Fundur hjá Frjálslyndum

Var haldinn föstudaginn 25. apríl 2008 á Café Kró í Vestmannaeyjum. Fundurinn var ekki fjölmennur en góður, en það vakti athygli mína að enginn fréttamaður frá bæjarblöðunum í eyjum sá ástæðu til að mæta (en þáðu þó greiðslu fyrir að auglýsa fundinn), en væla svo reglulega yfir því að þingmennirnir láti aldrei sjá sig í […]
Landhelgisgæslan stóð Norðmenn að meintum ólöglegum veiðum

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNÁ, stóð norska línuveiðiskipið Gayser Senior að meintum ólöglegum veiðum inni á lokuðu svæði í Skaftárdjúpi undan Suðausturlandi, við eftirlit í gærkvöld. Svæðið er lokað með reglugerð um friðun hrygningarþorsks og skarkola á vetrarvertíð og hefur verið lokað á þessum tíma undanfarin ár. (meira…)
Eagles tónleikunum frestað um klukkustund

Tónleikar Eagles tribute í Höllinni á miðvikudagskvöld hefjast eftir leik Chelsea – Liverpool eða klukkan 21:30 í stað 20:30 eins og áður var auglýst. Þetta er gert til að mæta kröfum frá fólki sem vil endilega mæta en vill heldur ekki missa af leiknum þannig að við seinkuðum tónleikunum um klukkutíma þannig að sem flestir […]
Hlynur vill ekki útiloka formannsframboð

Ársþing HSÍ fer fram 17. maí næstkomandi. Það má búast við athyglisverðu þingi enda ku liggja fyrir þinginu áhugaverðar tillögur sem verða kynntar í vikunni. Ein tillagan snýr meðal annars að því að stækka stjórn HSÍ úr sjö mönnum í níu. Stjórnarmenn yrðu síðan formenn nefnda innan sambandsins. Aðeins yrði því kosið um formann og […]
Menningarstyrkir – úthlutun vor 2008
Alls bárust 18 umsóknir til Lista- og menningarnefndar Sveitarfélagsins Árborgar að þessu sinni að upphæð kr. 5.250.000.- Til úthlutunar voru 1.100.000 þúsund að þessu sinni og hlutu eftirtaldir aðilar styrk að þessu sinni: (meira…)
Ný tækni á skurðstofu HSu á Selfossi
Nýlega var tekið í notkun á skurðstofu HSu svokallað Coblations tæki sem notað er til háls- og nefkirtlatöku, aðgerða vegna kæfisvefnsvandamála og aðgerða í nefholi t.d. hrotuaðgerðir. (meira…)
Magnaðir tónleikar hjá Tríkot og Lúðró

Í gærkvöldi voru haldnir einhverjir bestu tónleikar sem haldnir hafa verið í Eyjum síðustu ára þegar stuðbandið Tríkot, Lúðrasveit Vestmannaeyja og Lúðrasveit Verkalýðsins leiddu saman hesta sína. Höllin, sem rúmar um 500 manns, var þéttsetin og var bætt við stólum svo allir gætu notið tónleikana. Sveitirnar léku svo á alls oddi og voru fjórum sinnum […]
Valsmenn fóru létt með ÍBV í síðasta heimaleik tímabilsins.
Valsmenn voru ekki í miklum vandræðum með ÍBV-liðið í dag þegar liðin mættust í næst síðustu umferð N1-deildarinnar. Fyrri hálfleikur var ágætur og mun jafnari en í þeim síðari tóku Valsmenn öll völd á vellinum og Eyjamenn gáfust flestir upp. Lokatölur urðu 24:38 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 13:16 en þetta var jafnframt […]
Flugslysaæfingin vel heppnuð

Í gær, laugardag fór fram viðamikil flugslysaæfing á flugvellinum í Vestmannaeyjum. Fjölmargir tóku þátt í æfingunni, bæði í Vestmannaeyjum og víðar um landið en um 300 manns tóku þátt í æfingunni með einum eða öðrum hætti. Á æfingunni var gert ráð fyrir að flugvél, með um 40 manns um borð, hlekktist á við lendingu með […]
Kærir Árna Johnsen

