Fjölgar og fjölgar enn
26. mars 2008 voru 7.676 skráðir íbúar í Sveitarfélaginu Árborg. Á Selfossi eru skráðir 6.349, í Sandvíkurhreppi 162, á Eyrarbakka og dreifbýli þess 610, á Stokkseyri og dreifbýli þess 544 og óstaðsettir eru 11. Aldursdreifng er þannig: (meira…)
Mokveiði í upphafi vertíðar
Humarvertíðin er hafin og lofar byrjunin mjög góðu. Fyrstu bátarnir héldu út strax eftir páska og hefur aflinn verið afbragðsgóður suðaustanlands, nánar tiltekið í Hornafjarðardýpi. Enn sem komið er hafa aðeins fjórir bátar hafið veiðar, allir frá Þorlákshöfn. (meira…)
Vilja vefmyndavélar á 150 staði til að kynna landið
Fjórtán þingmenn á Alþingi hafa lagt fram þingsályktunartillögu þar sem skorað er á menntamálaráðherra að koma á fót Vefmyndasafni Íslands með því að koma upp nettengdum myndavélum á allt að 150 stöðum á Íslandi, fegurstu og sérkennilegustu stöðum landsins. (meira…)
Eyjamenn lögðu lið frá Kasakstan

ÍBV sigraði lið frá Kazakstan í gær 4-1. Mörkin skoruðu Bjarni Rúnar Einarsson, Egill Jóhannsson, Atli Heimisson og Guðjón Ólafsson. Andstæðingarnir voru í slakara lagi og sigurinn hefði átt að vera mun stærri og fóru mörg dauðafæri forgörðum. Allir leikmenn tóku þátt í leiknum nema Brasilíumennirnir Alex og Italo auk Gauta er slæmur í hnénu […]
Fjölgun farþega 10,3% á fyrsta ársfjórðungi
Tæplega 147 þúsund farþegar fóru um Keflavíkurflugvöll í marsmánuði síðastliðnum, samkvæmt tölum frá flugvellinum. Frá áramótum, það er á fyrsta ársfjórðungi, nemur fjölgun farþega 10,33%, sem er sama hlutfallsfjölgun og var á fyrsta ársfjórðungi 2007. (meira…)
Fálki fékk næturgistingu á lögreglustöðinni í Vestmannaeyjum

Fálkaungi fékk næturgistingu hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum um síðustu nótt en þá um kvöldið hafði vegfarandi komið með fuglinn á lögreglustöðina. Fálkinn var ekki sjálfbjarga og fékk að sofa í litlum kofa bakvið lögreglustöðina. Til að reyna hressa upp á hann fékk hann að gæða sér á andakjöt sem borið var fyrir fuglinn. Skólabörn sem […]
Tafir á Herjólfi vegna bilunar

Tafir hafa orðið á ferðum Herjólfs í dag, fimmtudag vegna bilunar í annarri af tveimur aðalvélum. Samkvæmt þeim upplýsingum sem fengust um borð í Herjólfi kom bilunin í ljós í morgun, fljótlega eftir að skipið hafði lagt af stað úr höfn. Drepið var á báðum vélunum um stundarsakir og svo keyrt á annarri vélinni til […]
FSu í úrvalsdeildina í körfu karla
FSu tryggði sér í gærkvöldi sæti í úrvalsdeild karla í körfuknattleik næsta vetur þegar liðið lagði Val 67:63 í oddaleik liðanna á Selfossi um að fylgja Breiðabliki upp í úrvalsdeildina. Mikil spenna var í lokin, staðan 64:61 þegar 36 sekúndur voru eftir en Valsmenn hittu ekki úr vítaskoti. Það gerðu hins vegar leikmenn FSu sem […]
Hrossaræktarfundur í �?ingborg
Opinn fundur á vegum Félags hrossabænda og Bændasamtaka Íslands um málefni hrossaræktarinnar verður haldinn í Þingborg í kvöld fimmtudaginn 3. apríl, kl. 20:30. Frummælendur á fundinum verða þeir Kristinn Guðnason formaður Félags hrossabænda og fagráðs í hrossarækt og Guðlaugur V. Antonsson, hrossaræktarráðunautur BÍ. (meira…)
Tónvísinemendur á sinfóníutónleikum með Maxímús Músíkús
Laugardaginn 29. mars sl. fóru 20 vaskir nemendur Tónlistarskóla Árnesinga á sinfóníutónleika í Háskólabíói ásamt þremur kennurum sínum, þeim Edit, Örlygi og Ásu Berglindi. Dagskráin sem sinfóníuhljómsveitin flutti hét „Maxímús Músíkús heimsækir hljómsveitina“. Bók með sama nafni var gefin út þennan dag, en höfundar hennar eru meðlimir Sinfóníuhljómsveitar Íslands, þau Hallfríður Ólafsdóttir flautuleikari og Þórarinn […]
Lögreglan í umferðarátaki

