Um verslunarmannahelgina verður 11. Unglingalandsmót UMFÍ haldið á Þorlákshöfn. Þetta er því í 11. sinn sem mótið er haldið en nú eru Unglingalandsmótin haldin á hverju ári.
Unglingalandsmót UMFÍ er vímuefnalaus fjölskylduhátíð þar sem börn og unglingar á aldrinum 11 – 18 ára reyna með sér í fjölmörgum íþróttagreinum. Samhliða er boðið upp á fjölbreytta afþreyingu, leiki og skemmtun fyrir alla fjölskylduna.