Aðstoðarvegamálastjóri hefur ákveðið að kæra Árna Johnsen fyrir brot á hegningarlögum sem varðað getur allt að árs fangelsi. Árni hafi vegið að honum sem opinberum starfsmanni og lögfræðingi. Gunnar Gunnarsson aðstoðarvegamálastjóri segist hafa tekið ákvörðun um að kæra Árna Johnsen eftir greinarskrif hans í Morgunblaðinu í dag. (meira…)
Stóru upplestrarkeppninnni er lokið
Stóru upplestrarkeppninnni er nýlega lokið. Aldrei hafa fleiri skólar tekið þátt og er það vel þar sem nú er tíu ára afmæli keppninnar. Í upphafi voru örfáir skólar þátttakendur en í ár eru nánast allir skólar Íslands með. Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri atti kappi við skólana á Selfossi og í Hveragerði. (meira…)
Efling og Boðinn sameinast
Aðalfundur Eflingar 23. apríl sl. samþykkti einróma að sameinast Verkalýðs- og sjómannafélaginu Boðanum, að því er segir í fréttatilkynningu á vefsíðu Eflingar. „Þetta er mjög söguleg ákvörðun,“ segir Sigurður Bessason, formaður Eflingar. „Okkur þykir mjög mikilvægt að bæði félögin hafa samþykkt þetta með svo afgerandi hætti, fyrst Boðinn með nánast samhljóða atkvæðagreiðslu og svo Efling […]
Krían er komin
Íslenskar kríur leggja árlega að baki 30-40 þúsund kílómetra ferðalag. Elsta merkta íslenska krían sem hefur endurheimst var á 22. aldursári. Því er ekki ósennilegt að hún og jafnöldrur hennar hafi þá þegar flogið sem svarar fjarlægðinni til tunglsins (384 þúsund km) og aftur til baka. Fyrstu kríu vorsins á landinu varð vart fyrr í […]
Sól á Suðurlandi skora á �?ssur
Samtökin Sól á Suðurlandi skora á Össur Skaprhéðinsson iðnaðarráðherra að veita Landsvirkjun ekki virkjanaleyfi í neðri hluta Þjórsár. Í tilkynningu frá samtökunum segir: (meira…)
Grindavík hafði betur í Lengjubikarnum

Grindavík lagði ÍBV 1-0 í A deild Lengjubikars karla í Reykjaneshöllinni í gærkvöldi en um var að ræða frestaðan leik úr riðlakeppninni. Grindvíkingar voru öllu sterkari aðilinn í leiknum og skoruðu sigurmarkið nokkrum mínútum fyrir leikslok. Þá sneru Grindvíkingar vörn í sókn, Scott Ramsay sendi fyrir á Alexander Veigar Þórarinsson sem skoraði sigurmarkið. Bæði lið […]
Heilsustofnun fékk umhverfisverðlaun
Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti umhverfisverðlaun Hveragerðisbæjar fyrir árið 2008 á opnu húsi á Reykjum í Ölfusi á sumardaginn fyrsta. Í þetta sinn ákvað umhverfisnefnd Hveragerðisbæjar að veita Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands umhverfisverðlaunin fyrir framlag sitt til lífrænnar ræktunar, almennrar heilsueflingar og fyrir að umhverfi stofnunarinnar er jafn-snyrtilegt og fallegt og raun ber vitni. […]
Steinbrú að hætti Rómverja
„ÞAÐ fylgja þessu verki nokkrir sprungnir fingur. Það er alltaf blóð en sjaldan gröftur,“ segir hleðslumeistarinn Guðjón Kristinsson frá Dröngum á Ströndum en býr á Selfossi og hlær upp í vindinn sem blæs hressilega af hafi þar sem hann er staddur á Korpúlfsstaðagolfvellinum. Þar er hann ásamt þeim Gunnari syni sínum og Guðlaugi Skúlasyni að […]
Ný hjúkrunardeild tekin í notkun
Deildin var vígð við formlega athöfn í dag 25. arpíl að viðstöddum Heilbrigðisráðherra Guðlaugi Þór Þórðarsyni, þingmönnunum Kjartani Ólafssyni og Guðna Ágústssyni, sveitarstjórnarmönnum, starfsfólki o.fl. Magnús Skúlason forstjóri HSu og Anna María Snorradóttir, hjúkrunarforstjóri lýstu þeirri starfsemi sem fyrirhuguð er og Magnús sagði frá þeirri uppbyggingu sem á sér stað á vegum stofnunarinnar.Hörpukórinn, kór aldraðra […]
Stífar æfingar hjá Tríkot og Lúðró

Það hefur verið líf og fjör í Höllinni undanfarna daga en stuðbandið Tríkot og Lúðrasveit Vestmannaeyja og Verkalýðsins hafa æft stíft fyrir stórtónleikana á morgun, laugardag. Enn er hægt að nálgast miða í forsölu á bensínsölunni Kletti en Sæþór Vídó, söngvari Tríkot segir sveitirnar hafa smollið eins og flís við rass. (meira…)
Frjálslyndir og Framsókn funda í Eyjum

Í kvöld, klukkan 20.00 munu þeir Grétar Mar Jónsson, þingmaður Suðurkjördæmis og Guðjón Arnar Kristjánsson, þingmaður og formaður Frjálslynda flokksins, halda fund á Kaffi Kró. Fundarefnið er atvinnu-, samgöngu- og efnahagsmál. Þá verður rætt um Evrópursambandsaðild og hugsanleg áhrif á Vestmannaeyjar. Á mánudag er svo komið að Framsóknarmönnum að funda í Eyjum. (meira…)