Páll Hjarðar í KFS

Varnarjaxlinn Páll Þorvaldur Hjarðar hefur gengið til liðs við 3. deildarlið KFS og mun leika með liðinu út sumarið. Páll hefur ekkert leikið með ÍBV í sumar og núna hefur hann ákveðið að fara í KFS. Í fyrra skoraði Páll tvö mörk í nítján leikjum fyrir ÍBV í fyrstu deildinni. Undanfarin ár hefur Páll verið […]

Fjölgaði um einn á dag í Árborg

Íbúum í Árborg fjölgaði um 201 frá ársbyrjun til 18. júní síðastliðins. Þetta svarar til þess að fjölgað hafi um rúmlega einn íbúa dag hvern á þessu tímabili og þar af um 60 íbúa í júní. Í bókun meirihluta bæjarráðs segir m.a. að fjölgun íbúa beri vitni um að Sveitarfélagið Árborg sé framsækið sveitarfélag og […]

Féll af hestbaki og slasaðist

Kona slasaðist þegar hún féll af hestbaki á Votmúlavegi sunnan við Selfoss í gærkvöldi. Hún var flutt á heilsugæslustöðina á Selfossi og mun ekki vera alvarlega slösuð. Ekki er vitað um tildrög slyssins en þetta er eitt af mörgum slysum sem orðið hafa í ár, þar sem fólk fellur af hestbaki. (meira…)

Vill ekki 500 milljónir

Sigurður Hannesson, bóndi að Villingavatni við Þingvallavatn, neitaði boði auðmanns upp á allt að milljarði króna í jörð hans. Hann hefur áður neitað boði Reykjavíkurborgar í jörðina upp á hundruð milljóna. Sigurður vill frekar að búskapur sé á jörðinni áfram og hefur leigt öðrum fjárbónda jörðina fyrir níutíu þúsund krónur á mánuði. Hann tekur kindurnar […]

Selfoss-Víkingur R. fimmtudaginn 17. júlí kl 20.00

Selfyssingar taka á móti Víking frá Reykjavík á Selfossvelli fimmtudaginn 17. júlí kl 20.00. Selfyssingar töpuðu sínum fyrsta leik í deildinni þegar þeir fóru til Eyja á fimmtudaginn síðasta. Víkingar náðu aftur á móti jafntefli gegn Fjarðarbyggð fyrir austan í sínum síðasta leik. (meira…)

Enginn frá Vestmannaeyjum í alvarlegu slysi í skemmtigarði í Gautaborg

Fótboltamótið Gothia Cup stendur nú yfir í Gautaborg þar sem Liseberg skemmtigarðurinn er. Alvarlegt slys varð í garðinum í dag þegar vagn í Regnbogatækinu féll til jarðar. Fjöldi íslenskra ungmenna tekur þátt í mótinu og voru mörg þeirra í Liseberg í dag en ekki er annað vitað en að Íslendingarnir séu heilir á húfi. Ólafur […]

Meintar ærumeiðingar Árna Johnsen enn í rannsókn

Lögregla rannsakar enn meintar ærumeiðingar þing­manns­ins Árna Johnsen í garð Gunnars Gunnarssonar aðstoðar­vegamálastjóra. Þetta segir Sigur­björn Víðir Eggerts­son aðstoðaryfirlögregluþjónn. Gunnar kærði Árna í lok apríl fyrir ummæli sem Árni lét falla í blaðagrein þess efnis að Gunnar væri vart starfi sínu vaxinn og hefði sinnt ýmsum verkum afar slælega. (meira…)

Fyrsta kartöfluuppskeran komin

Fyrsta uppskeran í ár af íslenskum kartöflum er nú komin í matvöruverslanir. Nóatúni barst í gær fyrsta sendingin af kartöflum frá Eyrarbakka og samkvæmt upplýsingum frá Halldóri Björnssyni, gæðastjóra Kaupáss, lítur uppskeran vel út í ár. „Þetta eru gullfallegar kartöflur. Þær eru mjög jafnar og líta mjög vel út.“ (meira…)

Erlendum gestum fjölgar um tæp 7% fyrstu 6 mánuði ársins

Alls fóru tæplega 190 þúsund erlendir gestir frá landinu um Leifsstöð fyrstu sex mánuði ársins 2008 samkvæmt talningum Ferðamálastofu, en sömu mánuði í fyrra voru þeir 178 þúsund. Aukningin er um 11 þúsund eða 6,6%. Talningin nær yfir allar brottfarir erlendra gesta um Leifsstöð og er vinnuafl sem fyrr inn í þeim. (meira…)

Sláturfélag Suðurlands hefur dreifingu á lausu fóðri

Valkostir bænda í kjarnfóðurkaupum hafa verið takmarkaðir þar til nú. Að frumkvæði bænda hóf SS innflutning á kjarnfóðri til að auka valkosti í kjarnfóðurkaupum. Bændur geta sparað sér umtalsverðar fjárhæðir í kjarnfóðurkaupum með því að kaupa kjarnfóður frá SS þar sem reynsla þeirra bænda sem nú þegar hafa tekið það í notkun er mjög góð. […]

