Kirkjufyllir í Selfosskirkju í kvöld

Í kvöld sunnudaginn 6. apríl kl. 20 hélt Gospelkór Tónsmiðjunnar tónleika í Selfosskirkju. Selfosskirkja var troðfull og tóku kirkjugestir virkan þátt í samkomunni með klappi þegar við átti enda býður þessi tónlist upp á slíka fjölda-þátttöku. Á efnisskrá eru fjörug gospellög og lauflétt íslensk dægurlög. Undirleikur var í höndum BPS-tríós. Stjórnandi var Eyrún Jónasdóttir. (meira…)

ROKKS�?NGLEIKUR NFSu – “Til sölu”

STÓRKOSTLEGUR ROKKSÖNGLEIKUR var frumsýndur hinn 27. mars sl. í MENNINGARSAL HÓTEL SELFOSS. Leikfélag NFSu (Fjölbrautaskóla Suðurlands) stendur að þessum söngleik sem heitir TIL SÖLU. 4. sýning verður í kvöld sunnudaginn 6. apríl og hefur nánast verið húsfyllir á allar fyrri sýningar. (meira…)

Ferming í Hjallakirkju

Hjallakirkja. Sunnudagur 6. apríl. Messa kl. 13:30. Fermt verður í messunni. Fermingarbarn Katrín Viðarsdóttir Hjallakróki. Organisti Hannes Baldursson. Kirkjukór Þorláks- og Hjallakirkju (meira…)

Nýr bæklingur

Út er kominn bæklingur um öll söfn, sýningar, setur og garða á Suðurlandi. Það eru nýstofnuð Samtök safna á Suðurlandi sem gefa bæklinginn út og var fyrsta eintakið afhent Þórði safnverði á Skógum á stofnfundi samtakanna í gær. Bæklingurinn er mjög kærkomið vinnutæki fyrir þá sem vinna við ferðaþjónustu á Suðurlandi og á einnig eftir […]

Aðalfundi Landssambands kúabænda lokið

AÐALFUNDUR Landssambands kúabænda var settur kl. 10 á föstudag, á Hótel Selfossi og lauk nú kl. 17:00 Ný mæli var að fundurinn var í beinni útsendingu á netinu á heimasíðu sambandsins. Kl. 19:30 hefst svo kvöldverður fyrir fulltrúa og maka þeirra í boði Jötuns-Véla og Remfló á Hótel Selfossi. (meira…)

Eyjamenn endanlega fallnir þrátt fyrir hetjulega baráttu gegn meistaraefnunum

Meistaraefnin úr Haukum geta prísað sig sæla með að hafa lagt ÍBV að velli í Vestmannaeyjum í dag. Eyjamenn, sem hafa verið límdir við botn N1-deildarinnar í vetur, komu flestum á óvart í síðustu umferð með að leggja næst efsta lið deildarinnar, Fram, að velli á útivelli. Í dag var svo komið að því að […]

Jafntefli í þriðja æfingaleik ÍBV í Tyrklandi

Meistaraflokkslið ÍBV lék sinn þriðja leik á sex dögum í gær. Leikurinn var gegn sænsku liði í þriðju efstu deild, Assyria. Leikmenn ÍBV léku fyrri hálfleikin stórvel og voru 2-0 yfir í hálfleik. Pétur Runólfsson skoraði fyrsta markið en það seinna var sjálfsmark. Þeir sænsku voru mun sterkari í síðari hálfleik og komust yfir 3-2 […]

Markar tímamót í sögu sjóðsins

Nokkur tímamót urðu í sögu Sparisjóðs Vestmannaeyja á aðalfundi hans í gærkvöldi, en þá var samþykkt að á næsta aðalfundi, árið 2009 tilnefni Bæjarstjórn Vestmannaeyja ekki fulltrúa í stjórn sjóðsins, eins og verið hefur frá upphafi. Þá voru í fyrsta sinn boðnir fram listar til stjórnarkjörs, A og B listi. Áður voru allir stofnfjáreigendur í […]

50 ára afmæli Leikfélags Selfoss

Í tilefni af 50 ára afmæli Leikfélags Selfoss verður opið hús í Litla leikhúsinu við Sigtún á Selfossi sunnudaginn 6 apríl kl.14-17. Þar gefst kjörið tækifæri til að skoða leikhúsið í hólf og gólf og kynna sér starfsemina. Gamlir munir og myndir frá fyrstu dögum félagsins til dagsins í dag verða til sýnis. Boðið verður […]

Alþingismaður Sunnlendinga í bítlareisu

„Ég er ekki búinn að fá það staðfest en já, ég hef mikinn áhuga á að fara þessa ferð, segir Grétar Mar Jónsson alþingismaður. Enn er ekki búið að ganga frá hundrað manna þátttakendalista þeirra sem hyggjast fara í pílagrímsför á bítlaslóðir í Liverpool um mánaðamótin maí-júní. Jakob Frímannsson formaður FTT segir að þeir sem […]

