Ungmennafélagið Hekla 100 ára

Laugardaginn 26. júlí eru liðin 100 ár frá stofnun Ungmennafélagsins Heklu. Af því tilefni verður haldin afmælishátíð á sjálfan afmælisdaginn á íþróttasvæðinu á Hellu. Dagskráin hefst kl. 13:00 með fjölskyldutugþraut á íþróttavelli þar sem fjölskyldan keppir saman í fjölbreyttum greinum. (meira…)

Selfoss vann sameiginlegt lið Grindavík og Njarðvík 4-0

Strákarnir í 2. flokk Selfoss tóku á móti sameiginlegu liði Grindavík og Njarðvík í kvöld á Selfossvelli. Þetta var fyrsti leikur hjá ný ráðnum þjálfara 2. flokks Selfoss, Kristjáni Óla Sigurðssyni. Strákarnir sýndu úr hverju þeir eru gerðir og unnu leikinn 4-0. Mörk Selfoss skoruðu þeir Viðar Örn Kjartansson 3 en hann spilaði bara fyrri […]

Séra �?lfar Guðmundsson hættir 1. september

Séra Úlfar Guðmundsson hættir 1. september sem prestur í Eyrarbakkapretsakalli sakir aldurs og mun flytja á Selfoss. Hann hefur verið prestur á Eyrarbakka og búið þar í 28 ár en var áður prestur á Ólafsfirði. Séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson mun væntanlega taka við þjónustu Eyrarbakkaprestakalls er séra Úlfar hættir og verður prestakallið ekki auglýst laust […]

�?orláksmessa að sumri og sumarferð Hrútavina

Mikið skötuát hefur fylgt Þorláksmessu að vetri og eru glæsilegar skötuveislur um allt land þar sem gríðarlegur fjöldi fólks tekur þátt í þessum góða sið sem undanfara jólahalds. Skötuát er nú byrjað einnig á Þorláksmessu á sumri og má rekja upphaf þess til Hrútavina á Suðurlandi sem byrjuðu með skötuveislur í Lista- og menningarverstöðinni á […]

Afkoma hjá Eignarhaldsfélaginu Fasteign hf. umfram væntingar

Hagnaður af rekstri Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf., sem Vestmannaeyjabær er hluthafi í, var ríflega ein og hálf milljón evra, eða um 197 milljónir króna eftir skatta sem er töluvert umfram áætlun félagsins. Alls á félagið um 130 þúsund fermetra húsnæðis í rekstri eða á byggingarstigi og er verðmæti þess metið á um 33 milljarða króna. Þetta […]

Malbikun á Eyrarbakkavegi

Lagning malbiks stendur nú yfir á Eyrarbakkavegi vestan gatnamóta til Stokkseyrar og vestur fyrir Eyrarbakkabæ. Vegurinn var fræstur burtu af gamla malbikinu og hækkaður upp. Lögð út ný undirlög og síðan ný og betri slitlög sem efstu lög. Vestast á þessu svæði skemmdist vegurinn í jarðskjálftanum 29. maí s.l. (meira…)

Leiknir-Selfoss fimmtudaginn 24. júlí kl 20:00 á Leiknisvelli

Næsti leikur Selfyssinga er gegn Leikni úr efra Breiðholti og fer hann fram fimmtudaginn 24. júlí kl 20.00 á Leiknisvelli. Þegar búnar eru 12 umferðir í 1. deild karla í knattspyrnu, sitja Selfyssingar sem fastast í 2. sæti með 25 stig og markatöluna 30-17. Leiknir er sem stendur í 10. sæti deildarinnar með 12 stig […]

Messað í Stafkirkju á sunnudaginn

Næsta sunnudag, sunnudaginn 27. júlí kl. 11.00, verður guðsþjónusta í Stafkirkjunni, en ekki í Landakirkju. Sú venja hefur skapast hér í Eyjum, eftir að Stafkirkjan var tekin í gagnið, að síðasta sunnudag fyrir Þjóðhátíð sé messað í Stafkirkjunni. Sú guðsþjónusta kemur þá í staðin fyrir guðsþjónustu í Landakirkju. Að sjálfsögðu verður ekki vikið útfrá þessari […]

Nýr forstöðumaður Sundhallar Selfoss

Þórdís Eygló Sigurðardóttir er nýr forstöðumaður Sundhallar Selfoss og mun hún hefja störf í ágúst. Þórdís hefur lokið námi í rekstri og stjórnun við Háskólann á Akureyri en hún hefur starfað sem vaktformaður við Vesturbæjarlaug í rúm 12 ár. (meira…)