Selfoss 2 Símamótsmeistari í 4. flokki

Stærsta knattspyrnumót sem haldið er ár hvert í kvennaboltanum er hið rómaða Gull og Silfur mót í Kópavogi sem eitt sinn hét en heitir nú Símamótið. Selfoss sendi lið í nokkrum flokkum á mótið og gekk flestum nokkuð vel. Árangur stelpnanna í 4 flokki 2 sem eru yngri stelpurnar að hluta, undir stjórn þjálfarans Guðmundar […]

Makríllinn mikil búbót

Vel hefur aflast af makríl og norsk-íslenskri síld austur af landinu síðustu daga. Í gær voru skipin að veiðum í Seyðisfjarðardýpi, en um helgina var góðan afla að hafa í færeyskri lögsögu. Makríllinn er mikil búbót fyrir útgerðirnar, en hann er utan kvóta. Reikna má með að veiðireynsla á makríl verði metin útgerðum til tekna […]

Italo að fara frá ÍBV

Brasilíski miðjumaðurinn Italo Jorge Maciel er á leið frá ÍBV en þessi sterki miðjumaður er eini brasilíski leikmaðurinn af þremur, sem komu til ÍBV fyrir tímabilið, sem hefur spilað að einhverju viti í Íslandsmótinu. Ástæður þess að Italo yfirgefur herbúðir ÍBV eru persónulegar og fer hann í sátt og samlyndi við knattspyrnuráð ÍBV. Sigursveinn Þórðarson, […]

Mwesigwa leikmaður 11. umferðar

Andrew Mwesigwa, leikmaður ÍBV var valinn leikmaður 11. umferðar í 1. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu á vefnum www.fotbolti.net. Mwesigwa lék sinn fyrsta leik með ÍBV í toppslagnum gegn Selfossi og komst hið sókndjarfa lið Selfyssinga lítið áleiðis gegn Eyjamönnum. Fremstir í flokki fóru þeir Mwesigwa og Bjarni Hólm Aðalsteinsson en Mwesigwa skoraði að auki í […]

Lundaveiði fer hægt af stað

Lundaveiði fer hægt af stað samkvæmt þeim upplýsingum sem fengust hjá bjargveiðimönnum í morgun. Flestir halda að sér höndum vegna afkomu lundastofnsins síðustu ár en búast má við að veiðar hefjist af krafti um næstu helgi. Erpur Snær Hansen, líffræðingur hjá Náttúrustofu Suðurlands segir næstu daga skipta miklu varðandi afkomu lundans. (meira…)

Efni í �?jóðhátíðarblaðið

Ef einhverjir hafa áhuga á að koma með áhugavert efni, myndir eða viðtöl í Þjóhátíðarblaðið þá er þeim bent á að senda efni sem og fyrirspurnir á handbolti@handbolti.is. Áhugavert efni, viðtöl og myndir munu síðan birtast í Þjóðahátíðarblaði ÍBV sem út kemur skömmu fyrir Þjóðhátíð. (meira…)

Tugmilljarða byggðastyrkur til höfuðborgarsvæðisins

Meðan almennir íbúðaeigendur á landsbyggðinni hafa búið við verðfall á íbúðum sínum árum saman vegna rangláts kvótakerfis, þenslu á höfuðborgarsvæðinu og ruðningsáhrifa stóriðjuframkvæmdanna, er hlaupið upp til handa og fóta til að bjarga fyrirtækjum og lánastofnunum sem hafa vaðið áfram í offjárfestingum á höfuðborgarsvæðinu. (meira…)

Komnir með nýjan makker en þá hvarf fiskurinn.

Það hefur verið lítið að sjá undanfarið og ekki mikið fiskirí á bátunum. Við vorum um tíma komnir inn í Færeysku landhelgina en Íslensku skipin geta ekki verið þar endalaust enda makríllinn í kvóta þar og eiga Íslendingar ekki nema 1600 tonn. Það verður því að ná kvikindunum í okkar landhelgi. Það er reyndar vandi […]

Frábær árangur hjá IBV og mikill lundi í Eyjum

Óska ÍBV-strákunum til hamingju með sigurinn gegn Selfossi. Þetta Selfoss-lið olli mér töluverðum vonbrigðum og staða þess í deildinni ekki í nokkru samræmi við þennan leik, en okkar menn voru einfaldlega miklu betri á öllum sviðum og greinilegt, að þeir á Selfossi þurfa aðeins að taka til í vörninni hjá sér. (meira…)

Glæsilegt flug Gæslunnar yfir Stokkseyri

Landhelgisgæslan voru sérstakir gestir Bryggjuhátíðarinnar á Stokkseyri í fyrrakvöld. Ein af stóru þyrlunum lenti á Stokkseyrarbryggju og var áhöfninni boðið til hátíðarkvöldverðar á veitingahúsinu Við Fjöruborðið. Fokker – flugvél Landhelgisgæslunnar var með flugsýningu yfir höfninni og ströndinni og þyrlan tók sig á loft af Stokkseyrarbryggju og var með björgunar- og flugsýningu. Fjölmennin var á Stokkseyrarbryggju […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.