Eyverjar ánægðir með þriggja ára áætlunina

Stjórn Eyverja, félags ungra Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum, lýsir yfir mikilli ánægju með þriggja ára áætlun bæjarstjórnar Vestmannaeyja. Stórskipahöfn, knattspyrnuhús, menningarhús, uppbygging á útisvæði sundlaugarinnar og efling háskólanáms og Þekkingar -og fræðaseturs eru allt framkvæmdir sem vekja gleðitilfinningar á meðal ungmenna og tákn um framfaraskref í rétta átt að sterkara byggðalagi. (meira…)

Minni afli en í fyrra

Árlegu netaralli, sem hófst 2. apríl, fer senn að ljúka. Aðeins er eftir að ljúka sýnatöku á svæðinu fyrir norðaustan land en gert er ráð fyrir að það klárist um helgina. Sjö bátar hafa tekið þátt í netarallinu. Arnar SH var í Breiðafirði, Saxhamar SH í Faxaflóa, Friðrik Sigurðsson ÁR á svæðinu frá Reykjanesi að […]

Gamlar fréttir á sýningu í �?orlákshöfn

Á sumardaginn fyrsta var í þriðja skipti opnuð myndasýning í skrúðgarði Þorlákshafnar. Heiðurinn að nýrri sýningu á þorlákshafnarbúinn Magnús Haraldsson. Magnús er mikill áhugmaður um sögu staðarins og hefur safnað ljósmyndum er tengjast upphafi byggðar í Þorlákshöfn. (meira…)

Um 20 fengið gögn vegna jarðvegsvinnu

Tilboðsfrestur vegna útboðs á jarð­vegsframkvæmdum vegna fyrirhug­aðs knattspyrnuhúss rennur út 29. apríl. Ólafur Snorrason, fram­kvæmda­stjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, sagði að hátt í tuttugu útboðsgögn hefðu verið send út og greinilegur áhugi fyrir verkinu enda um stórt verk að ræða. Tilboð verða opnuð sama dag og útboðsfrestur rennur út. Samkvæmt þriggja ára áætlun bæjarins fara 280 […]

Fækkun íbúa að baki?

Í þriggja ára áætlun Vest­mannaeyjabæjar er m.a. fjallað um íbúaþróun næstu ára. Í framsögu Elliða Vignis­sonar, bæjarstjóra kemur fram að gert re ráð fyrir að íbúum í Vestmanna­eyjum hætti að fækka árið 2008 og fjölgi um 1% á árunum 2009,2010 og 2011. Fækkun íbúa hefur verið nánast stöðug 1993 en fækkun árið 2007 er ein […]

Hefur Græn­landsiðan áhrif á viðkomuna?

Á sunnudagskvöldið stóð Þekk­ingarsetur Vestmannaeyja fyrir opnu málþingi um ástand lunda og sandsílastofnanna við Vestmannaeyjar. Þar kom m.a. fram að þrjá árganga vantar orðið í lundastofninn í Vest­mannaeyjum vegna lélegrar nýlið­unar árin 2005, 2006 og 2007. Lagt er til að vegna þessa verði veiði mjög takmörkuð í ár og jafnvel að algjört veðibann verði sett […]

Tökum á – tökum til – hreinsunarátak

Hreinsunarátakið „Tökum á – tökum til“ hefst í Árborg í dag föstudaginn 25. apríl. Íbúar, stofnanir og fyrirtæki eru hvött til að nota daginn og taka til á lóðum sínum og í næsta umhverfi. Starfsmenn Ráðhúss og Framkvæmda- og veitusviðs ætla út að þrífa og taka til þennan dag. (meira…)

Umhverfisverðlaun Árborgar afhend á morgun 25. apríl

Á morgun, föstudaginn 25. apríl á Degi umhverfisins verða umhverfisverðlaun Árborgar afhend í Rauða húsinu á Eyrarbakka. Að gefnu tilefni verðu Ólafvíkuryfirlýsingin undirrituð en á ráðstefnu íslenska Staðardagskrárverkefnisins í Ólafsvík 12. – 13. október 2000 var gengið frá texta svo nefndrar Ólafsvíkuryfirlýsingar, sem síðan var send til allra sveitarstjórna á Íslandi til umfjöllunar og afgreiðslu. […]

120 ára afmælisfagnaður Kvenfélags Eyrarbakka

Kvenfélagið á Eyrarbakka fagnaði 120 ára afmæli sínu í dag sumardaginn fyrsta á glæsilegri afmælissamkomu að Stað á Eyrarbakka. Félagið var stofnað hinn 25. apríl 1888 af 16 konum, að tilstuðlan stúkunnar Eyrarrósarinnar. Félagið er elsta starfandi kvenfélagið á landsbyggðinni. (meira…)

