Kvenfélag Eyrarbakka gefur á fæðingadeild HSu

Kvenfélag Eyrarbakka er 120 ára á þessu ári. Af því tilefni færðu kvenfélagskonur fæðingadeild HSu súrefnismettunar-, blóðþrýstings og hitamæli að gjöf. Um er að ræða tæki af gerðinni Distica og er verðmæti gjafarinnar um 1/2 milljón krónur. (meira…)

Hausaþurrkun Lýsis hf í �?orlákshöfn

Lýsi hf hefur sent frá sér fréttatilkynningu vegna starfsemi fyrirtækisins í Þorlákshöfn. Í fréttatilkynningunni eru augljósar rangfærslur sem Sveitarfélagið Ölfus telur sig knúið til að svara. (meira…)

Góður árangur hjá handboltaakademíunni

Á þriðjudagskvöld unnu strákarnir okkar í handboltaakademíunni (3. flokkur karla sem keppir undir merkjum UMF Selfoss) lið Hauka 31 – 23 og tryggðu sér þar með deildarmeistaratitilinn. Strákarnir hafa náð í öll stigin sem í boði voru í vetur nema 3 og eru með 171 mark í plús. Framundan er svo úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn sem […]

Nánast óbreytt stjórn hjá R�?V ohf.

Kosið var í fimm manna stjórn Ríkisútvarpsins ohf. á Alþingi í dag og urðu litlar breytingar á henni. Ómar Benediktsson, sem verið hefur stjórnarformaður Ríkisútvarpsins frá því að það var gert að opinberu hlutafélagi í fyrra, situr áfram í stjórninni og það gera þær Kristín Edwald, Margrét Frímannsdóttir og Svanhildur Kaaber einnig. Ari Skúlason er […]

ÍBV upp að hlið Aftureldingar

Eyjamenn komust upp að hlið Aftureldingar á botni N1 deildarinnar í kvöld en liðin áttust við í Eyjum. Bæði lið eru þegar fallin og því í raun ekki að neinu að keppa en engu að síður var leikurinn bráðfjörugur. Eyjamenn virtust ætla að stinga af í fyrri hálfleik og í leikhléi var staðan 15:11. Gestirnir […]

Stöðugt meira selst af innlendum bjór

INNLENDUR bjór er stöðugt að auka markaðshlutdeild sína í samkeppni við innfluttan bjór. Á síðast ári var 66% af öllum bjór sem ÁTVR seldi innlendur, en þetta hlutfall var 64% árið 2006 og 52% árið 1998. Þetta kemur fram í ársskýrslu ÁTVR fyrir árið 2007. (meira…)

Gistiheimili opnað á Stokkseyri

Gistiheimilið Kvöldstjarnan var opnað formlega á Stokkseyri í síðustu viku. Þar með er komið til móts við þá fjölmörgu sem heimsækja þorpið árlega og vilja staldra við eða eiga náðuga daga á þessum sérstaka stað. Tugir þúsunda ferðamanna heimsækja Stokkseyri árlega. (meira…)

Vel sótt málþing

Um 70 manns sótti málþing um málefni innflyjenda sem haldið var í Þorlákshöfn s.l. föstudag. Þingið hófst með ávarpi Unnar Þormóðsdóttur formanns velferðarmálanefndar SASS. Á málþinginu voru haldin fjölmörg erindi þar sem varpað var ljósi á ýmsar hliðar innflytjendamála. (meira…)

Ferðir falla niður í 5-9 daga á ári

Sigurður Grétarsson, forstöðumaður hafnarsviðs Siglingastofnunar, segir reiknað með að fella þurfi niður ferðir Herjólfs 5-9 daga á ári vegna veðurs eftir að Landeyjarhöfn hafi verið tekin í notkun. Truflun geti orðið á siglingum 10-15 daga á ári. Þetta sé svipað og er í dag þegar siglt er til Þorlákshafnar. (meira…)

