Mæta bandarísku háskólaliði á laugardag

Nú er hlé á Íslandsmótinu í kvennaknattspyrnu enda íslenska landsliðið að spila á lokamóti EM í Svíþjóð. Leikmenn ÍBV slá hins vegar ekkert slöku við og æfa stíft fyrir lokaátökin í Íslandsmótinu en á laugardaginn tekur liðið á móti bandarísku háskólaliði en leikur liðanna hefst klukkan 15:15. Sparisjóður Vestmannaeyja og Vélaverkstæðið Þór bjóða Eyjamönnum og […]

Vinningshafar í bingóleik Goslokahátíðarinnar

Frábær þátttaka var í goslokabingói 2013 en það bárust tæplega 700 bingóspjöld að lokinni goslokahátíð. Goslokanefnd þakkar fyrir frábærar viðtökur. Róbert Elí Ingólfsson dró úr bingóspjöldunum og vinningshafar eru eftirfarandi: (meira…)

Dagskrá �?jóðhátíðar 2013

Nú styttist óðfluga í Þjóðhátíð, en átján dagar eru í hátíðina. Dagskráin í ár er mjög fjölbreytt og munu allir finna eitthvað við sitt hæfi. Margir listamenn hafa boðað komu sína á hátíðina í ár m.a Stuðmenn, Helgi Björns, Retro Stefson og Ásgeir Trausti. Afhending miða á hátíðina hefst nú í vikunni en salan hefur […]

Góður sigur á Akureyri

ÍBV sótti þrjú dýrmæt stig til Akureyrar í dag. Það er heldur ströng dagskrá hjá ÍBV þessa dagana en leikmennirnir eru nýkomnir heim frá Færeyjum og halda af stað til Serbíu á þriðjudaginn, þar sem þeir spila á móti Red Star í Evrópukeppninni. Þeir Aron Spear, Bradley Simmonds og Ragnar Pétursson tóku allir út leikbann […]

María Davis Sumarstúlka Vestmannaeyja

Sumarstúlka Vestmannaeyja árið 2013 var krýnd nú fyrir stundu. Fjórtán glæsilegar stúlkur tóku þátt í keppninni í ár en að lokum var María Davis krýnd Sumarstúlkan og var hún vel að titlinum komin. (meira…)

Gott jafntefli hjá KFS í dag

KFS gerði í dag jafntefli gegn Álftanesi á útivelli 1:1. KFS komst yfir með marki Guðmundar Geirs Jónssonar á 38. mínútu og var staðan 0:1 í hálfleik. Heimamenn jöfnuðu hins vegar metin í síðari hálfleik og undir lok leiksins fékk enski framherjinn James Frayne að líta rauða spjaldið. Frayne er á láni hjá KFS frá […]

Sumarstúlka Vestmannaeyja krýnd í kvöld

Í kvöld fer fram sumarstúlkukeppni Vestmannaeyja. Í ár eru það fjórtán stúlkur sem taka þátt í keppninni, sem er nú haldin í 27. skiptið. Stelpurnar koma fram í tískysýningum frá Sölku og 66°norður. Kynnir kvöldsins er Haraldur Ari Karlsson, hljómsveitinn Skítamórall, Elías Fannar og Sunna Guðlaugs munu skemmta á keppninni, en Skítamórall leikur fyrir dansi […]

Egill Einarsson spilar á Húkkaraballinu

Egill Einarsson betur þekktur sem Gillz mun troða upp á Húkkaraballinu. Ballið verður haldið utandyra í ár, en undanfarinn ár hefur það verið haldið í Týsheimilinu. Egill sagði í samtalið við Fréttablaðið vera mjög spenntur að spila í Eyjum en hann á mikið að skyldfólki í Eyjum. (meira…)

Hægt að sækja þjóðhátíðarmiðana í næstu viku

Þeir viðskiptavinir Íslandsbanka sem nýttu sér tilboð í Vildarþjónustu bankans við kaup á miðum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum geta sótt þá í útibúum Íslandsbanka dagana 15. til 24. júlí. Þetta á einnig við um þá sem keyptu miða af www.dalurinn.is og völdu að sækja hann í útibúum Íslandsbanka. Framvísa verður kvittun af www.dalurinn.is og skilríkjum. […]

Eyjamenn veðurtepptir í Færeyjum

Eyjamenn eru veðurtepptir í Færeyjum. ÍBV lagði HB að velli í Þórshöfn í gær og á sunnudaginn leika Eyjamenn gegn Þór á Akureyri. Næsta fimmtudag er svo komið að Rauðu Stjörnunni og þannig verður það næstu vikur hjá ÍBV, tveir leikir í viku. (meira…)

