Varnarjaxlinn Páll Þorvaldur Hjarðar hefur gengið til liðs við 3. deildarlið KFS og mun leika með liðinu út sumarið. Páll hefur ekkert leikið með ÍBV í sumar og núna hefur hann ákveðið að fara í KFS. Í fyrra skoraði Páll tvö mörk í nítján leikjum fyrir ÍBV í fyrstu deildinni. Undanfarin ár hefur Páll verið fastamaður í liði Eyjamanna en hann hefur áður leikið með KFS.