Fámenn Sumarhátíð

Eins og vera ber var sumardeginum fyrsta fagnað en í Vestmannaeyjum var gengið fylktu liði frá Ráðhúsinu og upp í íþróttamiðstöð. Það var kannski ekki margt sem minnti á sumarið í dag, frekar kalt, hvasst og gekk á með skúrum sem orsakaði það að þátttaka í hátíðarhöldunum var í lágmarki. (meira…)

Berglind bæjarlistamaður ársins

Í morgun var tilkynnt hver hlyti útnefninguna Bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2008. Berglind Kristjánsdóttir, glerlistamaður varð fyrir valinu og fór afhendingin fram í sal Listaskóla Vestmannaeyja. Hljómsveitin The Foreign Monkeys hlaut útnefninguna fyrir árið 2007 og afhenti Gísli Stefánsson, Berglindi farandbikar auk þess sem Páley Borgþórsdóttir, formaður bæjarráðs, afhenti Berglindi viðurkenningarskjal. (meira…)

Sumarsýn eldri borgara

Tíðindamaður Sunnlenska fréttablaðsins sat í kvöldkaffi með nokkrum konum á Dvalarheimilinu Sólvöllum á Eyrarbakka fyrir skömmu. Þá komu enn einu sinni í ljós hin miklu menningarlegu verðmæti sem liggja í lífsreynslu og sýn eldri borgara og hvernig þau miðla slíku til hinna sem yngri eru, gefi þeir sér tíma til þessa að hlusta eftir slíku. […]

5.flokkur kvenna í góðum málum

Helgina 18.-20. apríl fór 5. flokkur kvenna á síðasta mót vetrarins. ÍBV fór með þrjú lið, eitt A-lið og tvö B-lið. A-liðið spilaði í 2. deild og gekk þeim mjög vel þar sem þær lentu í öðru sæti. Þær unnu alla leikina sína nokkuð sannfærandi en töpuðu svo einum. Þær voru oft að spila mjög […]

Vortónleikar 2008

Vortónleikar 2008: 1. fimmtudaginn 24. apríl, sumardaginn fyrsta í Selfosskirkju kl. 20:30 2. sunnudaginn 27. apríl í Háteigskirkju í Reykjavík kl. 17:00 3. þriðjudaginn 29. apríl í Selfosskirkju kl. 20:30 4. fimmtudaginn 1. maí í Árnesi kl. 20:30 5. laugardaginn 3. maí í Stykkishólmskirkju kl. 13:30 (meira…)

Íbúafjöldi í Flóahreppi

Samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands frá 1. apríl er íbúafjöldi í Flóahreppi 585 talsins, 309 karlar og 276 konur. Elsti íbúinn er 97 ára og 4 eru á fyrsta ári. 42 íbúar eru á aldrinum 1 árs til 5 ára, 94 á aldrinum 6-16 ára, 47 á aldrinum 17 til 20 ára og 398 á […]

Ungir karlmenn létu rúllast útaf plastpokarúllu á akstri.

Ungir karlmenn skemmtu sér við það er þeir óku um Langholt á Selfossi í vikunni að láta rúllast útaf plastpokarúllu á akstrinum. Til þeirra sást og náði lögregla til þeirra og gerði þeim að hirða upp pokana. Þeim var ekki skemmt við það en höfðu ekki annan kost. Þeir uppskáru svo háð frá öðrum vegfarendum […]

Mótmælaaðgerðir vörubílstjóra hafa ekki áhrif á áætlun Herjólfs

Allt bendir til þess að áætlun farþegaskipsins Herjólfs raskist ekki þrátt fyrir mótmælaaðgerðir vörubílstjóra á Suðurlandsveginum við Rauðavatn. Svo virðist sem farþegar og vöruflutningabifreiðar hafi sloppið við mótmælaaðgerðirnar en samkvæmt upplýsingum sem fengust um borð í Herjólfi var talsverður fjöldi farþega kominn til Þorlákshafnar. (meira…)

Fólksfjölgun dregst saman

Landsmenn voru 313.376 í byrjun árs og fjölaði þeim um 1,9 prósent á árinu 2007. Þetta kemur fram í Hagtíðindum Hagstofu Íslands. Fólksfjölgun hefur þó dregist saman frá árunum tveimur á undan, en árið 2006 var hún 2,6 prósent sem er með því mesta sem mælst hefur hér á landi. Fólksflutningar til landsins eru sagðar […]

Fróði ÁR 33 hefur verið seldur úr landi

Fróði ÁR 33 frá Stokkseyri hefur verið seldur úr landi og er afhending i mai og er mestar likur á að honum verði siglt beint til brotajárnsfyrirtækisins Fornaes í Danmörku þar sem að mörg islensk skip hafa endað ævi sina. Hver er saga þessa báts sem að er með lægsta skipaskrár númer i flotanum? (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.