Hvanney SF frá Höfn í Hornafirði aflahæsti vertíðarbáturinn

Núna eru svo til bara netabátarnir sem eru í netarallinu að róa. Friðrik Sigurðsson ÁR er kominn í 3ja sætið. Mokveiði er hjá netabátunum sem róa frá Sandgerði. Ársæll Sigurðsson HF var t.d með 28 tonn í 3 ferðum. Sunna Líf KE var með tæp 20 tonn í 3 ferðum. (meira…)

Árni Rúnar �?orvaldsson á Höfn aðstoðarmaður Lúðvíks Bergvinssonar alþingismanns

Lúðvík Bergvinsson þingflokksformaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi hefur ráðið Árna Rúnar Þorvaldsson forseta bæjarstjórnar á Höfn sem aðstoðarmann sinn. Hér er um þriðjungsstarfshlutfall að ræða með aðsetur úti í kjördæminu þannig að hér er ekki um neina búferlaflutninga að ræða segir Árni Rúnar, þetta er í samræmi við lög sem nýlega voru samþykkt á Alþingi um […]

Eyjamenn halda áfram að stríða Garðbæingum

Eyjamenn virðast hafa ágætis tak á Stjörnunni, sérstaklega í seinni hluta Íslandsmóts karla í handknattleik. Í þriðju umferð mótsins unnu Eyjamenn afar óvæntan sigur á Stjörnunni, sem þá var að berjast við að halda sér í toppbaráttunni en það var jafnframt annar sigur ÍBV á tímabilinu. Eyjamenn gerðu svo jafntefli gegn Stjörnunni í gær, í […]

Fleiri konur í stjórnmálin

Þátttaka kvenna í stjórnmálum var meginefnið á ársþingi Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar sem lauk í morgun á Hótel Örk í Hveragerði. Þar töluðu framsögumenn um það hvernig konum getur fjölgað í stjórnmálum og í framboði fyrir Samfylkinguna, hvort prófkjör eru „rétta leiðin“ til að velja á lista, í hvaða mæli fléttulistar gagnast konum eða hvort það á […]

ÍBV í viðræðum við einn af stóru aðilunum í skyndibitabransanum um að koma á �?jóðhátíð

Stórir aðilar bíða nánast í röðum um að fá að taka þátt í Þjóðhátíð með ÍBV og Friðbjörn segir að jafnvel verði boðið upp á nýja þjónustu í tengslum við Þjóðhátíðina. Þetta kemur fram í Vaktinni en þar segir Friðbjörn Ólafur Valtýsson, framkvæmdastjóri ÍBV-iþróttafélags að mörg stórfyrirtæki vilji taka þátt í hátíðarhöldunum í Herjólfsdal. Meðal […]

Banaslys á Suðurlandsvegi í �?lfusi á móts við Hvammsveg við Gljúfurárholt

Rúmlega sextugur karlmaður, sem ók lítilli sendibifreið, lést í hörðum árekstri sem varð rétt fyrir klukkan átta í morgun á Suðurlandsvegi í Ölfusi á móts við Hvammsveg við Gljúfurárholt. Áreksturinn varð með þeim hætti að pallbíll, sem var á leið vestur Suðurlandsveg fór yfir á rangan vegarhelming og lenti framan á vinstra horni vörubíls, sem […]

Aðalfundi Landssamtaka sauðfjárbænda lokið

Aðalfundi Landssamtaka sauðfjárbænda sem staðið hefur yfir í Reykjavík frá því í gær er rétt lokið. Jóhannes Sigfússon, formaður LS, kom víða við í setningarræðu sinni og sagði m.a. sérkennilegt ef hagsmunasamtök einstakra stétta í landinu gætu ekki lengur komið saman og rætt sín mál án þess að vera grunuð um ólöglegt athæfi. Þar vísaði […]

Guðmundur Runólfsson langstærsti eigandinn í Fiskmarkaði Íslands

Útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Guðmundur Runólfsson hf í Grundarfirði er orðið langstærsti eignaraðilinn í Fiskmarkaði Íslands. GR er komið með ráðandi hlut í fyrirtækinu eftir kaup á 40% eignarhlut Rjúkanda ehf, sem er félag í eigu nokkurra einstaklinga. Fyrir átti Guðmundur Runólfsson 3,5% í FÍ, en fiskmarkaðurinn er nú að langstærstum hluta í eigu aðila á […]

Höfnin er lífæð samfélagsins

Það fór ekki framhjá neinum sem átti leið um hafnarsvæðið í dag að í Vestmannaeyjum er sjávarútvegurinn ennþá mikilvægasta atvinnugreinin í bæjarfélaginu. Í morgun voru tvö gámaskip við sitthvorn bryggjukantinn við uppskipun, fjögur skip voru að landa afla, eitt að taka ís og önnur að gera klárt fyrir brottför. Það er því engin lygi þegar […]

Gústi og Siggi mættir á klakann

Þeir félagar Andrew Mwesigva (Siggi) og Augustine N´sumba (Gústi) mættu til Eyja með skemmtisnekkjunni Herjólfi í gærkvöldi. Eftir langa bið og langt ferðalag eru þeir loks mættir með bros á vör. Upphaflega áætlunin var að þeir kæmu til Eyja í febrúar en tafir vegna vegabréfsáritunar olli því að þeir komust ekki fyrr en nú. (meira…)

