Meðan almennir íbúðaeigendur á landsbyggðinni hafa búið við verðfall á íbúðum sínum árum saman vegna rangláts kvótakerfis, þenslu á höfuðborgarsvæðinu og ruðningsáhrifa stóriðjuframkvæmdanna, er hlaupið upp til handa og fóta til að bjarga fyrirtækjum og lánastofnunum sem hafa vaðið áfram í offjárfestingum á höfuðborgarsvæðinu.