Vill láta greina 3-4 heppilega staði undir hótel

Á fundi bæjarstjórnar í síðustu viku var samþykkt að hafna umsókn H-Eyjar um lóð í Hásteinsgryfju undir 120 herbergja hótel. Þess í stað samþykkir bæjarstjórn að láta vinna faglega skipulagsúttekt í Vestmannaeyjum með það að leiðarljósi að greina 3 til 4 heppilega staði undir hótel. Þegar slíkt liggur fyrir verður niðurstaða kynnt í Safnahúsi og […]
Tvö efstu lið síðasta sumars mætast í dag

Kvennalið ÍBV tekur á móti ríkjandi Íslandsmeisturum Þórs/KA á Hásteinsvelli klukkan 18:00 í dag. Liðin náðu sögulegum árangri síðasta sumar, urðu í tveimur efstu sætunum en langt er síðan tvö landsbyggðarfélög gerðu það í efstu deild á Íslandi. Gengi Íslandsmeistaranna hefur ekki verið gott það sem af er sumars en liðið er í 6. sæti […]
Vinin í nýja hrauninu

Það var sumarið 1988 sem hjónin Erlendur Stefánsson og Guðfinna Ólafsdóttir hófu af mikilli eljusemi uppgræðslu og ræktun í dalverpi eða lundi á Nýja hrauninu í Vestmannaeyjum aðeins 15 árum eftir jarðeldana 1973. Í upphafi var þar enginn jarðvegur en tómur vikur. Með árunum dafnaði lundurinn og fékk nafnið Gaujulundur eftir öðrum frumherjanum. Lundurinn hefur […]
Stjarnan sigraði ÍBV

ÍBV tapaði fyrir Stjörnuni á útivelli í dag, leikurinn var mjög mikilvægur fyrir liðið en ÍBV hefði með sigri getað komist upp fyrir Stjörnuna. Eyjamenn voru betri aðilinn í leiknum samkvæmt útvarpslýsingu en náðu ekki að koma boltanum í netið. (meira…)
Svona gera menn ekki

Það er gaman að fara út í náttúruna, grilla og njóta veðurblíðu. En svona gera menn ekki. Aðkoman að nýja grillinu við skógræktina fyrir ofan Skansinn var heldur döpur í morgun. Dósir, sígarettustubbar og búið spreyja á bekkinn og skemma grillið. (meira…)
Shellmótinu lokið

Shellmótinu lauk nú rétt í þessu. Veðrið lék við peyjana síðasta daginn en úrslitaleikurinn var spilaður í sól og blíðu á Hásteinsvelli. Breiðablik og Þór Akureyri léku til úrslita en Breiðablik hafði betur í þetta sinn. Mótið hófst síðastliðinn miðvikudag og spilaðir voru 528 leikir. (meira…)
Sýnishorn úr myndinni �?tlendingur heima – uppgjör við eldgos

Hægt er að sjá sýnishorn úr heimildarmynd Jóhönnu Ýr Jónsdóttur og Sighvatar Jónssonar, Útlendingur heima – uppgjör við eldgos hér að neðan. Í myndinni er fjallað um tilfinningar fólks sem upplifði eldgosið á Heimaey 1973. Jóhanna Ýr er sögumaður og leitar til fólks á hennar aldri, um hverju því finnst ósvarað um uppgjör fólks við […]
Breiðablik sló ÍBV út, annað árið í röð

ÍBV tók á móti Blikum í dag. Mjög hvasst var í Eyjum á meðan leik stóð og sást það vel á leik liðanna. ÍBV komst tvívegis yfir í leiknum en Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði sigurmark Blika. (meira…)
Vorum samferða í gegnum lífið

Í DV í dag er viðtal við Bjartmar Guðlaugsson og Ragnheiði Rut Georgsdóttur, en þau ætla að halda málverkasýningu í Eyjum á goslokunum um næstu helgi í minningu föður Ragnheiðar, – Georg Kristjánsson. „Við ætlum að halda sýninguna í minningu Gogga og það er alveg æðislegt að geta gert það á þessum tímamótum, þegar 40 […]
Fjallað um sögu mormóna í golfskálanum

Laugardaginn næsta, 29. júní kl. 11-13 verður boðið upp á notalega stund í golfskálanum. Þar verður unnt að fá súpu og kaffi gegn vægu verði og hlýða á erindi um örlög og ævi sumra þeirra Vestmannaeyinga sem fluttust til Utah á síðari hluta 19. aldar. Tilefnið er að í ár eru liðin 160 ár frá […]
Dagsferð í Vestmannaeyjahlaupið

Hægt er að kaupa sér dagsferð um næstu helgi til að taka þátt í Vestmannaeyjahlaupinu. Eins og gefur að skilja er mikil traffík til Eyja fyrir helgina en í tilkynningu frá forsvarsmönnum Vestmannaeyjahlaupsins kemur fram að hægt sé að kaupa ferð til Eyja klukkan 10:00 á laugardagsmorgni og til baka 20:30 um kvöldið. Vestmannaeyjahlaupið verður […]
Ekkert samráð vegna lundaveiði

