�?orláksmessa í dag 20. júlí.
Messa Þorláks Þórhallssonar biskups sem haldin er í desember miðast við ártíð hans en hann lést sextugur að aldri 23. desember árið 1193. Jarðneskar leifar Þorláks voru teknar upp og lagðar í skrín í Skálholtskirkju þann 20. júlí 1198 og var Þorláksmessa að sumri lögfest árið 1237 og var ein mesta hátíð ársins fyrir siðaskipti. […]
Tilviljun ein réði því að ferðamannabáturinn var á sömu slóðum

Nú síðdegis í dag var litháískum kajakræðara bjargað um borð í ferðamannabátinn Víking sem fyrirtækið Viking Tours gerir út. Kajak mannsins var á hvolfi og fullur af sjó þegar að var komið en samkvæmt þeim upplýsingum sem fengust hjá lögreglunni í Vestmanneyjum, hafði maðurinn ákveðið að reyna synda í land. Hann var hins vegar staddur […]
Segir bensínokrinu stríð á hendur

Eggert Björgvinsson, tónlistakennari hefur fengið nóg af bensínhækkunum að undanförnu. Hann hefur nú sagt bensínokrinu stríð á hendur og fer nú um flestra sinna ferða á rafmagnsreiðhjóli. „Ég keypti þetta notað af einhverri konu í Reykjavík og fékk hjólið nú í byrjun vikunnar, sagði Eggert við blaðamann þegar þeir hittust í miðbænum.” (meira…)
Martha Stewart snæddi með forsetahjónunum á Stokkseyri
Bandaríski lífsstílsfrömuðurinn, Martha Stewart, er stödd hér á landi. Hún snæddi humar með forsetahjónunum, Ólafi Ragnari Grímssyni og Dorrit Moussaieff, á veitingastaðnum Við Fjöruborði á Stokkseyri í gærkvöldi, ásamt fleira fólki. Martha og Dorrit eru gamlar vinkonur. (meira…)
Uppreisn ellinnar
Árni Valdimarsson sem oftast er kenndur við Fasteignasöluna Bakka á Selfossi og margir muna sem bankastjóra Landsbanka Íslands í þorpunum við Ströndina; Þorlákshöfn Eyrarbakka og Stokkseyri lá banaleguna fyrir fimm árum. Árni hefur nú gert glæsilega hluti á Eyrarbakka sem sjá má hér á myndskeiði af mbl.is og kallað er “Uppreisn ellinnar” Klikkið á slóðinu […]
Eyjamenn fengu þrjár brottvísanir

KFS tók á móti Árborg á Týsvellinum í kvöld en Árborg var fyrir leikinn í öðru sæti A-riðils 3. deildar á meðan KFS var í fimmta sæti en einungis munaði fimm stigum á liðunum. Sigur var því lífsnauðsynlegur fyrir Eyjamenn ef þeir ætluðu sér að blanda sér í toppbaráttu riðilsins en Árborgarmenn skoruðu tvö mörk […]
Hermann skoraði fyrir Portsmouth

Hermann Hreiðarsson skoraði fyrsta mark ensku bikarmeistaranna í Portsmouth í kvöld þegar þeir sigruðu Swindon Town, 3:1, í æfingaleik sem fram fór í Swindon. Hermann skoraði markið á 36. mínútu og jafnaði þá metin, 1:1. Skömmu áður átti hann mikinn þrumufleyg af 30 metra færi sem markvörður 2. deildarliðsins varði naumlega í horn. Hermann kom […]
Verðlaun í ljóðasamkeppni fanga.
Verðlaun voru veitt í ljóðasamkeppni fanga á Litla-Hrauni í dag. Sjö fangar tóku þátt og voru ljóðin samtals 27. Einar Már Guðmundsson las sigurljóðið og hrósar skáldskap fanganna. Sjá má frá athöfninni hér undir. http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4397991/12 (meira…)
Jón á Hofi ÁR 42 er kominn nokkuð vel yfir 200 tonnin
Jón á Hofi ÁR 42 er kominn nokkuð vel yfir 200 tonnin og Skálafell ÁR er kominn yfir 100 tonnin. Annars vekur nokkra athygli hversu lítill munur er á nokkrum bátanna. Reginn er kominn með 10 tonn af humri enn ekki nema rúm 2 tonn af fiski. Ansi merkilegur aflinn hjá bátnum og með lang […]
Frábærar myndir úr fjallaferð �?skars

Einmuna veðurblíða hefur verið í Vestmannaeyjum í dag, sól og blíða og þeir sem hafa haft tækifæri til, hafa nýtt veðrið til útivistar. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari, brá undir sig betri fætinum og fór í fjallgöngu upp að Blátindi. Í fjallshlíðinni var nóg af lunda og hitti Óskar auk þess á lundaveiðimenn við iðju sína. […]
Tryggvi markahæstur í Evrópukeppni

