Hólagatan skreytt frá neðsta húsi til þess efsta

Í veðurblíðunni í dag hefur fólk víða tekið við sér og skreytt hús sín og nágrenni. Hólagatan er til dæmis skreytt frá neðsta húsi til efsta. Og skreytingarnar eru margskonar og setja skemmtilega svip á bæinn. Ljósmyndari Eyjafrétta fór hring um bæinn og myndaði það sem fyrir augu bar. (meira…)
Lögbann í aðdraganda aðalfundar Vinnslustöðvarinnar

Aðalfundur Vinnslustöðvarinnar hf. í Vestmannaeyjum sl. föstudag, 28. júní, samþykkti að boða til framhaldsaðalfundar 29. júlí nk. til að staðfesta reikninga félagsins. Aðalfundarstörfin nú voru að ýmsu leyti óvenjuleg vegna dóms Hæstaréttar Íslands frá 26. mars 2013, þar sem ógilt var ákvörðun hluthafafundar í félaginu í september 2011 um samruna Ufsabergs-útgerðar ehf. og Vinnslustöðvarinnar hf. […]
Sérstakar Gosloka-Eyjafréttir

Eyjafréttir koma út í kvöld, miðvikudagskvöld, heldur seinna en venjulega. Blaðið er óvenjustórt að þessu sinni, eða 52 blaðsíður og þar er Heimaeyjagosinu gerð sérstaklega góð skil, með fjölmörgum viðtölum við fólk sem upplifði gosið á mismunandi hátt. Margir ljósmyndarar koma við sögu og margar myndanna hafa aldrei fyrr komið fyrir almenningssjónir. Þá er gosumfjöllun […]
Húsið og lóðin skreytt með prjónaskap

Goslokanefnd hefur beint því til bæjarbúa að skreyta húsin sín í tilefni goslokahátíðar. Ýmsir hafa brugðist við og gert það myndarlega. Húsið Brimhólabraut 21 er eitt dæmi. Það hús eiga þau hjónin Hlynur Geir Richardsson og Þórunn Jónsdóttir. Þau hjón hafa lagt gríðarlega vinnu í undirbúning skreytinganna því þær eru allar prjónaðar. (meira…)
Lög unga fólksins

Í kvöld, 3. júlí hefst dagskrá 40 ára goslokahátíðar með tónleikum „Lögum unga fólksins“. Dagskráin hefst kl. 21.00 í Bæjarleikhúsinu. Ungt fólk flytur slagara frá árum pabba og mömmu og afa og ömmu. Stjórnandi Birkir Thor Högnason. Aðgangseyrir er kr. 1.500,- (meira…)
Gosinu lauk 3. júlí

Síðasta goshrinan í Heimaeyjargosinu stóð yfir í aðeins nokkrar mínútur þann 26. júní. Þann 3. júlí 1973, tilkynnti Almannavarnanefnd að gosinu væri lokið með eftirfarandi tilkynningu; „Að mati sérfræðinga og vísindamanna er það staðreynd, að gígurinn er lokaður og gosvirkni í fellinu hætt. Þar sem ekki er hins vegar enn laust við gasmengun í miðhluta […]
Leiðin heim

Í dag, 3. júlí, eru 40 ár frá því Heimaeyjagosinu lauk formlega. Bjartmar Guðlaugsson samdi lag þessarar goslokahátíðar og flytur lagið með Bergrisunum. Það er við hæfi lagið sé fyrsta frétt Eyjafrétta á þessum merka degi. (meira…)
Ný vefsíða Landakirkju

Nú hefur ný vefsíða Landakirkju hefur verið tekin í notkun. Nýja síðan er sniðin að þörfum kirkjunnar og þar er að finna upplýsingar um alla þætti starfsins. Síðan er byggð á WordPress vefumsjónarkerfinu og þema sem heitir Avada. Síðan er sérstaklega hönnuð til þess að passa vel í allar gerðir tækja, hvort sem er um […]
Eignarhaldið færist til í fjölskyldunni

Símonía Helgadóttir og Friðberg Egill Sigurðsson hafa keypt rekstur veitingastaðarins Toppurinn af Karli Helgasyni og Jónu Guðmundsdóttur. Veitingarekstur hefur verið í gömlu Bílastöðinni í mörg ár, undir ýmsum nöfnum en undanfarin ár verið undir nafninu Toppurinn. (meira…)
�?rfiskmarkaðurinn VE 123 opnar á morgun

Emilía Borgþórsdóttir er þessa dagana að leggja lokahönd á nýja þjónustu í Eyjum. Hún er að fara af stað með örfiskmarkaðinn VE 123 á Vigtartorginu í sumar. Á facebooksíðu Emilíu segir hún: „Þetta er gert til að lífga upp á mannlífið á torginu og ekki síður til að gera gestum og gangandi auðveldara að verða […]
Gunnar Magnússon ráðinn þjálfari ÍBV

