Veðrið um verslunarmannahelgina

Verslunarmannahelgin nálgast og spáin sem hér er birt gefur grófa mynd af veðrinu um helgina. Hafa ber í huga að spár helgarinnar verða nákvæmari þegar nær dregur. Spáin verður endurskoðuð aftur á morgun, 29. júlí. (meira…)

Verið að vinna í 26 nýjum hústjöldum

Svo virðist, sem gífurleg aðsókn verði að Þjóðhátíðinni í ár. Örfá sæti eru laus í ferðum til Eyja fyrir hátíðina. Skv. upplýsingum flutningsaðila, er allt að seljast upp. Þá er ljóst að heimamenn ætla ekki að láta sitt eftir liggja. Hjá Eyjablikk og Seglagerðinni Ægi er verið að vinna í 26 nýjum hústjöldum af stærri […]

Ráðist að lögreglumönnum í Eyjum

Töluverður erill var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í síðustu viku en tvö fíkniefnamál komu upp. Um var að ræða lítilsháttar af kannabisefni sem var ætlað til eigin nota. Í öðru málinu var ökumaður bifreiðar kærður vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Um helgina var annar aðili handtekinn og kærður fyrir að ráðast að lögreglumönnum […]

Bogmil og Miljónamæringarnir í �?rastarlundi

Um verslunarmannahelgina verða Bogomil og Miljónamæringarnir með miðnæturtónleika í Þrastalundi við Sogið.Þeir verða bæði föstudag 1. og laugardag 2. ágúst. og hefjast, já hvern skyldi gruna, á miðnætti. (meira…)

Hvorki evra né fastgengi

Undanfarin ár hefur gengi íslensku krónunnar ráðist á markaði. Þá er gengið í samræmi við aðstæður í íslenska hagkerfinu á hverjum tíma. Þegar mikill halli er á viðskiptum við útlönd um langan tíma endar með því að gengið fellur og innlendir aðilar verða að draga saman seglin. (meira…)

Bjargveiðimenn ætla að veiða til 15. ágúst

Í kvöld funduðu bjargveiðimenn í Bjargveiðimannafélagi Vestmannaeyja um áframhaldandi veiðar á lunda. Félagið hafði áður samþykkt að stytta lundaveiðitímabilið í báða enda en það þýddi að veiðum yrði hætt nú um mánaðarmótin. Hins vegar var einnig ákveðið að endurskoða þá tillögu nú og vegna góðrar afkomu lundans, hefur verið ákveðið að lundaveiði haldi áfram til […]

Kristján �?ór og Helena Íslandsmeistarar

Íslandsmótinu í höggleik í golfi lauk á golfvellinum í Vestmannaeyjum í kvöld. Óhætt er að segja að spennustigið hafi verið hátt, bæði í karla- og kvennakeppni og í raun hefur sjaldan eða aldrei verið jafn mikil spenna í báðum flokkum. Tvöfaldan bráðabana þurfti í báðum flokkum en sigurvegarar urðu Helena Árnadóttir, GR og Kristján Þór […]

Höllin – óskabarn Eyjamanna!!!

Fréttablaðið Vaktin fjallaði um málefni Hallarinnar í útgáfunni á föstudag, þetta er náttúrulega enn ein sorgarfréttin af þessu blessaða húsi. Það er alveg með ólkindum hvernig málefnum Hallarinnar er háttað – þetta er að verða svona eins og sagan endalausa -spurning bara eftir hvern tónlistin verður. Að hugsa sér að eftir öll þessi ár skuli […]

Lundanum fækkar líka á Englandi

Á Sky fréttasjónvarpsstöðinni var í dag sagt frá vandamálum í breska lundastofninum á eyjunni Farne, þar sem fjórða stærsta lundabyggð Bretlandseyja er. Fækkað hefur um 34% af stofninum á Farne eyju og óttast fuglafræðingar ytra að lundanum sé að fækka meira en eðlilegt geti talist. Fyrir fimm árum var talið að um 55.000 lundapara hafi […]

Harður árekstur á Selfossi

Harður árekstur varð um tvöleytið í dag á gatnamótum Suðurlandsvegar og Biskupstungnabrautar. Farþegar og ökumenn voru fluttir á heilbrigðisstofnunina til skoðunar en fengu að fara heim að henni lokinni þar sem allir reyndust óskaddaðir. Bílarnir munu vera töluvert skemmdir og voru dregnir burt. (meira…)

Nína Björk og Heiðar Davíð með forystu fyrir lokadaginn

Nína Björk Geirsdóttir, GKj er með eins höggs forystu eftir þriðja keppnisdag í Íslandsmótinu í golfi. Helena Árnadóttir, GR, er í öðru sæti en Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO og Tinna Jóhannsdóttir, GK eru jafnar í þriðja og fjórða sæti, þremur höggum á eftir Nínu Björk. Í karlaflokki hefur Heiðar Davíð Bragason, GR tekið forystu, hefur […]

