�?boðnir baðgestir á Selfossi

Lögreglan á Selfossi stöðvaði tvo fyrir ölvunarakstur í bænum í nótt en að öðru leyti var nóttin róleg. Þó barst tilkynning um að fjórir einstaklingar hafi ákveðið að bregða sér í sundlaugina á Selfossi um hálffjögur í nótt. (meira…)

Menningarhúsnæði Selfyssinga

Menningarhúsnæði Selfyssinga. 36 ára Menningarsalur á Selfossi. Hér má sjá frétt í Ríkissjónvarpinu um Menningarhúsnæði Selfyssinga. (meira…)

Hermann rekinn af velli og City vann 3:1

Hermann Hreiðarsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, fékk rauða spjaldið eftir 40 mínútna leik þegar lið hans, Portsmouth, tapaði fyrir Manchester City, 3:1, í ensku úrvalsdeildinni í dag. Hermann á því leikbann yfir höfði sér, líklega þriggja leikja, og yrði þá ekki með í þeim þremur leikjum sem liðið á eftir í úrvalsdeildinni, en nær samkvæmt því […]

Fjallað um ástand lunda- og sandsílastofnsins við Vestmannaeyjar

Í kvöld, klukkan 20 verður opið málþing um lunda- og sandsílastofninn við Vestmannaeyjar. Málþingið er haldið í Akóges við Hilmisgötu en fyrirlesarar eru þrír, Valur Bogason, sem fjallar um ástand sílis 2006-2007 við Vestmannaeyjar, Freydís Vigfúsdóttir, sem fjallar um tengsl lundaveiði og hafstrauma og síðast en ekki síst Erpur Snær Hansen, sem fjallar um lýliðun […]

Gyða í öðru sæti og Peyjarnir unnu 39+ flokkinn

Í gær fór fram líkamsræktarmótið Þrekmeistarinn á Akureyri. Fjöldi Eyjamanna frá líkamsræktarstöðinni Hressó tóku þátt en þaðan komu tvö kvennalið, eitt karlalið og svo kepptu þau Gyða Arnórsdóttir og Elías Jörundur Friðriksson í einstaklingskeppninni. Gyða Arnórsdóttir náði glæsilegum árangri, varð í öðru sæti keppninnar. (meira…)

Tónleikar í Selfosskirkju kl. 17:00 í dag

Tónleikar Jórukórsins verða í Selfosskirkju í dag sunnudaginn 20. apríl kl 17. Efnisskráin er mjög fjölbreytt, bresk sveitarómantíkverður ríkjandi framan af en svo koma lög í léttari kantinum. Tveir gestasöngvarar koma fram með kórnum. (meira…)

Fékk eina milljón í styrk

Hveragerðisbær hefur hlotið styrk frá Ferðamálastofu að upphæð kr. 1 milljón til lagfæringar á aðgengi að hverasvæðinu í miðbænum. Styrkurinn gerir bæjaryfirvöldum kleift að ráðast í endurbætur á svæðinu en nú er unnið að endurnýjun skilta, lagfæringu göngustíga og stefnt er að umfangsmikilli alhliða fegrun svæðisins í sumar. (meira…)

Kjólar frá árunum 1950 �? 1965 og fylgihlutir

Ný sýning hefur verið sett upp í útlánasal Bæjar-og héraðsbókasafnsins á Selfossi frá kjólaversluninni Hosiló. Kjólar frá árunum 1950 – 1965 og fylgihlutir: Sýningin stendur út apríl. (meira…)

Ný stjórn Búnaðarsambands Suðurlands

100. aðalfundi Búnaðarsambands Suðurlands lauk í gær. Á fundinum var kosið um tvo aðalmenn og tvo varamenn í stjórn úr Árnessýslu. Legið hefur fyrir undanfarna mánuði að Þorfinnur Þórarinsson formaður stjórnar myndi ekki gefa kost á sér til endurkjörs og því ljóst að breytingar myndu verða á stjórn. (meira…)

HK of stór biti fyrir ÍBV

Leikur ÍBV og HK sem fram fór í dag í Vestmannaeyjum var ágætis skemmtun þó svo að liðin hafi að litlu að keppa. HK er með geysilega öflugt lið og hefði í raun átt að veita Haukum meiri keppni í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn. Þrátt fyrir ágætt gengi ÍBV í undanförnum leikjum, áttu þeir ekki möguleika […]

Leikur ÍBV og HK í gamla salnum

Í dag leikur karlalið ÍBV næst síðasta heimaleik sinn í efstu deild þetta árið en klukkan 14 taka strákarnir á móti HK. Eyjamenn hafa leikið vel að undanförnu, gerðu jafntefli gegn Stjörnunni og unnu Fram á útivelli, töpuðu naumlega fyrir Haukum á heimavelli og unnu Aftureldingum á heimavellí í síðasta leik. Leikurinn gegn HK fer […]