ÍBV gekk frá ráðningu Gunnars Magnússonar nú rétt í þessu samkvæmt vefsíðunni fimmeinn.is. Gunnar mun koma að þjálfun meistara- og 2. flokks karla ásamt Arnari Péturssyni. Gunnar mun einig sjá um handbolta akademíuna, sem hefur reynst ÍBV mjög vel. (meira…)
Áttu að eiga fyrir flugfarinu til Eyja eftir að hafa tekið 14 þúsund millljónir frá þessum tveimur atvinnusvæðum

Á laugardaginn var birtist grein í Morgunblaðinu þar sem Elliði Vignisson bæjarstóri, Páley Borgþórsdóttir formaður bæjarráðs í Vestmannaeyjum, Jens Garðar Helgason formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð og Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, formaður atvinnunefndar í Fjarðabyggð sendu þingmönnum Suður- og Norðusausturkjördæmis tóninn. Hægt er að lesa greinina hér: http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1471176/?item_num=76&dags=2013-06-29 (meira…)
Aukinn viðbúnaður um Goslokahelgina

Lögreglan í Vestmannaeyjum mun auka við sinn mannskap vegna komandi Goslokahátíðar enda má búast við miklum mannfjölda í bænum. Eyjamenn og gestir þeirra fagna því um helgina að 40 ár eru liðin frá því að eldgosinu lauk á Heimaey og eru hátíðahöldin sérlega vegleg við þessi tímamót. Annars gekk síðasta vika vel fyrir sig hjá […]
Ási grási í Grænuhlíð

Á föstudaginn kl. 13.00 opnar Ásmundur Friðriksson myndlistarsýningu í Baldurskrónni við Heiðarveg. Við það tilefni kynnir hann einnig nýja bók eftir sig, Ási grási í Grænuhlíð, Eyjapeyi í veröld sem var. Í bókarkynningu segir Ási: „Það er misjafnt hvað maður man frá æskuárunum og oft spurning hvort minningarnar eru manns eigin, endursögn annarra, draumur eða […]
Vestmannaeyjahöfn 100 ára

Í júlímánuði eru rétt 100 ár frá því Alþingi samþykkti lög um Vestmannaeyjahöfn. Af því tilefni verður hluti af dagskrá goslokahátíðarinnar helguð þessum tímamótum. Á föstudaginn kl. 17.00 mun Arnar Sigurmundsson leiðir göngu frá Skansinum um bryggjurnar, inn í Friðarhöfn og staldrað við á nokkrum stöðum og endað á Skipasandi kl. 18.15. Þar verður afhjúpað […]
Að virkja óvininn

Þegar eldgosinu á Heimaey lauk 1973 kom hugmynd frá Sveinbirni Jónssyni úr Reykjavík að nýta varmaorkuna til upphitunar húsa. Það var í ársbyrjun 1974 sem Sveinbjörn setti upp einfaldan varmaskipti á Eldfellshrauni og lét kalt vatn renna í gegnum hann. Vatnið hitnaði samstundis og var heita vatnið leitt inn á hitakerfi húss sem stóð nálægt […]
Góður sigur á �?ór/KA

ÍBV tók á móti Þór/KA í kvöld. ÍBV hefur gengið vel í sumar, en þær hafa aðeins tapað tveimur leikjum. Fyrir leikinn var Þór/KA í 6. sæti Pepsi-deildarinnar en ÍBV í því þriðja. Stelpurnar þurftu því á sigri að halda ef þær ætluðu ekki að missa af Stjörnunni og Breiðablik sem eru í efstu tveimur […]
Gefur út disk með myndum frá Heimaeyjargosinu

Kiwanisklúbburinn Eldfell í Reykjavík, sem er að stofni til kiwansklúbbur brottfluttra Vestmannaeyinga, hefur undanfarna mánuði safnað saman myndum frá Heimaeyjargosinu 1973 og er safnið orðið ansi hreint flott með yfir 3.000 myndum, sem er langt umfram væntingar. Nú hefur klúbburinn gefið út disk með því helsta úr þessu safni og er hann til sölu hjá […]
Herjólfur siglir aukaferð á sunnudaginn

Mikil ásókn er í farmiða með Herjólfi næsta sunnudag. Bæði vegna 40 ára gosloka afmælis og er það megin ástæðan en síðan bætist við bikarleikur ÍBV og KR á þessum degi. Aukaferðin verður klukkan 19:00 frá Eyjum og 20:00 frá Landeyjahöfn. Smávægileg breyting verður á tveimur brottfarartímum frá Vestmannaeyjum og einum brottfarartíma frá Landeyjahöfn. (meira…)
Nota vinnusiðferði sjómennskunnar við námið

Í Morgunblaðinu í dag er viðtal við Þorvald Ásgeirsson, sjómann úr Eyjum sem varð að söðla um eftir vinnuslys. „Ég var lengi á sjó og tók það vinnusiðferði með mér sem ég hafði lært þar; að halda áfram að vinna og vinna þar til verkefninu lyki. Þetta er ekki flókið,“ segir Þorvaldur Tolli Ásgeirsson, spurður […]