Tap hjá Gunnari Heiðari og félögum

Gunnar Heiðar Þorvaldsson lék sinn fyrsta leik með Esbjerg í dönsku úrvalsdeildinni í dag. Gunnar var í byrjunarliðinu og lék allan leikinn þegar liðið tapaði fyrir FC Köbenhaven eina mark leiksins kom í síðari hálfleik. Gunnar gekk í raðir Esbjerg í sumar frá Hannover en eins og fyrr segir var þetta hans fyrsti leikur í […]

Kotmótið á sínum stað um verslunarmannahelgina

Kristilegt mót um verslunarmannahelgina til að lofa og upphefja Jesú Krist, Kotmót er nú haldið í 56 skipti. Boðið verður upp á lifandi tónlist, líflegar samkomur, varðeldur auk þess verður fjölbreytt dagskrá fyrir börnin á sérstöku barnamóti.Mótið verður haldið í Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð 31. júlí til 4. ágúst. (meira…)

Hallgrímur Íslandsmeistari í holukeppni

Kylfingurinn efnilegi Hallgrímur Júlíusson í Golfklúbbi Vestmannaeyja, bætti enn einni rósinni í hnappagatið um helgina þegar hann fagnaði sigri í Íslandsmótinu í holukeppni. Mótið er ennfremur hluti af Kaupþingsmótaröðinni en Hallgrímur hefur sigrað á þremur síðustu mótum. Þá varð Sigríður Lára Garðarsdóttir, GV í þriðja sæti í stelpnaflokki. (meira…)

Hitabeltisstormurinn Berta nálgast landið

Það er ekki oft sem leifar fellibylja gerast nærgöngular á okkar slóðum. Á haustin, þ.e. í september kemur fyrir að úr sér gengnir fellibylir ganga í endurnýjun lífdaga ef þeir ná inn í vestanvindabeltið og í veg fyrir nýmyndaða lægð. Það er þó frekar fátítt, en afleiðingin gjarnan sú að hér gerir vitlaust veður. (sjá […]

Lundafréttir

Það er búið að vera ágætis veiði síðustu 3 dagana hjá mér, en 3 daga þar á undan var nánast engin veiði. Veðurfar hefur verið mjög óhagstætt og sérstaklega er hægviðri og ríkjandi norðlægar áttir mjög erfiðar, en úr því á nú að rætast eftir helgi. Ef einhver hefur áhuga á að sjá undirritaðan við […]

Eftirmaður Friðriks?

Nokkur eftirvænting ríkir um það hver verði arftaki Friðriks Sophussonar, forstjóra Landsvirkjunar, þegar hann fer á eftirlaun í haust. Stjórn Landsvirkjunar mun ákveða hver taki við starfinu en Sjálfstæðisflokkurinn telur sig eiga starfið. (meira…)

Stöðugt er heitið á Strandarkirkju

STÖÐUGT er heitið á Strandarkirkju, að sögn sr. Baldurs Kristjánssonar. Hann messar þar annan hvern sunnudag yfir sumarið. „Áheitin fóru vaxandi á árunum 2003-2006 og hafa náð jafnvægi nú,“ sagði Baldur. „Það segir í gömlum munnmælum að Strandarkirkja borgi fyrir sig. Fólki þykir það og segir sögur af því.“ (meira…)

Eldur í íbúðarhúsi í Holti

Slökkvilið Brunavarna Árnessýslu var kallað út laus eftir klukkan 14:00. Tilkynning barst til Neyðarlínunnar um að eldur væri laus í íbúðarhúsinu að Holti sem er í Stokkseyrarhrepp. Er slökkvilið kom á vettvang var eldur enn laus á neðstu hæð hússins. (meira…)

Humarvertíð með afbrigðum góð

Humarvertíðin, sem nú er að ljúka, hefur verið með afbrigðum góð, segja útgerðarmenn. Síðustu tvö ár hafa verið metár, segir Halldór Þorláksson, skipstjóri á Þorsteini Gíslayni sem gerir út frá Grindavík. Gott verð hefur fengist fyrir humarinn að hans sögn en í Grindavík er vertíðinni formlega lokið. Í Þorlákshöfn, Vetstmannaeyjum og Höfn í Hornafirði er […]

Tveir teknir fyrir ölvunarakstur á Selfossi

Lögreglan á Selfossi stöðvaði tvo ökumenn í nótt og í morgun grunaða um ölvunarakstur. Rétt fyrir klukkan átta í morgun var bifreið stöðvuð á þjóðveginum fyrir utan Selfoss og ökumaður færður á lögreglustöð, grunaður um ölvun. Maðurinn reyndist mjög ölvaður og var áfengismagn í líkama hans langt yfir leyfilegum mörkum. Að sögn lögreglu var maðurinn […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.