Heimaklettsferð fellur niður

Ganga upp Heimaklett sem fyrirhuguð var í hádeginu á morgun, laugardag, fellur niður vegna veðurs. Þess í stað mun Friðbjörn Valtýsson sem ætlaði að leiða gönguna, vera með skemmtilegan fyrirlestur um Heimaklett, klukkan 12.00 í Sagnheimum. Friðbjörn er einn af þeim sem þekkir Heimaklett út og inn og verður því um afar fróðlegan fyrirlestur að […]

Allt að verða klárt fyrir tónleika Fjallabræðra og Lúðrasveitar Vestmannaeyja

Í kvöld fara fram stórtónleikar Fjallabræðra og Lúðrasveitar Vestmannaeyjar. Þjóðþekktir söngvarar hafa boðað komu sína en þau eru Sverrir Bergman, Páll Óskar og Sunna Guðlaugs, sem hleypur í skarðið fyrir Ragnhildi Gísladóttur. Tónleikarnir hefjast klukkan 20:30 en salurinn tekur 1200 í sæti. Blaðamaður Eyjafrétta heyrði í forsvarsmönnum tónleikanna og sagði hann að búið væri að […]

Setning Goslokahátíðar færð inn í Höll

Setningarhátíð Goslokahátíðarinnar, sem fram átti að fara á Stakkagerðistúninu klukkan 15:00 í dag, hefur verið færð inn í Höllina og hefst á sama tíma eða klukkan 15:00. Kynnir er leikkonan Elva Ósk Ólafsdóttir en meðal þeirra sem munu taka til máls er Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra Íslands. (meira…)

Bændamarkaður á Vesturvegi

Vöruval hefur opnað bændamarkað á túninu á móti Vöruval. þar sem húsið Skálanes stóð. Markaðurinn opnaði gær og voru viðtökurnar mjög góðar. Markaðurinn verður opin í dag og á morgun svo lengi sem veður leyfir. (meira…)

Veðurspá farin að riðla Goslokadagskrá

Veðurspá dagsins er ekki ýkja spennandi fyrir útiveru í tengslum við Goslokahátíðina en Veðurstofa Íslands spáir rigningu í allan dag og nokkuð stífri austan átt. Af þessum sökum hefur tveimur dagskrárliðum Goslokahátíðarinnar í dag verið frestað til morguns. (meira…)

�?ökkum Guði og gæfunni

Þessa daga minnumst við þess að 40 ár eru liðin frá goslokum. Við höldum hátíð. Það er fullkomlega eðlilegt. Við getum verið þakklát. Við vorum að mörgu leyti mjög heppin. Mér er í fersku minni nóttin þegar gosið hófst. Þegar ég var vakinn af værum svefni og tilkynnt af yfirvegun að ég ætti að fara […]

Bryggjurölt á aldarafmæli

Í dag, föstudag kl. 17.00 hefst hafn­arganga – bryggjurölt undir leiðsögn Arnars Sigurmundssonar, formanns framkvæmda- og hafnarráðs. Tilefnið er að í þessum mánuði er 100 ára afmæli sérstakra laga um Vestmannaeyjahöfn. Voru þau samþykkt á Alþingi í júlí 1913. (meira…)

Páll �?skar mætir á gosloka­hátíð

Páll Óskar Hjálmtýsson mun leika fyrir dansi á föstudagskvöldið í Höllinni. Bjarni Ólafur sagði í samtali við Eyjafréttir að ballið væri góð upphitun fyrir þjóðhátíð. ­„Ballið er tilvalið fyrir þá sem missa af þjóðhátíð eða þá sem vilja taka forskot á sæluna og svo er ekki hægt að sleppa því þegar manni býðst að fá […]

ÍBV og HB skildu jöfn

Færeyingar fóru sáttir af velli þegar ÍBV og HB skildu jöfn í fyrri viðureign liðanna í Evrópukeppninni. Eyjamenn voru mun betri í fyrrihálfleik og voru yfir 1-0 í hálfleik. Eyjamenn héldu áfram að sækja í þeim síðari en náðu ekki að koma boltanum inn. HB náðu svo að jafna metin nokkuð gegn gangi leiksins. Gæði […]

Töfrabragðanámskeið Einars Mikaels

Vegna fjölda fyrirspurna er Einar Mikael töframaður á leið til Vestmannaeyja og ætlar að halda námskeið í töfrabrögðum fyrir krakka. Námskeiðið hefur vakið mikla lukku og verið eitt það vinsælasta síðastliðin þrjú ár en yfir 7000 krakkar hafa lært að galdra og framkvæma sjónhverfingar. Námskeiðið verður í Höllinni klukkan 11 næsta sunnudag og stendur það […]

Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi

Dagskrá Goslokahátíðar hófst í gær með tónleikum í Bæjarleikhúsinu. Dagskráin er mjög vegleg í ár, en 40 ár eru liðin frá því að eldgosi lauk á Heimaey. Allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi en úr miklu er að velja. (meira…)

Brú yfir boðaföllinn

Eins og eflaust allir vita er mikið af hæfileikaríku fólki í Vestmannaeyjum. Í myndbandinu hér að neðan er gott dæmi um það. Þar flytur Helga Sóley Aradóttir, 17 ára gömul og búsett í Vestmannaeyjum, Simon og Garfunkel lagið Bridge over troubled water við íslenskan texta Ómars Ragnarssonar. (meira…)

�?að verður hörkuleikur á Hásteinsvelli:

Í leikskrá ÍBV liðsins sem leikur við HB Torshavn í kvöld, er viðtal sem Skapti Örn Ólafsson tók við Allan Mörköre. Eyjafréttir fengu leyfi til að birta þetta skemmtilega viðtal hér á síðunni. Allan Mörköre lék með ÍBV keppnistímabilin 1999 og 2000 við góðan orðstýr. Hann segir að það hafi æxlast þannig að eftir landsleik […]

Nýr rafstrengur lagður til Eyja

Skip til að leggja nýjan rafstrengur milli lands og Eyja liggur nú við bryggju í Eyjum og býður hagstæðs veðurs til lagningarinnar. Stefnt er að því að klára verkið í júlí og tengja, eða spennusetja hann síðsumars eða í haust. Reiknað er með lagning strengsins taki um fjóra daga, haldist veður gott. Nýi sæstrengurinn verður […]

�?tlendingur heima-uppgjör við eldgos

Jóhanna Ýr Jónsdóttir og Sighvatur Jónsson frumsýndu í gær, miðvikdag heimildarmynd sína Útlendingur heima- uppgjör við eldgos. Myndin var sýnd í bæjarleikhúsinu og voru áhorfendabekkirnir þéttskipaðir. Sýningargestir voru sammála um það, að þeim Jóhönnu og Sighvati hafi tekist með eindæmum vel að festa þessar ósögðu sögur á filmu. (meira…)

Verum þátttakendur en ekki áhorfendur

Í kvöld taka strákarnir okkar á móti HB frá Þórshöfn í Færeyjum í 1. umferð Evrópudeildarinnar. Leikurinn hefst klukkan 19:30 á okkar frábæra heimavelli, Hásteinsvelli og eru aðeins 900 miðar í boði. Á sunnudaginn koma svo KR-ingar í heimsókn í bikarnum. Strákarnir í ÍBV, við í knattspyrnuráði og allir þeir sem koma að liðinu, leggja […]

ÍBV tekur á móti HB Tórshavn í kvöld

ÍBV mæti HB Tórshavn frá Færeyjum klukkan 19:30. Undirbúningur fyrir leikinn er á lokastigi en það er margt sem þarf að hafa í huga á leik sem þessum. ÍBV á fyrir höndum erfiðan leik en HB er í efsta sæti færeysku deildarinar með sjö stiga forskot á næsta lið. (meira…)

Gestkvæmt í Eyjum vegna goslokahátíðar

Morgunblaðið fjallar um goslokahátíðina á vef sinum í gær. Myndarleg umfjöllun sem hér er deilt til lesenda eyjafretta: „Það er allt klappað og klárt nema veðrið en við verðum bara að taka því sem að höndum ber,“ segir Kristín Jóhannsdóttir sem sæti á í goslokanefnd en 40 ára stórafmælishátíð goslokanna í Vestmannaeyjum er haldin dagana […]

Yfir eld og glóð

Á tónleikunum Yndislega eyjan mín, fjörtíu árum síðar, – sem Bjarni Ólafur og Guðrún Marý stóðu fyrir í Eldborgarsal Hörpu sl. vetur, var frumflutt lag Þorvaldar Bjarna við verðlaunatexta Hörpu Kolbrúnar Kolbeinsdóttur. Lagið heitir; Yfir eld og glóð. Í viðtali sem sjónvarpið hafði við Kolbrúnu Hörpu eftir tónleikana sagði hún að textinn væri einskonar uppgjör […]

Keila var það heillin

Það var stemmning á Vigtartorgi þegar Emilía Borgþórsdóttir og Karl Jónsson byrjuðu að selja fisk á Örfiskmarkaðnum VE 123 núna klukkan þrjú. Hópur fólks hafði safnast framan við sölubúðina og beið þess að fá nýjan fisk í soðið. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.