María Þórisdóttir, 15 ára stelpa frá Selfossi (fædd 1993), leikur í norska U-16 ára landsliðinu, en það tekur nú þátt í Norðurlandamótinu sem fram fer á Íslandi þessa dagana.
Tveir landsleikir fara fram á Selfossi. María hefur á hverju sumri komið á Selfoss og dvalið hjá ömmu sinni og afa, þeim Fanneyju og Hergeiri á Birkivöllunum. Þegar hún hefur dvalið hér hefur hún iðulega mætt á fótboltaæfingar hjá yngri flokkum Selfoss.