Stálu bíl og skemmdu hann

Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í vikunni sem leið án þess þó að um hafi verið að ræða alvarleg mál sem komu til kasta lögreglu. Skemmtanahaldið fór fram með ágætum en eitthvað var þó um að kvartað væri yfir hávaða frá heimahúsum. Aðfaranótt 22. júní sl. var lögreglu tilkynnt um nytjastulda á bifreið sem […]

Serbarnir hressir

Eins og fram hefur komið var dregið í fyrstu tvær umferðir forkeppni Evrópudeildarinnar fyrr í dag. Ef ÍBV kemst í 2. umferð, mætir liðið hinu fornfræga félagi Rauðu stjörnunni frá Belgrad. Serbneskir stuðningsmenn hafa komið sínum skilaboðum á framfæri á facebooksíðu ÍBV undanfarnar mínútur, hafa póstað fjölda myndbanda og hafa ítrekað boðið Eyjamenn velkomna til […]

Elísa á leið á EM

Elísa Viðarsdóttir, fyrirliði ÍBV í knattspyrnu, hefur verið valin í lokahóp íslenska landsliðsins fyrir lokakeppni Evrópumótsins, sem fram fer í Svíþjóð í næsta mánuði. Þetta verður fyrsta stórmót Elísu enda aðeins í annað sinn sem Íslandi tekst að komast í lokakeppni stórmóts. Í hópnum finnur hún fyrir systur sína, Eyjakonuna Margréti Láru og sömuleiðis Fanndísi […]

Happadráttur hjá ÍBV

Eyjamenn drógust gegn HB Tórshavn frá Færeyjum í 1. umferð Evrópudeildarinnar en verið er að draga í höfuðstöðvum UEFA í Nyon í Sviss. ÍBV var dregið á undan úr hattinum og á heimaleikinn á undan. Leikið verður 4. júlí á Hásteinsvelli en liðin mætast svo öðru sinni í Þórshöfn í Færeyjum viku síðar. (meira…)

Yndislega Eyjan mín – 40 árum síðar á geislaplötu

Í tilefni þess að í ár eru 40 ár liðin frá eldgosinu í Heimaey, voru haldnir risatónleikar í Edlborgarsal Hörpu þann 26. janúar síðastliðinn. Færri komust að en vildu en á tónleikunum voru Eyjalögin flutt af nokkrum af bestu tónlistarmönnum landsins. Viðstaddir voru einróma um ágæti tónleikanna en nú geta þeir sem ekki áttu heimangengt, […]

Dregið í Evrópudeildinni í dag

Klukkan 11:00 í dag verður dregið í undankeppni Evrópudeildarinnar. ÍBV er í pottinum fyrir fyrstu umferðina en þetta er þriðja árið í röð sem Eyjamenn taka þátt í keppninni. Síðustu tvö ár hefur liðið hins vegar tapað fyrir írska liðinu Saint Patrick’s. ÍBV er í neðri styrkleikaflokki en dregið verður í höfuðstöðvum Evrópska knattspyrnusambandsins í […]

Rústir Blátinds hrundu í gær

Eitt af helstu kennileitum eldgossins í Vestmannaeyjum, rústir hússins Blátindur, hrundi endanlega í gærkvöldi. Húsið lá að mestu undir hrauni en hluti af framhlið hússins stóð nokkuð heillegt út úr hrauninu. Það er kannski táknrænt að húsið skuli hrynja í ár, þegar 40 ár eru liðin frá eldgosinu í Heimaey en húsið fór undir hraun […]

Brunaútkall í morgun að Kirkjuvegi 23

Slökkvilið Vestmannaeyja var kallað út um sex í morgun að húsnæði við Kirkjuveg 23 en þar er m.a. Íslandsbanki til húsa á neðstu hæð. Tilkynnt var um að viðvörunarkerfi hússins hefði farið í gang og að reykur kæmi út frá íbúð í risi hússins. Ragnar Baldvinsson, slökkviliðsstjóri sagði í samtali við Eyjafréttir að betur hafi […]

ÍBV lagði Fram

ÍBV sigraði Fram í dag eftir heldur bragðdaufan leik. Lokatölur urðu 1-0 og ÍBV í 5. sæti sem stendur en umferðin klárast á morgun. Leikurinn fór vel af stað en strax á 1. mínútu létu leikmenn ÍBV boltann ganga vel á milli sín, Tonny Mawejje komst í úrvalsfæri en í stað þess að skjóta ætlaði […]

Fram í heimsókn í dag

ÍBV tekur á móti Fram í 8. umferð Pepsídeildar karla í dag á Hásteinsvelli en leikurinn hefst klukkan 17:00. Fram er í sjöunda sæti deildarinnar, með 11 stig en ÍBV er sæti ofar með 12 stig. Leikurinn er því báðum liðum afar mikilvægur en sigur myndi halda öðru hvoru liðinu við topp deildarinnar. Fram skipti […]

