Veiting Verðlauna Jóns forseta

HÁTÍÐ Jóns Sigurðssonar verður haldin í Jónshúsi í Kaupmannhöfn á morgun 24. apríl, sumardaginn fyrsta. Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, heldur hátíðarræðu og afhendir í fyrsta sinn Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta. Markmiðið með hátíðinni er að heiðra minningu Jóns Sigurðssonar og halda á lofti verkum hans og hugsjónum. (meira…)

Lundaráðstefnan

Það var fínasta mæting á lundaráðstefnuna í fyrradag og margt mjög merkilegt sem þar kom fram. Til að byrja með langar mig að samgleðjast þeim á setrinu, því að í máli þeirra kom fram að miklir fjármunir hefðu fengist að undanförnu til að stunda m.a. lundarannsóknir og er það að sjálfsögðu ánægjulegt. (meira…)

Stór flugslysaæfing í Eyjum á laugardag

Á laugardag verður flugslysaæfing á flugvellinum í Vestmannaeyjum en þá verða æfð viðbrögð við slysi þegar flugvél með 40 farþegum hlekkist á við lendingu. Um er að ræða viðamikla æfingu þar sem fjölmargir aðilar koma að, bæði innanbæjar og utan en meginþungi æfingarinnar liggur á herðum heimamanna. Á æfingunni verður gert ráð fyrir að eldur […]

Framkvæmdir að hefjast í Herjólfsdal

Nú eru að fara í gang talsverðar framkvæmdir í Dalnum. Tjaldsvæði hvítu tjaldanna verður stækkað talsvert á efri pallinum. Einnig verða dældir og ójöfnur sléttaðar, og skipt um jarðveg framan við Þórs- og Týsgötu. Þetta er gert til að bæta svæðið í heild sinni og mæta sífellt stækkandi hústjöldum. Einnig er það staðreynd, að Vestmannaeyingum, […]

Afmælis- og menningarhátíðin Vor í Árborg verður haldin 8. til 18 maí næstkomandi

Afmælis- og menningarhátíðin Vor í Árborg verður haldin 8. til 18 maí næstkomandi. Á þessum tíu dögum verður gestum og gangandi boðið upp á ýmsan fróðleik, skemmtun og og afþreygingu. Tónlistin verður í fyrirrúmi, kórar, klassík, jazz, rokk og dægurlög og þar mun gleðin rísa hæst þegar „Saga sveitaballanna verður rifjuð upp og helstu hljómsveitir […]

Frummatsskýrsla lögð fram og kynnt

Vegagerðin og Siglingastofnun hafa hafið kynningu á frummatsskýrslu fyrir byggingu Bakkafjöruhafnar, vegtengingar að henni frá hringveginum og efnistöku vegna framkvæmda á Seljalandsheiði og úr Markarfljótsaurum, samkvæmt Framkvæmdafréttum Vegagerðarinnar. Fram kemur að undirbúningur miðist við að framkvæmdir geti hafist í ár og að höfnin verði tekin í notkun 2010, en kostnaðaráætlun hljóðar upp á 5,6 milljarða […]

Samningur við Hjálparsveit skáta

Á fundi bæjarráðs Hveragerðis þann 17. apríl var samþykktur þjónustusamningur við Hjálparsveit skáta í Hveragerði. Með samningnum er fjárhagslegur grundvöllur sveitarinnar styrktur enda er bæjarráð þeirrar skoðunar að félagið sinni öflugu félags- og forvarnarstarfi ásamt því að vera mikilvægur hlekkur í öryggismálum bæjarbúa. (meira…)

Mikil aukning í fæðingum á HSu

Það sem af er árinu 2008 hefur orðið mikil aukning í fæðingum á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi miðað við árið 2007 sem var þó metár í fæðingum í lengri tíma en þá fæddust 177 börn. Í janúar hafa fæðist 15 börn sem er 7% aukning frá síðasta ári. Í febrúar fæddust 15 börn en 8 […]

�?að er góð veiði á miðunum og láta flest allir vel af sér

Byrjum á einni mynd af Kap VE 4, gamla bátnum mínum. Kolmunnaveiðar byrjuðu ekki vel hjá þeim en þeir fóru fyrir hálfum mánuði niður á Hatton-Rockall með ónýtt troll. Árangurinn var lítill sem enginn og menn ekki alveg nógu ánægðir með þetta enda vissu flestir að þessar þvottasnúrur, sem voru settar saman fyrir Ísleif VE, […]