Margrét Lára losnaði við fortíðardrauga með markinu í gær

Margrét Lára Viðarsdóttir tryggði Íslandi eitt stig gegn Norðmönnum á EM í gær. Markið hafði gífurlega mikla þýðingu fyrir íslenska liðið, sem náði þar með í sitt fyrsta stig á stórmóti. En markið hafði ekki síður mikla þýðingu fyrir Margréti sjálfa sem losnaði við fortíðardraug frá síðasta stórmóti, þegar hún klikkaði á vítaspyrnu í gegn […]

Tækifæri fyrir okkur alla að sanna okkur á hærra leveli

Eiður Aron Sigurbjörnsson, fyrirliði ÍBV, segir það léttir að vera komnir áfram í Evrópudeildinni en liðið vann 1-0 sigur á HB í kvöld. Eiður segir liðið stefna enn hærra en leikurinn var ekkert sem kom honum á óvart. „Þeir komu mér ekkert á óvart, þegar þeir fengu boltann héldu þeir honum vel aftast og við […]

Sungið, trallað, hoppað, öskrað og tárast

Eins og gefur að skilja eru Eyjamenn í sjöunda himni með að ÍBV skuli vera komið í 2. umferð í Evrópudeildinni en liðið hefur verið slegið út í 1. umferðinni tvö ár í röð. Hópur stuðningsmanna ÍBV fylgdi liðinu til Færeyja og var í sannkallaðri rússíbanareið. Guðjón Örn Sigtryggsson setti inn kveðju frá hópnum á […]

Sperdir oyggjamenn vitja hósdagin

Seinastu dystirnar hevur ikki gingið eftir vild hjá gestunum og prikkurin yvir i-ið var mánakvøldið tá KR, við mikið buldur og brak, sendi ÍBV úr steypakappingini. Fleiri reyð kort og nógv rok stóðst av dystinum og lagið er helst ikki so gott. Dysturin hósdagin verður tí kærkomin møguleiki at vísa, at javnleikurin í undanfarnu viku […]

Allt brjálað

Það sem efst er á baugi hjá íslensku þjóðinni er oft skemmtilegt. Haraldur Halldórsson setti þennan facebook status á síðuna hjá sér sem segir nokkuð um stemmninguna á Ísland í dag: Kona hrækir á lögguna og er handtekin. Allt brjálað. Óli forseti skrifar undir lög. Allt brjálað. Amerískur hakkari fær ekki að búa á Íslandi. […]

�?fingin tókst mjög vel

Í vikunni fóru starfsmenn Herjólfs á æfingu um hvernig rýmingu skips­ins skuli háttað ef upp kemur neyð­arástand. 118 „farþegar“ voru um borð, sem aðstoðuðu starfsmennina við að leysa verkefnið. Fulltrúar Sigl­ingastofnunar og Slysavarna­skólans voru einnig á staðnum til að fara í gegnum æfinguna ásamt starfsmönnum. Eyjafréttir höfðu samband við Gunnlaug Grettisson, rekstrarstjóra Herj­ólfs, en hann […]

Draumur í mörg ár að fara út og hjálpa öðrum

Hafdís Guðnadóttir hefur undan­farnar vikur davlist í Kambódíu í sjálfboðastarfi fyrir samtökin Greenway. Eftir hjálpar­starfið lagði hún upp í bakpokaferðalag með tveimur samnemendum sínum til Balí, Kína og endar svo í enskuskóla í Bandaríkjunum. Hafdís, sem er tuttugu og þriggja ára, er búin með þrjú ár í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands. Hún er dóttir Fanneyjar […]

Húkkaraball haldið úti

„Við höfum haldið húkkaraballið inni í áratugi, en okkur langar að prófa eitthvað nýtt í ár,“ segir Birgir Guðjónsson, formaður þjóðhátíðarnefndar í Vestmannaeyjum. Húkkaraballið svonefnda er jafnan haldið fimmtudagskvöldið áður en hin eiginlega þjóðhátíð hefst. Í ár hyggjast Eyjamenn bregða út af vananum og halda ballið undir berum himni í sundinu milli austur- og vesturhúss […]

Jón Gísli Ström kallaður úr láni

ÍBV hefur kallað Jón Gísla Ström til baka úr láni, en hann hefur leikið vel með ÍR á tímabilinu. Hann hefur skorað sjö mörk í tíu leikjum, ljóst er að ÍBV hefur góð not fyrir hann ef hann heldur áfram uppteknum hætti, en lítil markaskorun hefur verið aðal vandamál ÍBV í síðustu leikjum. (meira…)

Bát hvolfdi við lagningu strengsins

Lagning nýs rafstrengs til Vestmannaeyja er nú hafin. Að sögn Ingólfs Eyfells, verkefnastjóra hjá Landsneti hefur verkið reynst erfiðara en búist var við. Erfitt reyndist að koma strengnum á sjó út frá Landeyjum vegna hliðarstrauma og brims. Lagning strengsins yfir sjóinn hófst á hádegi í gær og tók næstum sólarhring að koma strengnum út á […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.