Nýtt skip Vinnslustöðvarinnar í heimahöfn

�?riðjudaginn 28. júlí næst komandi kemur nýtt skip Vinnslustöðvarinnar til Eyja. Skipið hefur hlotið nafnið Ísleifur VE. 63. Við þetta tilefni verður skipið opið almenningi til sýnis frá kl. 16.30 til 19.00. vsv.is (meira…)

Ásmundur Arnarsson tekur við ÍBV

Knattspyrnuráð karla ÍBV og Ásmundur Arnarsson hafa náð samkomulagi um að Ásmundur taki við meistaraflokksliði karla ÍBV og stýri því út leiktíðina í fjarveru Jóhannesar �?órs Harðarssonar, sem hefur fengið leyfi frá störfum út leiktíðina af persónulegum ástæðum. En þetta kom fram á blaðamannafundi sem haldin var í dag. Ásmundur, eða Ási, er lærður sjúkraþjálfari […]

Bölvuð afskiptasemi er þetta

Ljóst er að bæjarráð Vestmannaeyja hefur talað fyrir munn margra með ályktun sinni í gær vegna fyrirhugaðrar byggingar bankans í miðbæ Reykjavíkur. Steinþór Páls­son, banka­stjóri Lands­bank­ans svaraði þessu í gær og sagði ekki standa til að byggja neina „flott­ræf­ils­höll“. Þó nokkrir hafa tjáð sig um þetta viðtal bankastjórans. Einn þeirra sem skrifar um málið er Gunnar Þór Heiðarsson. Hann […]

Uppgræðsla í hlíðum Eldfells er brýn

Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs á mánudaginn lá fyrir samantekt um stöðu uppgræðslu á foksvæðum og stöðu umhverfismála. Var samantektin gerð að beiðni Stefáns �?. Jónassonar bæjarfulltrúa Vestmannaeyja listans. Var hún unnin af �?lafi Snorrasyni, framkvæmdastjóra. �?ar kemur fram áætlanir umhverfis-og framkvæmdasviðs um aðgerðir og áætlanir í umhverfismálum Ráðið þakkaði �?lafi kynninguna lá fyrir �?ar […]

Jón Vídalín VE sigldi á Kap VE í höfninni í Eyjum

Um klukkan hálf tíu í morgun varð það óhapp í höfninni í Vestmannaeyjum að ísfisktogarinn Jón Vídalín VE bakkaði á uppsjávarskipið Kap VE þar sem skipið lá við bryggjuna á Eiðinu framan við Net. Nokkrar skemmdir urðu á skipunum sem bæði eru í eigu Vinnslustöðvarinnar. Samkvæmt upplýsingum Eyjafrétta var Jón Vídalín að bakka í höfninni […]

Magnaðar myndir og myndband úr �?rídröngum

Nú standa yfir lagfæringar á vitanum í �?rídröngum en Vegagerðin er að taka vitann í gegn. Í dag fóru sex málarar og tveir rafvirkjar út með þyrluflugmönnunum Gísla Matthíasi Gíslasyni og Jóni Kjartani Björnssyni sem var flugstjórinn í dag en báðir vinna þeir hjá Norðurflugi. Málararnir urðu eftir og ætla að mála og fríska upp […]

Tryggvi til Njarðvíkur

Tryggvi Guðmundsson er á leið til Njarðvíkur og mun spila með liðinu til loka tímabilsins. �?etta kemur fram á Fótbolta.net. Tryggvi var fyrr í sumar sagt upp störfum sem aðstoðarþjálfari ÍBV eftir að hafa mætt á æfingu undir áhrifum áfengis. Samhliða því spilaði hann með KFS í 3. deildinni og gerði áfram eftir að hann […]

Guðbjörg og �?skar láta gott af sér leiða

Hjónin Guðbjörg Guðmannsdóttir og �?skar Jósúason eru að hlaupa 100 km á 10 dögum eða 10 km á dag og leggja til hliðar 1.000 kr pr. hlaupara fyrir hverja 10 km sem þau hlaupa. Heildarupphæðin munu þau gefa í gott málefni líkt og þau gerðu í fyrra, þegar þau styrktu krabbameinsfélagið í Vestmannaeyjum skrifar Hjalti […]

Verðandi sjómaður í frönsku sjónvarpi

Fyrir um ári síðan sagði Anna �?lafsdóttir frá því að fjölskylda hennar hefði fengið heimsókn frá þýskum rithöfundi og þau væru komin í þýska barnabók. Nú er annað ævintýri að klárast. Anna segir frá ævintýrinu á facebook síðu sinni sem lesa má hér að neðan Fyrir um mánuði hringdi í mig frönsk sjónvarpskona, spurði reyndar […]

