Hljómeyki á Sólheimum
Næstkomandi sunnudag, 13. apríl, heldur sönghópurinn Hljómeyki tónleika í Sólheimakirkju. Yfirskrift tónleikanna er Vorkvæði um Ísland. Flutt verða kórverk tengd vorinu og náttúrunni en einnig verk tileinkuð Maríu mey. Meðal tónskálda má nefna Jón Nordal, Hildigunni Rúnarsdóttur (kórmeðlim), Báru Grímsdóttur, Rachmaninoff, Poulenc og fleiri. (meira…)
Senda skólahúsgögn til Afríku

Húsgögn Flóaskóla voru nýlega endurnýjuð og voru gömlu húsgögnin send til Afríku þar sem þau verða notuð í barnaskóla. Hugmyndin kom frá Guðmundi Jóni Sigurðssyni, umsjónarmanni fasteigna í Flóahreppi en Rauði krossinn sótti húsgögnin fyrr í vikunni. (meira…)
Er fylgjandi höfn í Bakkafjöru

Mér brá nú heldur betur í brún þegar ég skoðaði síðuna www.strondumekki.is. Þar sá ég nafn mitt og kennitölu. Ég vil að það komi skýrt fram að ég er fylgjandi höfn í Bakkafjöru og tel það mikla samgöngubót fyrir okkur Eyjamenn. Ég krefst þess því af þeim sem halda úti þessum undirskriftalista að fjarlægja nafn […]
Skúrir og skin við lestur Frétta

Þegar ég opnaði Fréttir eftir að þær duttu inn um lúguna hjá mér á miðvikudagskvöldið leist mér hreint ekkert á að lesa grein eftir framámanninn Magga Kristins, aðra vikuna í röð, þar sem hann finnur áformum um Bakkafjöruhöfn, Landeyjahöfn, allt til foráttu. Hins vegar lifnaði aftur yfir mér þegar Fréttum var flett aðeins lengra og […]
Samkeppniseftirlitið vill jafnræði í ríkisstyrki

Samkeppniseftirlitið hefur nú beint þeim tilmælum til samgönguráðherra að beita sér fyrir því að gæta jafnræðis milli flugfélaga við veitingu ríkisstyrkja. Þetta kemur fram í áliti eftirlitsins vegna ríkisstyrks til Flugfélag Íslands á flugleiðinni Vestmannaeyjar-Reykjavík en FV taldi brotið á sér við veitingu styrksins. Þannig var ekki rætt við FV þegar kom að því að […]
Málþing um málefni innflytjenda á Suðurlandi
Velferðarmálanefnd Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og Menningarráð Suðurlands efna til málþings í Versölum Ráðhúsi Ölfuss, Þorlákshöfn, um málefni innflytjenda á Suðurlandi föstudaginn 11. apríl nk. kl. 10.00 – 16.00. Skráning á málþingið er á sass@sudurland.is eða í síma 480 8200. (meira…)
Íbúar mótmæla lokun Kaupþings á Flúðum
Miklar áhyggjur eru hjá mönnum í Hrunamannahreppi vegna lokunar útibús Kaupþings á Flúðum og óvissu með póstþjónustu. „Það er gríðarleg eftirsjá í bankanum og fólk almennt mjög ósátt við framvindu málsins. “ (meira…)
Viðurkenningarhafar Landssambands kúabænda 2008
Árshátíð LK var þetta árið haldin á Hótel Selfossi laugardagskvöldið 5. apríl sl. Að þessu sinni voru gestir árshátíðarinnar um 240 talsins og fór hún afar vel fram, að vanda. Á árshátíðinni var nokkrum einstaklingum veitt viðurkenning LK árið 2008 og ástæður viðurkenningana tilgreindar í greinargerðum. Viðurkenningu hlutu m.a. hjónin Páll Lýðsson og Elínborg Guðmundsdóttir […]
Kvótaverð lækkar um þriðjung
Kvótaverð hefur lækkað um allt að 35 prósent frá áramótum. Samkvæmt upplýsingum frá kvótamiðlurum er verðið á kílói af þorskkvóta komið úr 4.100 krónum og jafnvel allt niður í 2.700 krónur. Lítil sem engin viðskipti hafa verið með kvóta undanfarnar vikur. (meira…)
Rúmlega 500 búnir að skrifa undir á fimm klukkutímum

Þegar þetta er skrifað hafa 518 skrifað á undirskriftalista Magnúsar Kristinssonar og félaga. Listann má finna á www.strondumekki.is en samkvæmt óvísindalegri athugun blaðamanns, eru um 70% þeirra sem á listann skrifa, búsettir í Vestmannaeyjum. Hægt er að velja þrjá búsetukosti, bý í Eyjum, brottfluttur Eyjamaður eða bý ekki í Eyjum. Þó eru einhverjir sem taka […]
FSu í úrvalsdeild