Vélarvana skúta dregin til hafnar

Áhöfn björgunarbátsins Þórs í Vestmannaeyjum var kölluð út í nótt. Skúta, sem var vélarvana úti við Faxasker, austan við Heimaklett þurfti aðstoð til að komast til hafnar en í nótt var svo til algjört logn og væntanlega ekki hægt að fá byr í seglin heldur. (meira…)

Aldarminning Árna úr Eyjum

Á morgun, sunnudaginn 23. júní kl. 15-16 er þess minnst að á árinu er rétt öld liðin frá því Árni Guðmundsson, er jafnan var þekktur sem Árni úr Eyjum, fæddist. Af því tilefni bjóðum við til veislu í Safnahúsinu, nánar tiltekið á bryggjunni í Byggðasafni, Sagnheimum. Hafsteinn Guðfinnsson mun spjalla um Árna ásamt því að […]

Ingó Veðurguð tekur við af Árna Johnsen

Árni Johnsen mun ekki stýra brekkusöngi þjóðhátíðarinnar í ár, í fyrsta sinn í tæpa fjóra áratugi, ef undan er skilið eitt ár þegar Róbert Marshall leysti hann af hólmi en Árni byrjaði með brekkusönginn 1977. Ingólfur Þórarinsson, Veðurguð mun taka við keflinu og stýra söngnum í ár en Ingó hefur reglulega komið fram á þjóðhátíð, […]

Hlustaðu á þjóðhátíðarlagið 2013

Þjóðhátíðarlag Vestmannaeyja 2013 var frumflutt í morgun. Lag og texta semur hinn nýdanski Björn Jörundur Friðbjörnsson en lagið heitir Iður. Hægt er að hlusta á lagið hér að neðan. (meira…)

Skattur á hvern íbúa í Eyjum yfir hálf milljón

Breytingar þær sem ríkis­stjórnin hefur lagt til að verði á lögum um veiðigjöld hafa mætt mikilli andstöðu. Farin er af stað undirskrifta­­söfnun þar sem tug­þús­undir hafa skráð nöfn sín til að skora á forsetann að samþykkja ekki nýju lögin. Fari svo er eins víst að engin veiðigjöld verði lögð á útgerðina á næsta ári. Þetta […]

Víkingur kominn til heimahafnar

Nýjasta viðbótin við skipaflota Vestmannaeyja, Víkingur kom til heimahafnar í morgun. Báturinn, sem áður hét Ísafold var smíðað í Svíþjóð 1971 en hefur undanfarið verið notaður fyrir sjóstangveiði og gerður út frá Reykjavík. Víkingur er 30 metra langur og 7 metra breiður og getur flutt 94 farþega og ristir 2,6 metra. Sigurmundur Gísli Einarsson, eigandi […]

�??Stórkostlegasti völlur sem ég hef spilað á�??

„Klettar, hraun og sjórinn gerir völlinn þann stórkostlegasta sem ég hef spilað,“ er haft eftir hinni bandarísku Kimber Bilby á vef Reuters um golfvöllinn í Vestmannaeyjum. Þar skrifar blaðamaðurinn Paul Ingrassia um íslenskt golf og kemur auðvitað sérstaklega inn á golfvöllinn í Vestmannaeyjum. (meira…)

Simona ekki með ÍBV næsta vetur

Simona Vintila mun ekki leika með kvennaliði ÍBV í handbolta næsta vetur. Hún mun snúa aftur heim til Rúmeníu og leika með sínu gamla félagi á næsta tímabili. Þetta kemur fram á heimasíðu ÍBV. Þá liggur einnig fyrir að Florentina Stanciu muni ekki leika með ÍBV næsta vetur en hún mun leika með Stjörnunni næsta […]

Myndband við Leiðin heim

Bjartmar Guðlaugsson semur Goslokalagið í ár en lagið heitir Leiðin heim og textann á Bjartmar. Nú er búið að búa til myndband við lagið og er hægt að horfa á myndbandið hér að neðan og lesa textann til að glöggva sig betur á laginu. Bjartmar kemur víða við í textanum, á stöðum sem eldri Eyjamenn […]

Krefjast skaðabóta vegna útgerðarkaupa

Tekið var fyrir mál Vinnslustöðvarinnar hf. í Eyjum gegn fv. stjórnarmönnum fyrirtækisins, í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Það er Stilla útgerð hf., einn hluthafa Vinnslustöðvarinnar, sem höfðar málið í nafni fyrirtækisins, skv. sérákváðum hlutafjárlaga. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.