Enginn gleðiboðskapur fyrir Vestmannaeyjar

Það þurfti ekki að koma á óvart að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands skyldi ákveða að staðfesta breytingar á lögum um veiðigjald sem Alþingi samþykkti í síðustu viku. Þar gekk forsetinn reyndar á móti straumnum því fyrir helgi fékk hann í hendur undirskriftir 33 þúsund Íslendinga sem kröfðust þess að hann synj­aði lögunum og vísaði […]

�?rír í bann eftir KR leikinn

Þrír leikmenn ÍBV verða í leikbanni í næsta leik ÍBV í Íslandsmótinu, þegar Eyjamenn sækja Þór heim til Akureyrar. Þetta eru þeir Ragnar Pétursson, Aaron Spear, sem báðir fengu að líta rauða spjaldið í bikarleiknum gegn KR og svo Bradley Simmonds, sem hefur fengið fjórar áminningar í leikjum sumarsins. Allir fengu þeir eins leiks bann. […]

Meistaramótið hefst á morgun

Meistaramót Golfklúbbs Vestmannaeyja hefst á morgun, miðvikudag. Keppt er í sjö flokkum í karlaflokki, Meistaraflokki, 1.,2.,3. og 4. flokki, öldungaflokki 55 til 69 ára og í flokki 70 ára og eldri. Einn opinn kvennaflokkur er í mótinu eins og undanfarin ár. Leiknir verða fjórir hringir, nema í öldungaflokki en keppendur þar leika þrjá hringi. (meira…)

Deilt við dómarann

Eftir rúmlega hálftíma í bikarleik ÍBV og KR á sunnudaginn lentu þeir í samstuði Aaron Spear hjá ÍBV og Gunnar Þór Gunnarsson hjá KR. Í kjölfarið gengur Gunnar ógnandi fast upp að Aaron sem ber fyrir sig hendur með flötum lófum og ýtir á móti. Gunnar kastar sér niður eins og hann hefði orðið fyrir […]

Gleymdu að láta vita af breyttri flugleið

Rétt eftir klukkan eitt var Björgunarfélag Vestmannaeyja ræst út, heildarútkall til þess að leita að flugvél milli lands og Eyja. Verið var að undirbúa leit á bátum þegar útkallið var afturkallað. Í ljós kom að flugvél, sem var á leið til Vestmannaeyja frá Reykjavík, hafði gleymt að láta vita af breyttri flugleið en vélin er […]

Miðsala á �?jóðhátíð á svipuðu róli

„Miðasalan er á svipuðu róli og á sama tíma í fyrra, erum búin að selja aðeins fleiri miða,“ segir Dóra Björk Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri ÍBV, í samtali við mbl.is spurð hvernig miðasala á Þjóðhátíð í Eyjum hafi gengið til þessa. (meira…)

Goslokahátíðin fór að mestu leyti vel fram

Um síðustu helgi fór fram hér í Vestmannaeyjum goslokaafmæli þar sem 40 ár eru liðin frá goslokum. Mikill fjöldi gesta var í bænum þessa daga og ýmsar uppákomur fyrir gesti og heimamenn. Óhætt er að segja að hátíðin hafi farið að mestu vel fram og engin alvarleg mál komu á borð lögreglunar. Þó hafði lögreglan […]

Fínasti afréttari á frábærum tónleikum

Fjöldi manns lagði leið sína á Nausthamarsbryggju í gærkvöldi þar sem áhöfnin á Húna II blés til tónleika á hringferð sinni um landið. Fullyrða tónleikahaldarar að um 800 manns hafi verið á bryggjunni þegar mest var og stemmningin var furðulega góð, miðað við að tónleikarnir hafi verið haldnir á mánudegi eftir Goslokahátíð. (meira…)

TG9 hættur í Fylki en ekki hættur í fótbolta

Í gærkvöldi sendu knattspyrnumaðurinn Tryggvi Guðmundsson, eða TG9 eins og hann er oft kallaður, og knattspyrnufélagið Fylkir frá sér fréttatilkynningu þar sem greint var frá því að Tryggvi spili ekki meira með Árbæjarfélaginu í sumar. Tryggvi segist þó ekki vera hættur í fótbolta og mun því væntanlega finna sér nýtt lið þegar félagsskiptaglugginn opnar á […]

Rifjaðu upp tónleika Fjallabræðra og Lúðró

Flestir, ef ekki allir þeir sem sóttu tónleika Fjallabræðra og Lúðrasveitar Vestmannaeyja á föstudagskvöld, eru á einu máli um að tónleikarnir hafi verið stórkostlegir. Ljósmyndari Eyjafrétta var að sjálfsögðu á staðnum, myndaði það sem fyrir augu bar og tók upp nokkur myndbönd sem hægt er að sjá hér að neðan. (meira…)