Karlalið Íþróttafélags FSu tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni í körfuknattleik eftir þriggja leikja rimmu við Valsmenn. Oddaleiknum lauk með sigri í Iðu fyrir troðfullu húsi og var spennustigið gríðarlega hátt. (meira…)
Hamar enn án sigurs

Hamarsmenn hafa tapað báðum leikjum sínum í riðli 2 í B-deild Lengjubikars karla í knattspyrnu. Hamar mætti BÍ/Bolungarvík um síðustu helgi og tapaði 1-2.Vestfirðingar komust yfir í leiknum en Sigurður Gísli Guðjónsson jafnaði leikinn fyrir Hamar og var staðan jöfn í hálfleik. (meira…)
Hátt í 500 undirskriftir komnar
Síðdegis á þriðjudag höfðu 460 manns skrifað undir mótmæli vegna endurnýjunar á starfsleyfi til Lýsis hf. fyrir fiskþurrkunarverksmiðju í Þorlákshöfn. Guðmundur Oddgeirsson segir viðtökurnar góðar en söfnuninni átti að ljúka í gær, miðvikudag. Illa hafi hins vegar gengið að fá listann til að liggja frammi hjá þjónustuaðilum í bænum. (meira…)
Jórusöngur í Ingólfsskála, �?lfusi og Selfosskirkju

Nú er komið að hinum árvissu vortónleikum Jórukórsins og í þetta sinn leitar kórinn út fyrir sveitarfélagið Árborg með fyrri tónleikana, en þeir verða í Ingólfskála á Efstalandi Ölfusi fimmtudaginn 17. apríl kl 20:30. Á þessum tónleikum verður hin rómaða kaffihúsastemning þar sem tónleikagestum verður boðið upp á kaffi og konfekt á meðan þeir njóta […]
Ottó Eyfjörð sýnir í Sögusetrinu

Ottó Eyfjörð á Hvolsvelli er mörgum kunnur, ekki aðeins sem vörubílsstjóri til margra ára heldur einnig sem ljósmyndari og ekki síst sem afar liðtækur málari. Hann hefur til fjölda ára málað jafnt landslag sem portretmyndir. (meira…)
Blaka sýnir í Listagjánni

Listakonan Blaka, öðru nafni Þuríður Blaka Gísladóttir, sýnir í Listagjá Bæjar-og héraðsbókasafnsins á Selfossi í apríl. Hún sýnir myndir málaðar með olíulitum á masónít og vatnslitamyndir, einnig tréútskurð og skartgripi. (meira…)
Safna undirskriftum til að mótmæla hafnargerð í Bakkafjöru

Hópur Vestmannaeyinga, undir forystu Magnúsar Kristinssonar, útgerðarmanns hefur skipulagt undirskriftasöfnun á slóðinni http://www.strondumekki.is. Með þessu vill hópurinn mótmæla byggingu ferjulægis í Bakkafjöru og hvetja yfirvöld til að leysa þann vanda sem samgöngur milli lands og Eyja eru í með því að byggja hraðskreiða ferju sem gengi á milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyja. (meira…)
Lundinn kominn á Víkina
Lundi sást á Víkinni, framan við Mýrdalinn, í gær og þykir það með fyrra fallinu. Sigurmundur G. Einarsson á trollbátnum Gæfu VE sagði að þar væri mikið líf. Fiskurinn fullur af síli og mikið af fugli. Kristján Egilsson, forstöðumaður Fiska- og náttúrugripasafns Vestmannaeyja, sagði að svartfugl, mest álka, væri kominn til Eyja og hefði svartfugl […]
Nýr varaformaður var kjörinn
Ný stjórn var kjörin á aðalfundi Björgunarfélags Árborgar. Ingvar Guðmundsson var endurkjörinn formaður og segir það væntanlega munu verða síðasta formannsár sitt. Nýr varaformaður var kjörinn, Hrafnhildur Guðgeirsdóttir, en hún var áður varamaður í stjórn. (meira…)
Páll Lýðsson látinn
Páll Lýðsson sagnfræðingur og bóndi lést af slysförum á Eyrarbakkavegi í gærmorgun á 72. aldursári. Hann var fæddur í Litlu-Sandvík 7. október 1936, sonur hjónanna Lýðs Guðmundssonar bónda þar og konu hans, Aldísar Pálsdóttur. Páll lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum að Laugarvatni árið 1956 og BA-prófi í íslenskum fræðum frá Háskóla Íslands 1959. Hann var bóndi […]