Steinþór Haraldsson skipaður skattstjóri á Suðurlandi

Fjármálaráðherra hefur skipað Steinþór Haraldsson til að gegna embætti skattstjóra á Skattstofu Suðurlandsumdæmis frá 1. maí 2008 til fimm ára. Steinþór lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1975. Að loknu námi réð hann sig til starfa hjá embætti ríkisskattstjóra þar sem hann hefur í gegnum árin m.a. gegnt stöðum sérfræðings, deildarstjóra, forstöðumanns um […]

Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 17% í febrúar

Hagstofan hefur birt tölur um gistinætur á hótelum í febrúar síðastliðnum og sýna þær 17% fjölgun á milli ára. Gistinætur voru 77.000 í febrúar nú samanborið við 65.600 í sama mánuði árið 2007. Fjölgunin mest á höfuðborgarsvæðinu og á Norðurlandi. Hlutfallslega fjölgaði gistinóttum mest á höfuðborgarsvæðinu, úr 47.600 í 61.000 eða um 28%. Gistinóttum á […]

Banaslys á Eyrarbakkavegi

Banaslys varð á Eyrarbakkavegi skammt frá Selfossi á tólfta tímanum í morgun. Slysið varð með þeim hætti að jeppling var ekið af Kaldaðarnesvegi inn á Eyrarbakkaveg í veg fyrir vörubifreið sem ekið var til suðurs. Ökumaður jepplingsins var úrskurðaður látinn á vettvangi eftir að lífgunartilraunir höfðu ekki borið árangur. Þyrla var ræst út en afturkölluð. […]

Tríkot, Dans á rósum og Logar á litla pallinum

Það verða Eyjaböndin Tríkot, Dans á rósum og Logar sem munu halda uppi stuðin á litla pallinum á Þjóðhátíðinni 2008. Friðbjörn Ólafur Valtýsson, framkvæmdastjóri ÍBV staðfesti það fyrir stundu að búið væri að semja við stórhljómsveitirnar þrjár og bætti því við að mikil ánægja ríkti með að fá þrjú Eyjabönd til að spila á litla […]

Stefán Björn til liðs við KFS

Stefán Björn Hauksson er gengin aftur í raðir KFS frá ÍBV en hann lék með liðinu síðasta sumar. Bæði þess lið eru úr Vestmannaeyjum en Stefán gekk í raðir ÍBV fyrir síðustu leiktíð frá KFS þar sem hann hafði leikið í þrjú tímabil en þar áður lék hann með ÍBV. Hann spilaði áttján leiki með […]

Nýr framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Suðurlands

Stjórn Atvinnuþróunarfélags Suðurlands hefur gengið frá ráðningu Sædísar Ívu Elíasdóttur sem framkvæmdastjóra hjá félaginu frá og með 7. apríl sl. Sædís Íva er fædd í Reykjavík 1967. Hún er rekstrarfræðingur frá Bifröst og viðskiptafræðingur MBA frá Háskóla Íslands. (meira…)

Stórsveit Suðurlands á Selfossi í kvöld

Stórsveit Suðurlands heldur tónleika í kvöld þriðjudagskvöldið 8. apríl á Riverside Hótel Selfossi kl. 20.30. Með stórsveitinni koma fram söngkonurnar Kristjana Stefánsdóttir og Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir. Stjórnandi er Vignir Þór Stefánsson Á dagskrá verður stórsveitarsveifla af bestu gerð. (meira…)

Guðný Hrund á þingi

Guðný Hrund Karlsdóttir settist á þing í gær sem alþingismaður úr Suðurkjördæmi fyrir Samfylkinguna. Það í fyrsta sinn sem Guðný Hrund situr á þingi en hún var í fjórða sæti S-listans í kjördæmi við kosningarnar í fyrravor. Guðný er viðskiptastjóri hjá hugbúnaðarfyritækinu Maritech, en ekki alveg ókunnug þingvafstri: (meira…)

Samúel �?rn á þingi

Samúel Örn Erlingsson, íþróttafréttamaður til margra ára, tók sæti á Alþingi í gær í fjarveru Sivjar Friðleifsdóttur, þingflokksformanns Framsóknarflokksins. Samúel er fyrsti varamaður flokksins í Suðvesturkjördæmi. Samúel Örn Erlingsson er fæddur á Uxahrygg á Rangárvöllum 12.nóvember 1959, annar í röð fimm systkina og ólst upp á Hellu á Rangárvöllum. (meira…)