�?riggja kóra tónleikar

Góu- og kaffitónleikar þriggja sunnlenskra kóra verða haldnir í Básnum Efstalandi í Ölfusi laugardaginn 5. apríl kl. 16:00. Kórarnir sem koma fram eru Karlakór Hreppamanna undir stjórn Edit Molnár, Söngsveit Hveragerðis undir stjórn Margrétar S. Stefánsdóttur og Söngfélag Þorlákshafnar undir stjórn Roberts Darling. Einnig koma fram: (meira…)

Gömul landbúnaðarverkfæri á nýjum frímerkjum

Þann 27. mars sl. komu út frímerki sem minna á tæknisögu sveitanna: Þau sýna Ólafsdalsplóg, Þúfnabanann, Jarðýtu IHC TD6 og gráan Ferguson með vagnsláttuvél. Frímerkin hannaði Hlynur Óskarsson en Landbúnaðarsafn veitti nokkur ráð við gerð þeirra. Sjá má allar tegundirnar fjórar með því að smella hér eða á síðunni. (meira…)

Sjötíu og sjö styrkir veittir

Gengið hefur verið frá styrkveitingum vegna mótvægisaðgerða ríkistjórnarinnar á sviði ferðaþjónustu 2008-2009. Styrkirnir voru auglýstir í janúar s.l. og voru 160 milljónir króna til úthlutunar. Umsóknarfrestur rann út 5. febrúar og bárust alls 303 umsóknir. Alls hlutu 77 verkefni styrk. Hæstu styrkina hlutu Sögugarður í Grundarfirði og Félag áhugamanna um víkingaverkefni á slóðum Gísla Súrssonar […]

Umferð í samt lag á Selfossi

Umferð á Selfossi er komin í eðlilegt horf eftir að vörubílstjórar lokuðu umferð um Ölfusárbrú seinni partinn í dag. Þar voru saman komnir um tuttugu bílar, sem þó tepptu umferðina ekki alveg, heldur keyrðu þeir mjög hægt þannig að umferðaröngþveiti myndaðist. (meira…)

Tveir listar bjóða fram til stjórnarsetu í Sparisjóði Vestmannaeyja

Í kvöld fer fram aðalfundur Sparisjóðs Vestmannaeyja og verður meðal annars kosið í nýja stjórn sjóðsins. Í fyrsta sinn í sögu sjóðsins fer fram listakosning en samkvæmt heimildum Eyjafrétta eru tveir listar í framboði. Sömu heimildir herma að Helgi Bragason fari fyrir öðrum listanum en Þór Í. Vilhjálmsson fyrir hinum. (meira…)

Eldur kom upp í Blíðu VE

Nú fyrir skömmu var slökkvilið Vestmannaeyja kallað út vegna bruna í trillu sem lá við bryggju í Vestmannaeyjahöfn. Eldurinn kom upp í Blíðu VE, sjö tonna plastbáti. Tveir voru um borð í trillunni en þeir komust í land og varð ekki meint af. Georg Eiður Arnarson, eigandi trillunnar segir tjónið við fyrstu skoðun ekki mikið. […]

Skýrist í dag hvort Hermann spili á Wembley

Það mun skýrast á æfingu Portsmouth-liðsins í dag hvort Hermann Hreiðarsson geti verið með liðinu á morgun þegar það etur kappi við WBA í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar en leikurinn fer fram á Wembley. Hermann meiddist í leik Portsmouth og Wigan um síðustu helgi en hann fékk skurð fyrir ofan hásin og var saumaður fjórum sporum. […]

Bændur í beinni útsendingu frá Selfossi

AÐALFUNDUR Landssambands kúabænda verður settur kl. 10 í dag, föstudag, á Hótel Selfossi. Fundurinn er opinn öllum áhugamönnum um nautgriparækt. Fundurinn verður í beinni útsendingu á netinu á heimasíðu sambandsins www.naut.is Dagskrá fundarins: (meira…)

Styrkir dagforeldra með eingreiðslu

Í bréfi frá 10. mars sl. óska dagmæður í Hveragerði eftir styrk frá Hveragerðisbæ til kaupa á fjölburakerrum. Með bréfinu fylgdi greinargerð frá félagsmálastjóra. Bæjarráð samþykkir á fundi 27. mars sl. að greiða kr. 50.000,- vegna aðstöðu barna hjá dagforeldrum í Hveragerði. Um eingreiðslu verði að ræða sem er bundin því: (meira…)

Sex bátar valdir í netarallið

Sjávarútvegsráðuneytið hefur heimilað sex bátum netaveiðar í rannsóknaskyni undir umsjón Hafrannsóknastofnunarinnar á tímabilinu 2. apríl – 30. apríl. Starfsmenn Hafrannsóknastofnunarinnar verða um borð í bátum sem valdir hafa verið til verkefnisins og aflinn reiknast til rannsóknaafla stofnunarinnar. Bátarnir sem urðu fyrir valinu eru: (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.