Búið að rífa dúkinn í gamla salnum

Eins og fram hefur komið hér á vefnum var á dögunum ákveðið að setja parkett í gamla íþróttasal Íþróttamiðstöðvarinnar. Hafist var handa eftir hádegi í dag við að rífa dúkinn og undirlagið af svo framkvæmdir geti hafist en áætlað er að byrja á því að leggja nýja parketið eftir Þjóðhátíð. Það tók vaska sveit iðnaðarmanna […]

Stefnt að því að klára útisvæðið fyrir næsta sumar

Lítið hefur orðið um framkvæmdir á útisvæði sundlaugarinnar í Vestmanna­eyjum en síðasta vetur lagði bæjarstjórn Vestmannaeyja áherslu á að laga skyldi útisvæðið, helst fyrir sumarið sem nú líður. Tafir vegna hönnunar svæðisins hafa orðið til þess að ekkert verður úr framkvæmdum fyrr en í fyrsta lagi í haust. (meira…)

Sæstrengir um friðland Surtseyjar

Lagning tveggja ljósleiðarastrengja um 2,5 km kafla á verndarsvæðinu við Surtsey er ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Skipulagsstofnun kvað upp úrskurðinn í gær. Farice tilkynni í byrjun apríl um fyrirhugaða lagningu og leitaði Skipulagsstofnun umsagnar nokkurra aðila, þ. á m. Umhverfisstofnunar og Hafrannsóknastofnunar. Mat Umhverfisstofnunar var að breyta ætti fyrirhugaðri legu strengjanna svo þeir liggi […]

�?ruggur sigur Eyjamanna gegn �?ór

Eyjamenn lögðu í kvöld Þór frá Akureyri að velli 4:1. Eyjamönnum var þó brugðið á 8. mínútu þegar gestirnir komust yfir en bæði fyrir og eftir mark gestanna voru Eyjamenn mun sterkari. Eyjamenn skoruðu hins vegar tvö mörk í sitthvorum hálfleiknum og lokatölur því 4:1 eftir að staðan hafði verið 2:1 í hálfleik. Atli Heimisson, […]

Björgvin og Eygló Mirra efst eftir fyrsta daginn

Fyrsta degi Íslandsmótsins í höggleik lauk um átta í kvöld en nokkuð rættist úr veðrinu þrátt fyrir leiðinda veðurspá. Þótt völlurinn hafi verið nokkuð blautur, rigndi ekki mikið í dag og vindurinn var vel viðráðanlegur. Efstur eftir fyrsta dag er sjálfur Íslandsmeistarinn Björgvin Sigurbergsson, GK en hann fór hringinn á 66 höggum eða fjórum undir […]

�?rslit og markaskorarar kvöldsins

Þrír leikir fóru fram í fyrstu deild karla í kvöld. Topplið ÍBV heldur sínu striki en liðið sigraði Þór 4-1. Sævar Þór Gíslason tryggði Selfyssingum útisigur á Leikni með tveimur mörkum seint í leiknum. Njarðvík og Víkingur Ólafsvík gerðu 1-1 jafntefli. (meira…)

Atvinnuþróunarfélag Suðurlands úthlutar styrkjum

Atvinnuþróunarsjóður Suðurlands úthlutaði á fundi þann 2. júlí s.l. styrkjum til atvinnuþróunar á Suðurlandi. Fundurinn var haldinn í Þingborg í Flóahreppi. Til úthlutunar voru 5 milljónir króna. 32 umsóknir bárust og af þeim uppfylltu 23 skilyrði fyrir styrk. Eftirtaldir hljóta styrk: (meira…)

Íslandsmótið í höggleik hafið

Íslandsmótið í höggleik hófst á golfvellinum í Vestmannaeyjum um klukkan sjö í morgun en það var bæjarstjóri Vestmannaeyja, Elliði Vignisson sem sló upphafshöggið af 1. teig. Upphafshöggið gefur vonandi fyrirheit um það sem koma skal því bæjarstjórasveiflan var í góðu lagi og Elliði smellhitti boltann. Veðrið er þó ekki að hjálpa Eyjamönnum þessa stundina, nokkur […]

Fyrri hálfleikur varð ÍBV að falli

Eyjastúlkur fóru illa að ráði sínu í fyrri hálfleik í kvöld þegar liðið tók á móti efsta liði A-riðils 1. deildar, ÍR. Það var engu líkara en að leikmenn ÍBV væru annars hugar því gestirnir frá Reykjavík áttu ekki í miklum vandræðum með að byggja upp spil og 0:3 forysta þeirra í hálfleik fyllilega verðskulduð. […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.