Nú er ljóst að fyrirliði karlaliðs ÍBV í knattspyrnu, Matt Garner verður frá vegna meiðsla næstu sex vikurnar. Garner hefur leikið einstaklega vel í sumar, líklega hans besta tímabil síðan hann spilaði fyrst með liðinu fyrir fjórum árum síðan. Auk þess hefur hann borið fyrirliðabandið í sumar hjá ÍBV og verið góður leiðtogi fyrir hið unga lið ÍBV, bæði innan vallar og utan. Meiðsli hans eru því gríðarlegt áfall fyrir Eyjamenn.