Náttúrustofa Suðurlands tekur fram að ekkert samráð var haft við stofuna áður en ákveðið var í Bæjarráði Vestmannaeyja 26. júní síðastliðinn að leyfa lundaveiðar í Vestmannaeyjum í sumar. Samkvæmt rannsóknum Náttúrustofu Suðurlands undanfarin ár hefur viðkoma lundastofnsins í Vestmannaeyjum verið minni en nemur viðhaldi stofnsins og veiðar því ósjálfbærar. (meira…)
Lundaveiðar leyfðar í sumar

Heimilt verður að veiða lunda í Vestmannaeyjum í sumar frá 19. júlí til 31. júlí. Þetta var ákveðið á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja í gær. Á fundinn komu fulltrúar bjargveiðimanna og gerðu grein fyrir afstöðu sinni til veiða og gjaldheimtu. Mat þeirra var að heimila ætti einhverja opnun á veiðum og treysta veiðimönnum til að meta […]
Fjallað um sögu mormóna í Golfskálanum

Laugardaginn næsta, 29. júní kl. 11-13 verður boðið upp á notalega stund í Golfskálanum. Þar verður unnt að fá súpu og kaffi gegn vægu verði og hlýða á erindi um örlög og ævi sumra þeirra Vestmannaeyinga sem fluttust til Utah á síðari hluta 19. aldar. Tilefnið er að í ár eru liðin 160 ár frá […]
Ágætis veður í morgunsárið

Fyrsti keppnisdagur Shellmótsins er í dag, fimmtudan en fyrstu leikirnir hófust klukkan 8:20. Mótið í ár er þrítugasta mótið sem haldið er en fyrstu árin hét mótið Tommamót en hefur lengst af heitið Shellmót. Um 1200 peyjar taka þátt í mótinu en gífurlegur fjöldi aðstandenda koma til Eyja í tengslum við mótið og eru tjaldstæði […]
Eyjamenn bjartsýnir á framtíðina

Heildarmat fasteigna á Íslandi hækkar um 4,3% frá yfirstandandi ári og verður 4.956 milljarðar króna, samkvæmt nýju fasteignamati fyrir árið 2014 sem Þjóðskrá Íslands birti fyrir skömmu. Heildarfasteignamat á höfuðborgarsvæðinu hækkar um 4,4%. Matið á Suðurnesjum verður óbreytt en hækkar um 4,2% á Vesturlandi, 5,4% á Vestfjörðum, 2,5% á Norðurlandi vestra, 5,7% á Norðurlandi eystra, […]
Vestmannaeyjabær vill lögfræðiálit á frumvarpi um veiðigjöld

Bæjarráð tók fyrir á fundi sínum umsögn Vestmannaeyjabæjar um frumvarp um veiðigjöld. Bæjarráð fagnar leiðréttingu á þeim hluta gjaldsins sem snýr að bolfiski en harmar aukningu gjaldsins sem snýr að uppsjávarveiðum. Í bókun bæjarráðs segir að sértækar álögur á Vestmannaeyjar séu nú þegar óhóflegar og samtals séu fluttar á ári 5692 milljónir vegna þessara gjalda […]
Blátindur hrundi skömmu eftir upptöku

Á Goslokahátíðinni verður heimildarmyndin Útlendingur heima – uppgjör við eldgos frumsýnd í Bæjarleikhúsinu en myndina framleiða þau Jóhanna Ýr Jónsdóttir og Sighvatur Jónsson. Upptökur hafa staðið yfir síðustu mánuði og verður myndin jafnframt sýnd á RÚV sunnudagskvöldið 7. júlí klukkan 19:40. Meðal annars voru tekin skot við rústir hússins Blátind en rústirnar hrundu svo skömmu […]
Sanngjarn sigur ÍBV

FH og ÍBV mættust í kvöld í Kaplakrika. Stelpurnar fóru með sigur af hólmi 1-3 en jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik. Stelpunum hefur gengið mjög vel í sumar og hafa unnið 5 leiki og gert 1 jafntefli í 8 leikjum. Stelpurnar eru í 3. sæti Pepsi-deildarinnar á eftir Stjörnunni og Breiðablik. (meira…)
Hálf milljón á skallanum

Á dögunum fór fram hið árlega Ufsaskallamótið í golfi. Þetta er í fimmta sinn sem Ufsaskalli er haldinn en mótið er góðgerðarmót, þar sem ágóðinn rennur í gott málefni í Vestamannaeyjum. Ufsaskallinn sjálfur, Valtýr Auðbergsson hefur staðið að mótinu öll fimm árin en hann sagði í samtali við Eyjafréttir að alls hafi safnast um hálf […]