Fundað með sérgreinastjórum Unglingalandsmóts

Myndin hér til hliðar er af sérgreinastjórum Unglingalandsmótsins í Þorlákshöfn ásamt starfsmanni og formanni nefndarinnar. Þessir aðilar, auk framkvæmdastjóra, mættu til fundar í Þorlákshöfn sl. mánudag þar sem farið var yfir hlutverk þeirra ofl. (meira…)

Bítlar, blúsar og Beethoven

Næstu tónleikar Tóna við hafið verða í Versölum, Þorlákshöfn, í kvöld þriðjudaginn 8. apríl kl. 20. Sardas kvartettinn flytur fjölbreytta efnisskrá undir yfirskriftinni Bítlar, blúsar og Beethoven. Kvartettinn skipa: (meira…)

Rafmagnslaust vegna vinnu í dreifistöð

Vegna vinnu í dreifistöð verður rafmagn tekið af eftirtöldum götum frá klukkn 24.00 aðfaranótt miðvikudags 9. apríl og fram eftir nóttu: Herjólfsgötu, Reglubraut, Miðstræti (frá Herjólfsgötu að Bárugötu), Vestmannabraut (frá Bárugötu að Heiðarvegi), Vesturvegi (frá Heiðarvegi að Bárugötu), Strandvegi (hús nr. 37, 39, 43A). (meira…)

Jafntefli í síðasta leik æfingaferð ÍBV

Leikmenn ÍBV í meistaraflokki karla léku sinn fjórða æfingaleik á átta dögum í Tyrklandi í gær. Mótherjarnir voru Víkingar frá Ólafsvík. Leiknum lyktaði með 2-2 jafntefli. Víkingar komust í 2-0 en Eyjamenn jöfnuðu í síðari hálfleik. Mörkin skoruðu Egill Jóhannsson og Ingi Rafn Ingibergsson. Síðasta æfing liðsins var svo kl 09:00 í morgun og liðið […]

Innbrot í grunnskólann á Flúðum

Rétt eftir klukkan tvö aðfaranótt síðastliðins fimmtudags komu boð til lögreglu frá öryggisfyrirtæki um yfirstandandi innbrot í grunnskólann á Flúðum. Lögreglumenn brugðust hratt við og fóru á vettvang jafnframt því sem lögreglubifreið fór inn á Laugarvatnsveg ef vera kynni að þjófarnir færu þá leið. Það bar vel í veiði: (meira…)

Ráðist að 16 ára dreng.

Þrír sautján ára piltar veittust að sextán ára pilti í gærkvöldi, sunnudag. Atvikið átti sér stað á á hjólabrettasvæði við sundlaugina á Selfossi. Árásarmennirnir komu að hjólabrettasvæðinu á tveimur bifreiðum, stigu út réðust að drengnum sem var á hjólabretti. (meira…)

Nýr formaður SAF – Árni Gunnarsson

Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands, var kosinn formaður Samtaka ferðaþjónustunnar á aðalfundi samtakanna síðastliðinn fimmtudag. Jón Karl Ólafsson, sem hafði gegnt formennsku síðastliðin 5 ár, gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Árni hefur starfað í ferðaþjónustu í fjölmörg ár og var á síðasta ári formaður flugnefndar SAF. Ferðamálastofa býður nýjan formann SAF velkomin og […]

Vantar upplýsingar um tjónvald, sem ók á brott

Ein eignaspjöll voru tilkynnt til lögreglu um helgina en um er að ræða rúðubrot í verslun Axel Ó þar sem bjórflösku var hent í rúðuna þannig að ytra birgði hennar brotnaði. Grunur leikur á hver þarna er að verki og er málið í rannsókn. (meira…)

Jarðvegsvinna vegna vatnsverksmiðju hafin

Jarðvegsvinna vegna byggingar vatnsútflutningsverksmiðju í Vestmannaeyjum hófst í gærmorgun. Í fyrsta áfanga verður byggt 500 fermetra hús en síðar er gert ráð fyrir 2000 fermetra viðbyggingu. Verður mest allt efni í húsið flutt inn í einingum og sett saman á staðnum. Er gert ráð fyrir að allt efni í húsið verði komið til Eyja í […]

80 lítrar af bjór á mann

Hver Íslendingur neytti að meðaltali 80 lítra af bjór á síðasta ári. Áfengisneysla hér hefur aukist meira en annars staðar á Norðurlöndum á síðustu þrettán árum. Þá eykst neysla sterkari drykkja. Neysla hvers íbúa að meðaltali, 15 ára og eldri hefur aukist úr 4,3 alkóhóllítrum á ári í 7,5 lítra á tæpum þrjátíu árum. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.