Hvetjum alla til að taka vel á móti áhöfninni á Húna II

Húni II siglir í höfn í Vestmannaeyjum kl. 16.30 í dag mánudaginn 8. júlí. Fólk er hvatt til að fjölmenna og fagna þeim á Skansinum. Þeir sem hafa tök á að sigla á móti þeim eru hvattir til að gera svo. Áhöfnin á Húna II er er hljómsveit skipuð tónlistarmönnunum Jónasi Sig, Láru Rúnars, Mugison, […]

KR-ingar komnir áfram í Borgunarbikarnum

ÍBV tók á móti KR í Borgunarbikar karla í dag. Aðstæður fyrir knattspyrnu voru ekki þær bestu, en völlurinn var mjög blautur og vindur ágerðist eftir því sem leið á leikinn. Aron Spear fékk að líta rauða spjaldið á 34. mínútu og hafði það mikil áhrif á leikinn. KR komst yfir á 73. mínútu og […]

Húna II seinkar um sólarhring

Áhöfnin á Húna II kemur sólahring síðar en áætlað var til Vestmannaeyja. Upphaflega ætlaði áhöfnin að koma til Eyja í dag, sunnudag en sólarhringsseinkun varð á siglingu skipsins vegna veðurs og verður Húni II og áhöfn bátsins því í Eyjum á morgun, mánudag klukkan 20:00. (meira…)

KR í heimsókn í dag

Stórleikur 8-liða úrslita Borgunarbikarsins fer fram á Hásteinsvelli í dag klukkan 17:00 þegar ÍBV tekur á móti ríkjandi bikarmeisturum og efsta liði Pepsídeildarinnar, KR. Eyjamenn eiga svo sannarlega harma að hefna enda hafði KR betur gegn ÍBV í sömu keppni og á sama velli í fyrra 1:2. Auk þess hafa liðin mæst á Hásteinsvelli í […]

Sögur af Vestmannabraut endurteknar klukkan 16:00

Í hádeginu sögðu þeir Ásmundur Friðriksson, Ragnar Jónsson frá Látrum og Þór Í. Vilhjálmsson frá Burstafelli sögur af æskuslóðum sínum, Vestmannabraut en viðburðurinn fór fram í Baldurskró í Skvísusundi. Fullt var út úr dyrum og komust færri að en vildu og því hefur verið ákveðið að endurtaka viðburðinn klukkan 16 í dag, laugardag (meira…)

Toppslagur í 4. deildinni

Í dag klukkan 15:00 verður toppslagur í A-riðli 4. deildar karla þegar KFS tekur á móti KFG. Hið síðarnefnda lið er á toppi riðilsins með 19 stig eftir sjö leiki en liðið hefur ekki tapað leik, gert eitt jafntefli en unnið sex leiki. Eyjamennirnir í KFS eru hins vegar í öðru sæti með 14 stig, […]

�?urftu að handlanga skjólur neðan frá sjó eða frá brunnum að brunastað

Hafi ein stétt öðrum fremur borið hitann og þungann af björgunar- og hjálparstarfi í gosinu 1973 voru það mennirnir í Slökkviliði Vestmannaeyja. Slökkviliðið stóð þá á sextugu en nú þegar þess er minnst að 40 ár eru frá því gosi lauk styttist í hundrað ára afmæli Slökkviliðsins. Þess verður minnst með myndarlegum hætti goslokahelgina. Margt […]

Húsin og fólkið við Kirkjubæjarbraut í máli og myndum

Kl. 11.00 í dag, laugardag verður myndasýning af íbúum og hús­um Kirkjubæjarbrautar fyrir gos í umsjá Ingu Dóru Þorsteins­dóttur og Gylfa Sigfússonar sem bæði bjuggu að Kirkjubæjarbraut 11, Goðasteini. Þau hafa lagt mikla vinnu í öflun heimilda og söfnun mynda þar sem saga hvers húss er rakin í máli og myndum. (meira…)

Tár, bros og tær snilld

Ríflega 1500 manns fylltu stóra sal íþróttamiðstöðvarinnar í kvöld þegar Lúðrasveit Vestmannaeyja og Fjallabræður sameinuðust í tónleikahaldi. Þetta er ekki í fyrsta og vonandi ekki í síðasta sinn sem þessar sveitir tónlistarfólks halda sameiginlega tónleika en þótt ólíkar séu, þá passa sveitirnar saman eins og flís við rass. Tónleikarnir í kvöld voru með þeim betri […]

Heimaklettsferð fellur niður

Ganga upp Heimaklett sem fyrirhuguð var í hádeginu á morgun, laugardag, fellur niður vegna veðurs. Þess í stað mun Friðbjörn Valtýsson sem ætlaði að leiða gönguna, vera með skemmtilegan fyrirlestur um Heimaklett, klukkan 12.00 í Sagnheimum. Friðbjörn er einn af þeim sem þekkir Heimaklett út og inn og verður því um afar fróðlegan fyrirlestur að […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.