Guðgeir Eyjólfsson skipaður sýslumaður í Kópavogi

Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra hefur skipað Guðgeir Eyjólfsson, sýslumann í Keflavík, til að vera sýslumaður í Kópavogi frá og með 1. júní. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu sem send var til fjölmiðla í dag. Þrettán sóttu um stöðuna, m.a. Karl Gauti Hjaltason, sýslumaður í Vestmannaeyjum. (meira…)

Siglingar á �?lfusá

Á fundi í Umhverfisnefnd Sveitarfélagsins Árborgar sem haldinn var 16. apríl sl. hvetur nefndin Björgunarfélagið til að sigla ekki á Ölfusá við Selfoss á varptíma nema brýna nauðsyn beri til. Álftir sem verpa í Neðri-Laugardælaey, hafa afrækt og annað fuglalíf orðið fyrir truflun. (meira…)

Tilraun til að svíkja fé útaf kortareikningi

Um kl. 19:00 í gær miðvikudag fékk kona í Árnessýslu upphringingu í heimasíma sinn. Í símanum var kona sem talaði mjög skýra ensku. Sú sem hringdi skýrði þeirri sem svaraði að hún hefði unnið ferðalag og tilgreindi áfangastað og gaf upp trúverðugar vísbendingar um hvernig konan gæti kynnt sér það sem þetta snérist allt um. […]

Vilja reisa netþjónabú í �?orlákshöfn

Samkomulag hefur náðst á milli sveitarfélagsins Ölfuss og fyrirtækisins Greenstone ehf. um viljayfirlýsingu um uppbyggingu netþjónabús í sveitarfélaginu. Viljayfirlýsingin verður undirrituð á morgun í Þorlákshöfn eftir því sem segir í tilkynningu frá bæjarstjóra Ölfuss. Að auki verður greint frá viljayfirlýsingu Greenstone og Landsvirkjunar um raforkukaup til búsins og undirrituð viljayfirlýsing Greenstone og Farice um gagnaflutninga. […]

Utankvótafiskur gaf rúman milljarð

Utankvótategundir skiluðu 1,1 milljarði króna í aflaverðmæti á síðasta ári. Heildaraflaverðmæti íslenskra skipa voru rétt rúmir 80 milljarðar á árinu. Utankvótafiskurinn er því um 1,4% af aflaverðmætunum. Þótt flestar nytjategundir sjávar séu kvótasettar finnast enn nokkrar tegundir sem frjáls sókn en fátítt er þó að skip stundi eingöngu veiðar á utankvótafiski. (meira…)

2-�? með lægra tilboð

Í morgun voru opnuð tilboð í þekju og lagnir á Básaskersbryggju. Tvö tilboð bárust í það verk annars vegar frá Steina & Olla ehf., upp á 47.429.550 krónur og hins vegar frá 2-Þ ehf., Vestmannaeyjum upp á 43.442.501 krónur. (meira…)

Nýsköpun eða samkeppni?

Háttvirtu nefndarmenn og framkvæmdastjóri Ég fékk loksins staðfestingu á þeim orðrómi sem að ég hef heyrt síðan í haust, en fundist sem svo að mig hafi vantað nánari upplýsingar til að kalla eftir svörum, var ekki á svæðinu þegar þetta birtist í bæjarblöðunum og leitaði ekkert eftir fundargerð á netinu, fyrr en í morgun. Málið […]

Bjóða upp á 69 metra skip

Vestmannaeyjabær og Vinnslustöðin annars vegar og Samskip hins vegar bjóða í smíði og rekstur skips sem ætlað er að sigla í Landeyjahöfn. Tilboðin verða opnuð í dag, fimmtu­dag, klukkan 11.00 í Þjóð­menn­ingarhúsinu. Skipið sem Vestmannaeyingar bjóða upp á er 69 metra langt, 16 metrar á breidd og hámarksdjúprista 3,3 metrar. Fjöldi bíla, ef einungis bílar […]

Yfirlýsing vegna umræðu um Landeyjahöfn

Í Morgunblaðinu mánudaginn 14. apríl sl. er fjallað um mótmæli vegna fyrirhugaðrar ferjuleiðar milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar við Bakkafjöru. Af því tilefni var rætt við nokkra þingmenn Suðurkjördæmis. Í viðtali við Árna Johnsen alþingismann sakar þingmaðurinn Vegagerðina og þá sérstaklega aðstoðarvegamálastjóra um vond og ófagleg vinnubrögð við undirbúning að ákvarðanatöku vegna hafnar í Bakkafjöru. Vegna […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.