Tryggvi Guðmundsson setti í gærkvöld nýtt met þegar hann skoraði tvö marka FH í sigrinum á Grevenmacher frá Lúxemborg í Kaplakrika. Tryggvi hefur nú skorað 8 mörk fyrir íslensk lið í Evrópukeppni, fleiri en nokkur annar, en fyrir leikinn voru hann og Mihajlo Bibercic jafnir með 6 mörk hvor. (meira…)
Jafntefli gegn Leikni

Eyjamenn léku í kvöld gegn Leikni í 1. deildinni. Bjarni Rúnar Einarsson kom ÍBV yfir á 35. mínútu og var staðan 0:1 í hálfleik. Lengi vel leit út fyrir að það yrðu lokatölurnar en þegar komið var fram yfir venjulegan leiktíma fengu Leiknismenn mjög umdeilda vítaspyrnu sem Jakob Spangsberg skoraði úr og jafnaði metin 1:1 […]
�?jónusta við tjónþola
Þjónustumiðstöð vegna Suðurlandskjálftanna 29. maí sl. er starfrækt í Tryggvaskála á Selfossi. Þeir sem orðið hafa fyrir tjóni vegna jarðskjálftanna sem ekki fæst bætt úr tryggingum eða telja sig ekki hafa fengið fullnægjandi úrlausn sinna mála geta snúið sér til þjónustumiðstöðvarinnar í Tryggvaskála. Þar verður tekið á móti öllum erindum og þau flokkuð og skráð. […]
Suðurey VE með mest aflaverðmæti ísfisktogara

Suðurey VE skilaði mestu aflaverðmæti ísfisktogara á síðasta ári eða 621 milljón króna. Gullver NS kom fast á hæla hennar með 619 milljónir króna og Bjartur NK var í þriðja sæti með 607 milljónir króna. Þetta kemur fram í samantekt Fiskifrétta sem byggð er á nýbirtri skýrslu Hagstofu Íslands um afla og aflaverðmæti einstakra skipa […]
Ljósmyndasýning á Stokkseyrarbryggju
Við formlega setningu Bryggjuhátíðar á Stokkseyri á föstudagskvöldinu 11. júlí s.l. opnaði Ásta Stefánsdóttir, starfandi bæjarstjóri í Árborg ljósmyndasýningu á neðri hæð Bryggjusviðsins. Eru þar 70 ljósmyndir Jóns Sigurgrímssonar f. 7. maí 1922 d. 29. júní 2008 frá Holti í Stokkseyrarhreppi hinum forna en hann var bóndi þar 1954 til 1995. Myndirnar eru af mannlífi […]
Mæta Leikni á útivelli í kvöld

Síðari umferð Íslandsmótsins í 1. deild karla í knattspyrnu hefst í kvöld með heilli umferð. ÍBV sækir Leikni heim í Breiðholtið en Leiknismenn hafa verið á ágætri siglingu að undanförnu, unnið síðustu tvo leiki sína og lyftu sér úr fallsæti. Á meðan hefur Eyjamönnum hins vegar gengið svo til allt í haginn, liðið fékk 30 […]
Minnsta júnísala frá upphafi í magni
Aðeins voru seld 6.034 tonn á íslensku fiskmörkuðunum í júní síðastliðnum sem er það minnsta sem selt hefur verið í þeim mánuði frá upphafi. Verðmæti aflans var aftur á móti það þriðja hæsta sem sést hefur, 1.142 milljónir, enda var meðalverð mjög hátt. Frá þessu er skýrt á vef Reiknistofu fiskmarkaða (meira…)
Fegurstu garðar Hveragerðis
Fegurstu garðar Hveragerðisbæjar voru valdir við hátíðlega athöfn í liðinni viku. Þrír garðar, Valsheiði 6, Reykjamörk 8 og Kambahraun 59, hlutu verðlaun. Fegursta fyrirtækjalóðin var valin Kjörís að Austurmörk 15. Sjá: www.hveragerdi.is (meira…)
Umsækjendur um starf forstjóra Veðurstofu Íslands
Ellefu sóttu um starf forstjóra nýrrar stofnunar sem verður til við sameiningu Veðurstofu Íslands og Vatnamælinga Orkustofnunar. Hin nýja stofnun mun bera nafn Veðurstofu Íslands. Umsóknarfrestur rann út 11. júlí síðastliðinn en gert er ráð fyrir að forstjórinn hefji störf hinn 1. ágúst næstkomandi til að undirbúa starfsemi hinnar nýju stofnunar. Eftirtaldir sóttu um starfið: […]
Unglingalandsmót UMFÍ í �?orlákshöfn
Um verslunarmannahelgina verður 11. Unglingalandsmót UMFÍ haldið á Þorlákshöfn. Þetta er því í 11. sinn sem mótið er haldið en nú eru Unglingalandsmótin haldin á hverju ári. Unglingalandsmót UMFÍ er vímuefnalaus fjölskylduhátíð þar sem börn og unglingar á aldrinum 11 – 18 ára reyna með sér í fjölmörgum íþróttagreinum. Samhliða er boðið upp á fjölbreytta […]