ÍBV til Ísrael og Serbíu

Dregið var til fyrstu um­ferða í Evr­ópu­mót­um fé­lagsliða í hand­knatt­leik í morg­un. Karla- og kvennalið ÍBV keppa í Áskor­enda­bik­arn­um. Fyrst var dregið í Áskor­enda­bik­ar kvenna. ÍBV mæt­ir serbneska fé­lag­inu WHC Knjaz Mi­los Arandjelovac og fer fyrsti leik­ur­inn fram í serbnesku borg­inni Arandjelovac. Síðan var dregið til fyrstu um­ferðar Áskor­enda­bik­ars karla. ÍBV kepp­ir fyr­ir hönd Íslands […]

Glöggt er gests augað

Náttúrustofan fær oft ábendingar um ýmislegt sem ferðamenn sjá og eru ekki sáttir við, bæði hér á Heimaey sem og annars staðar. Nokkrir hafa látið stofuna vita um fjölda dauðra kinda í fjörunni við Garðsenda og plast og ull á girðingum á leiðinni upp í Stórhöfða. Starfsmenn stofunnar fóru í höfðann og tóku meðfylgjandi myndir. […]

Ein líkamsárás kærð

Tiltölulega rólegt var yfir Eyjunni þessa vikuna, eins og við var að búast svona skömmu fyrir �?jóðhátíð. Af umferðinni er það að frétta að einn ökumaður var stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Einn ökumaður var sektaður fyrir að tala í símann við aksturinn án þess að nota til þess handfrjálsan búnað og […]

Selfoss sigraði ÍBV

ÍBV og Selfoss áttust við í Pepsi deild kvenna nú í kvöld þar sem Selfoss hafði betur 2-0. Liðin hafa mæst þrisvar í sumar og Selfoss haft betur í öll skiptin. ÍBV byrjaði leikinn vel og voru nánast búnar að skora í sinni fyrstu sókn. Cloe Lacasse komst þá upp að endamörkum en hlaup vantaði […]

Ísleifur VE 63 afhentur

Í síðustu viku var gengið frá afhendingu Ingunnar AK til Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum. Framvegis ber skipið nafnið Ísleifur VE. Salan á Ingunni er liður í endurnýjun á fiskiskipaflota HB Granda, segir á heimasíðu fyrirtækisins. Hið nýja og glæislega skip, Venus NS, kemur í stað Ingunnar og í desember nk. verður Faxi RE afhentur Vinnslustöðinni. Um […]

Skemmdarverk á Vestmannabrautinni

Aðfaranótt sunnudagsins 19. júlí voru framin skemmdarverk á Vestmannabrautinni. Athugul verkfarandi sendi Eyjafréttum myndir af verknaðinum eins og sjá má hér að ofan er tjónið nokkuð. Málningu var skvett á gangstétt, götu og á kyrrstandandi bíll. Ekki er ljóst hver var að verki en ljótt er þegar svona er farið með eigur annara. (meira…)

Selfoss kemur í heimsókn

ÍBV mætir Selfossi í Pepsi deild kvenna í dag klukkan 18:00. Stutt er síðan liðin áttu síðast við en það var í 8-liða úrslitum Borgunarbikars kvenna þar sem Selfoss hafði betur í vítaspyrnu keppni. Ljóst er að ÍBV á harma að hefna síðan þá og má búast við hörku leik milli liðanna. Selfoss er í […]

Nóg framundan í sumar

Vestmannaeyingurinn Unnar Gísli Sigurmundsson stimplaði sig rækilega inn á íslenska tónlistarlandakortið þegar hann gaf út smáskífuna “Color Decay” vorið 2014. Unnar Gísla þekkja margir landsmenn undir listamannsnafninu Júníus Meyvant. Nú hefur Júníus Meyvant lokið við vinnslu sinnar fyrstu þröngskífu og kallast hún einfaldlega EP. �?röngskífuna vann hann víða með upptökumönnunum Magnúsi �?der Kristinssyni og Finni […]

Brennukóngurinn tekinn tali

Nú styttist í þjóðhátíð og allt er komið á fullt í undirbúningi í dalnum. Brennan er farin að taka á sig góða mynd og því fannst Halldóri B. Halldórssyni tilvalið að taka smá spjall við brennukónginn sjálfan, Finnboga Gunnarsson ásamt brennudrottningunni Elínborgu Tryggvadóttur. (meira…)

Fótboltastjörnurnar fóru á kostum

Fótboltastjörnuleikurinn fór fram á Hásteinsvelli í hálfleik á leik ÍBV og Fjölnis. Leikurinn var hluti af fjáröflun hópsins vegna ferðar á leik í ensku úrvalsdeildinni sem stefnt er að því að fara í haust. Leikmenn liðanna fengu þó góða upphitun en þeir leiddu inn á völlinn leikmenn meistaraflokks ÍBV, því var mesti sviðsskrekkurinn farin úr […]

Glæsilegur sigur hjá strákunum

ÍBV mætti Fjölni í dag í Pepsi deild karla á Hásteinsvelli þar sem ÍBV hafði betur 4-0. Lið ÍBV var mikið breytt frá því í síðasta leik. Hafsteinn Briem og Mees Siers komu aftur inn í liðið eftir leikbann. Abel Dharia, Gunnar Heiðar �?orvaldsson og Sito komu allir inn í liðið en Gunnar Heiðar og […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.