Birkir fer frá N-Lübbecke

Þýska handknattleiksfélagið NLübbecke tilkynnti í gær að íslenski landsliðsmarkvörðurinn Birkir Ívar Guðmundsson færi frá félaginu í vor, þegar samningur hans við það rennur út. Birkir hefur varið mark liðsins undanfarin tvö ár. „Þetta var í raun löngu ákveðið því ég hef ekki áhuga á að standa í þessari botnbaráttu lengur. Hún er niðurdrepandi og ég […]

ruggi úr svonefndu hraðgeri

segir hann. Dagleg eða vikuleg vandræði vegna vímuefnaneyslu eigi við um um það bil 10% fanganna. Mikið vinnuálag sé á fangavörðum á Litla-Hrauni. „Við erum með þrjá menn þar sem eru 55 fangar á fimm mismunandi deildum (meira…)

Fjórir ökumenn voru kærðir fyrir ölvun við akstur.

Fjórir ökumenn voru kærðir fyrir ölvun við akstur. Einn þeirra ók bifhjóli en tilkynnt var um hann þar sem bifhjól hans hafði farið á hliðina skammt vestan við Hellu. Manninum tókst að koma hjólinu á réttan kjöl og hélt hann áfram þar til lögregla kom að honum þar sem hann sat á hjólinu kyrrstæður við […]

Dýralæknar óttast lagabreytingu

Aðalfundur dýralæknafélags Íslands mótmælti nýlega á fundi sínum frumvarpi til laga, þar sem lagt er til að þjónusta við dýraeigendur og eftirlit hins opinbera verði aðskilið. Óttast félagið að erfitt verði að manna dýralæknastöður víða um land vegna strjábýlis. (meira…)

Nærri átta prósentum meiri afli í mars í ár en í fyrra

Heildarafli íslenskra skipa í mars var nærri átta prósentum meiri en í sama mánuði í fyrra. Hann dróst hins vegar saman um nærri ellefu prósent á fyrsta ársfjórðungi samanborið við fyrsta ársfjórðung í fyrra. Fram kemur á vef Hagstofunnar að aflinn í nýliðnum mars hafi numið nærri 170 þúsund tonnum en hann var rúmlega 162 […]

Kiwanisklúbburinn Helgafell gaf fíkniefnahund

Nýr fíkniefnahundur, Luna tók til starfa hjá Lögreglunni í Vestmannaeyjum á dögunum. Það er Kiwanisklúbburinn Helgafell í Vestmannaeyjum sem gefur hundinn og var hann formlega afhentur sýslumanni á fundi klúbbsins. Tíkin Luna er af gerðinni enskur Springer Spaniel og er innflutt frá Bretlandi. Luna er annar fíkniefnahundurinn sem lögreglan í Vestmannaeyjum hefur innan sinna raða […]

Meistaradeild Olís í 5. flokki á Selfossi í sumar

Knattspyrnudeild Selfoss mun halda knattspyrnumótið Meistaradeild Olís í fjórða skipti í sumar og er mótið alltaf að verða flottara. Fer mótið fram helgina 8-10 ágúst á Selfossi og er ætlað fyrir stráka í 5. flokki. Aðeins verður tekið á móti 48 liðum eins og í fyrra og þar af leiðandi borgar sig að skrá sitt […]

Alls voru 91 mál þessa vikuna á Hvolsvelli

Í vikunni voru 27 teknir fyrir að aka of hratt í umdæminu Hvolsvöllur, en sá sem hraðast ók var á 139 km hraða. Sjö óku á yfir 120 km hraða þar sem 90 km hraði er leyfður. Frá áramótum hafa 340 verið teknir fyrir að aka of hratt í umdæminu. Þar af óku 53 á […]

Flutningur þorskaflamarks milli óskyldra dregst saman um 41%

Verulega hefur dregið úr flutningi aflamarks milli skipa í eigu óskyldra aðila á yfirstandandi fiskveiðiári í kjölfar þriðjungs skerðingar þorskkvótans. Nemur samdrátturinn 41% fyrstu sjö mánuði fiskveiðiársins miðað við sama tímabil árið áður. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.