjerg við þýska liðið Carl Zeiss Jena. Esbjerg hafði betur á útivelli og vann 3:0 og gerði Gunnar Heiðar tvö marka liðsins, það fyrsta á 6. mínútu og síðan þriðja mark leiksins á 42. mínútu. Gunnar Heiðar gekk […]
Afli íslenskra skipa tæp 1.400 þúsund tonn árið 2007
Afli íslenskra skipa á árinu 2007 var tæp 1.396 þúsund tonn, 73 þúsund tonnum meiri en árið 2006. Þetta kemur fram í nýju riti, Afli, aflaverðmæti og ráðstöfun afla 2007 sem nú er komið út hjá Hagstofu Íslands. Aflaverðmæti var rúmir 80 milljarðar króna og jókst um 5,4% frá fyrra ári. Stærsti hluti afla íslenskra […]
Jafn margir gestir í söfn og í bíó
Árið 2006 voru starfrækt 158 sýningarstaðir safna, setra, garða og sýninga, samanborið við 97 fyrir áratug. Þetta kemur fram í tölum sem Hagstofan sendir frá sér í tilefni af hinum íslenska safnadegi þann 13. júlí. (meira…)
Bylgjan í heimsókn um helgina

Um helgina mun útvarpsstöðin Bylgjan koma við í Eyjum og vera með beina útsendingu frá Höllinni bæði föstudag og laugardag. Kolla og Heimir byrja strax á föstudagsmorgunin og Ívar Guðmunds tekur við af þeim og Siggi Ragg á eftir Ívari. Strákarnir í Reykjavík síðdegis enda svo daginn frá Vestmannaeyjum. Hemmi Gunn og Svansí skemmta svo […]
Lundaveiðitímabilið hófst í morgun
Samkvæmt reglum sem bæjarstjórn Vestmannaeyja setti á dögunum um nytjar á lunda, má hefja veiðar í dag 10. júlí. Það þurfti reyndar ekki reglur bæjarins til því bjargveiðimenn í Vestmannaeyjum höfðu áður tekið saman höndum og ákveðið að stytta veiðitímabilið talsvert til að koma til móts við slæma afkomu fuglsins síðustu ár. Í eðlilegu árferði […]
Uppgjör toppliðanna í kvöld á Hásteinsvelli

Í kvöld verður sannkallaður stórleikur í 1. deild karla í knattspyrnu þegar topplið ÍBV tekur á móti nágrönnum sínum frá Selfossi. Selfyssingar hafa komið mörgum á óvart með jöfnum og góðum leik og eru eina taplausa liðið í efstu deild. ÍBV hefur hins vegar ekki gert mörg mistök í upphafi móts, hafa unnið níu af […]
Suðurnes og Suðurland eitt atvinnusvæði
MEÐ tilkomu Suðurstrandarvegar verða Suðurland og Suðurnes eitt atvinnusvæði, að mati Guðjóns Guðmundssonar, framkvæmdastjóra Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum. Guðjón segir að hingað til hafi fólk ekki verið tilbúið að aka yfir fjallvegi til að sækja vinnu, en það muni nú breytast. (meira…)
Vatnsleiðslunni komið í land í nótt

Nýja vatnsleiðslan var tekin í land í Skansfjöru rétt eftir miðnætti. Verkið gekk vel eftir því sem best var séð, reyndar virtist sem leiðslan hafi setið föst í lokin í Henry P. Lading en það hefur ekki fengist staðfest. Endanum á leiðslunni var komið fyrir á sérstökum flothylkum og var leiðslan einfaldlega dregin í land. […]
Tvívegis í síðustu viku var leitað að fólki
Tvívegis í síðustu viku var leitað til björgunarsveita til aðstoðar við leit að fólki. Í fyrra skiptið vegna 10 ára drengs sem varð viðskila við foreldra sína á göngu frá Kerlingafjöllum inn í skála í Setri undir Hofsjökli. Félagar í ferðaklúbbnum 4×4, sem lögregla hafði samband við og voru á leið í Setur, fundu drenginn […]
Starfshópur um goslokahátíð þakkar gestum hátíðarinnar fyrir ánægulegar samverustundir um helgina

Við erum afar ánægð með hvað andinn á hátíðinni var góður. Þetta þökkum við bæjarbúum og gestum, sem sóttu af krafti alla dagskrárliði hátíðarinnar með gleðina og góða skapið í fyrirrúmi. Þrátt fyrir mikið fjölmenni í Skvísusundi fór allt vel fram. (meira…)
Landgræðslufélag Hrunamanna fékk eina milljón frá Kaupþingi
Kaupþing banki færði í dag Landgræðslufélagi Hrunamanna eina milljón króna til styrktar starfi félagsins. Hrunamenn hafa lengi unnið að landgræðslu á afrétti sínum með góðum árangri en hann er víðáttumikið landsvæði sem nær frá byggð, inn með Hvítá að austan, norður fyrir Kerlingarfjöll að Hofsjökli. (meira…)