Öllu rólegra var hjá lögreglu í vikunni sem leið en í vikunni á undan og engin alvarleg mál sem upp komu. Lögreglan hélt áfram átaki með umferðina þar sem sérstaklega er kannað með hvort ökumenn séu undir áhrifum áfengis eða fíkniefna við akstur. Voru vel á annað hundrað bifreiðar stöðvaðar í vikunni og reyndust ökumann […]
Málþing í �?orlákshöfn

Velferðarmálanefnd Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og Menningarráð Suðurlands efna til málþings í Versölum Ráðhúsi Ölfuss, Þorlákshöfn, um málefni innflytjenda á Suðurlandi föstudaginn 11. apríl nk. kl. 10.00 – 16.00 (meira…)
Olíufélögin lækka bensínverð

Olíufélögin N1 og Olís hafa lækkað bensínverð í dag en hjá N1 í Vestmannaeyjum hefur verið stanslaus biðröð í allan dag. Sömu sögu er að segja við Bensínsöluna Klett, sem selur bensín fyrir Olís en jafnaðarverð er á öllu bensíni hjá olíufélögunum tveimur á öllu landinu og er lítraverðið 129,40 krónur. (meira…)
Bjarni Harðarson með viðtalstíma
Alþingismaðurinn Bjarni Harðarson verður með viðtalstíma á Hótel Höfn á Hornafirði í kvöld á milli kl 17:30-19. Á Hótel Smyrlabjörgum n.k. föstudag milli kl 9 og 11, að því er fram kemur í tilkynningu frá þingmanninum. Að sögn Bjarna þá eru sem flestir hvattir til þess að koma og hitta hann og fara yfir málin […]
�?rslitaleikur í körfuboltanum um laust sæti í �?rvalsdeild
Í kvöld miðvikudaginn 2.april kl.19:15 verður hreinn úrslitaleikur um laust sæti í Úrvalsdeild spilaður í Iðu á Selfossi. Þá spila FSu og Valur í þriðja leikinn í úrslitaeinvíginu en þetta er jafnframt oddaleikur en sigurvegarinn í þessum leik öðlast þátttökurétt í Iceland Express deildinni í haust. Leikurinn hefst kl.19:15 í íþróttahúsinu Iðu á Selfossi. (meira…)
Bridgehátíð og hrossakjötsveisla
Hin árlega bridgehátíð og hrossakjötsveisla verður haldin í Þórbergssetri 5. og 6. apríl næstkomandi. Áhugafólk um bridge og hrossakjötsát er boðið velkomið. Torfi Steinþórsson á Hala var mikill félagsmálafrömuður og áhugamaður um spilamennsku og gekkst hann fyrir bridgekeppni og hrossakjötsveislum í Suðursveit á árum áður. Afkomendur hans hafa tekið að sér að halda merkinu á […]
Hermann í súrefnisklefa

Hermann Hreiðarsson og John Utaka eru nú í kapphlaupi við tímann um að ná sér góðum fyrir leik Portsmouth gegn WBA í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar á Wembley um helgina. Hermann fékk skurð á fæti í leik Portsmouth og Wigan um helgina og þurfti að fá þrjú spor saumuð til að loka skurðinum. Sjálfur sagði hann […]
Stigahæstu veturgömlu hrútarnir 2007
Á sauðfjárræktarfundum Búnaðarsambandsins í lok mars s.l. voru veittar viðurkenningar fyrir stigahæstu veturgömlu hrútana 2007. Um er að ræða alla hrúta sem hafa sláturupplýsingar fyrir a.m.k. 15 sláturlömb. (meira…)
Pæju- og Shellmót ÍBV á uppleið

Knattspyrnumót ÍBV fyrir yngri flokkana, Shellmót og Pæjumót hafa fengið meiri samkeppni síðari ár um þátttakendur á mótunum og sérstaklega hefur Pæjumótið látið á sjá. Forráðamenn ÍBV hafa hins vegar snúið vörn í sókn og nú bendir allt til þess að fleiri þátttakendur verði á mótunum í ár en í fyrra. Þá hefur nafni Pæjumótsins […]
Rokkað í Vestmannaeyjum í kvöld

Rás 2 og tónlistartímaritið Monitor hafa blásið til tónleikaferðarinnar Rokkað hringinn ásamt hljómsveitunum Dr. Spock, Sign og Benny Crespos Gang. Í kvöld er komið að Vestmannaeyjum og fara tónleikarnir fram á Prófastinum og opnar húsið klukkan 20.00. Auk tónleikanna er keppt í Guitar Hero III í framhaldsskólum sveitarfélaganna á tónleikadögum. (meira…)