Elísa og Dröfn í lokahóp U-18

Fjórar stelpur frá IBV hafa verið við æfingar með U-18 ára landsliðinu í handbolta, nú hefur lokahópur verið valin fyrir Norðurlandamót sem haldið er í Danmörku 9-12 maí n.k. Elísa Viðarsdóttir og Dröfn Haraldsdóttir voru báðar valdar í lokahópinn, þess má geta að Heiða Ingólfsdóttir var einnig í þessum hóp en þar sem hún er […]

Hafnir í vanda

Fjárhagsvandi flestra hafna á Íslandi er mikill og vaxandi. Þetta kom fram á málstofu samgönguráðs um stefnumótun í samgöngum sem haldin var fyrir helgi. Viðfangsefni fundarins voru samgöngur og byggðaþróun. Frá þessu er sagt á vef Siglingastofnunar. (meira…)

Brotist inn í Hvítasunnukirkju og sundlaugargarðinn

Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í vikunni sem leið og um helgina. Haft var afskipti af nokkrum ungmönnum sem ekki höfðu aldur til að vera inni á skemmtistöðum bæjarins og þeim vísað þaðan út. Þá héldu lögreglumenn áfram að kanna með ástand ökumanna og ökutækja í umferðarátaki því sem staðið hefur yfir á undanförnum […]

Álfur frá Selfossi á Ræktun 2008

Undirbúningur stórsýningarinnar RÆKTUN 2008 sem fer fram á Ingólfshvoli á laugardag er í fullum gangi og ljóst er að þetta verður góð skemmtun. Það er verið að reka lokahöndina á afkvæmahópa og ræktunarbú. Ljóst er að stóðhesturinn Álfur frá Selfossi mun mæta og er þetta eina sýningin sem hann kemur fram á fyrir utan kynbótasýningar […]

Fíkniefnapartí

Í gærkvöldi réðst lögreglan á Selfossi til inngöngu í fíkniefnapartí þar í bæ. Í húsinu voru þrír karlmenn og ein kona. Við leit fundust tól til fíkniefnaneyslu auk þess sem á einum mannanna fannst amfetamín. Var fólkið sýnilega undir áhrifum fíkniefna að samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Málið er í rannsókn og mun að henni lokinni […]

Vorganga Ferðamálafélags �?lfuss í kvöld

Vorganga Ferðamálafélags Ölfuss verður farin í kvöld mánudaginn 21. apríl. Gengin verður fjaran frá Hafinu Bláa að Þorlákshöfn. Lagt verður af stað frá Másbakaríi kl 19:00. ALLIR VELKOMNIR Ferðamálafélag Ölfuss (meira…)

Ritun sögu leikskóla í Sveitarfélaginu Árborg

Bæjarstjórn Árborgar samþykkir á fundi 9. apríl sl. að láta rita sögu leikskóla í sveitarfélaginu. Elsti leikskóli sveitarfélagsins varð 40 ára 1. apríl s.l. og er við hæfi á þeim tímamótum að skrásetja sögu leikskóla í sveitarfélaginu, sem nú er tíu ára. Heiðdísi Gunnarsdóttur, fyrrum leikskólafulltrúa, verði falin umsjón með rituninni. (meira…)

Eldri borgarar gjaldfrjálst í tækjasal

Bæjarráð Hveragerðis samþykkti á fundi sínum þann 17. apríl sl. að greiða fyrir aðgang eldri borgara að tækjasal heilsuræktarinnar Laugasports. Þannig að frá og með 20. apríl sl. fá allir eldri borgarar í Hveragerði gjaldfrjálsan aðgang að heilsuræktinni milli kl. 9 og 16 alla virka daga og frá 10 – 16 um helgar. (meira…)

Bjargveiðimenn ætla að funda sjálfir um lundaveiðina

Í gærkvöldi fór fram málþing um ástand lunda- og sandsílastofnsins í Akóges. Góð mæting var á málþingið en um 70 manns hlýddu á fyrirlestra og tóku þátt í pallborðsumræðunum. Eins og fram hefur komið leggur Erpur Snær Hansen, líffræðingur hjá Náttúrustofu Suðurlands fram veiðibann lundans í sumar og til vara að hver veiðimaður veiði einungis […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.