Humar mokveiðist

Humarveiðar eru byrjaðar og Gandí VE landaði sínum fyrsta túr í gær, miðvikudag. Mokveiði er á Eldeyjarsvæðinu og Gandí kom inn með 1100 kíló eftir sólarhringsveiði. Að sögn Guðna Ingvars Guðnasonar, útgerðarstjóra, hófst humarvinnsla strax í frystihúsi Vinnslu­stöðv­arinnar og humarinn sem veiddist var stór og í fínum gæða­flokki. (meira…)

Líkamsárás á hjólabrettasvæði

Þrír sautján og átján ára piltar réðust með kúbeini að sextán ára pilti á sunnudagskvöld á hjólabrettasvæði við Sundhöll Selfoss. Fórnarlambið hlaut bólgur í andliti og eymsli í baki en hann mun vera óbrotinn. (meira…)

Málþing um málefni innflytjenda hefst �?orlákshöfn í dag

Velferðarmálanefnd Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og Menningarráð Suðurlands efna til málþings í Versölum Ráðhúsi Ölfuss, Þorlákshöfn, um málefni innflytjenda á Suðurlandi í dag, föstudaginn 11. apríl nk. kl. 10.00 – 16.00. Á málþinginu verða flutt fjölmörg erindi og umræðuhópar munu starfa og skila áliti, sbr. meðfylgjandi dagskrá. Stofnanir verða með upplýsingatorg þar sem kynnt verður upplýsingaefni […]

Grýlupottahlaupið í 39 ár á Selfossi

Hið árlega Grýlupottahlaup frjálsíþróttadeildar UMF Selfoss hefst laugardaginn 12. apríl kl. 11. Grýlupottahlaupið hefur verið haldið samfleytt í 39 ár. Hlaupið fer þannig fram að hlaupnir eru 850 metrar á sex laugardagsmorgnum. Eftir sex hlaup eru þeir verðlaunaðir sem hlaupið hafa fjögur hlaup eða fleiri og ná bestum tímum. Hlaupið er frá Tíbrá, um Engjaveginn […]

Afhentu undirskriftir gegn hausaverkun

Fulltrúar íbúa í Þorlákshöfn afhentu Heilbrigðiseftirliti Suðurlands í dag undirskriftir 527 kosningabærra íbúa í bænum þar sem því er mótmælt, að starfsleyfi hausaverkunar Lýsis hf. verði endurnýjað. Núverandi leyfi rennur út í júní. (meira…)

Sannfæra þarf fólk um að Bakkafjara sé besti kosturinn

Ég er svolítið hugsi yfir hvernig mál standa, varðandi bættar sam­göngur til og frá Vestmannaeyjum. Flestir held ég hafi skilning á því að Eyjamenn þurfa að fá bættar samgöngur. Á síðustu árum hefur róðurinn oft á tíðum verið erfiður í Eyjum og íbúum hefur fækkað. Til að snúa þróuninni við er er ein meginforsendan að […]

Dímon vann í báðum flokkum

Héraðsmót drengja og stúlkna í blaki fyrir keppendur 16 ára og yngri voru haldin á Hvolsvelli 14. mars sl. Til leiks mættu lið frá Dímon og Hamri og unnu Dímonkeppendur bikarinn í báðum flokkum. Sigur Dímonar í drengjflokki er sá 10. frá upphafi og er liðið nú orðið sigursælasta liðið í sögu keppninnar, en fyrsta […]

Sex aðilar fá markaðssetningarstyrk

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps bárust sex umsóknir frá atvinnurekendum í sveitarfélaginu um styrki til markaðssetningar. Allar umsóknirnar voru samþykktar og hljóða styrkirnir hljóða upp á 28% af álögðum fasteignagjöldum. Styrkirnir eru því misháir en þeir hæstu á bilinu 200-300 þúsund. (meira…)

Héraðsdómur úrskurðar Hveragerðisbæ í hag

Í desember sl. kærði Hveragerðisbær ákvörðun sýslumannsins á Selfossi um að synja leiðréttingu á fasteigna- og veðbókum embættisins hvað varðar gömlu tívolílóðina, Austurmörk 24 í Hveragerði. Lóðin var þinglýst eign Hraunprýði ehf. en Ármenn ehf. sem keypt höfðu byggingarrétt á lóðinni árið 2005 höfðu framselt ýmsa lóða- og byggingarrétti til Hraunprýði ehf. Héraðsdómur úrskurðaði í […]

Selfyssingar sigursælir á fyrsta HSK mótinu

Fyrsta héraðsmót sögunnar í 5. flokki karla í handknattleik fór fram í Iðu laugardaginn 5. apríl 2008. Selfoss og Dímon sendu samtals sex lið til leiks og auk þess kepptu ÍR-ingar sem gestir með tvö lið.Liðunum átta var skipt í tvo riðla og var keppt um sæti að lokinni riðlakeppni. Selfoss A endaði sem HSK-meistari […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.