Gufan komin í loftið

Einn af ómissandi undirbúningsþáttum þjóðhátíðarinnar undanfarin ár, hefur verið þjóðhátíðarútvarp Eyjamanna, Gufan fm 104,7. Stöðin fer formlega í loftið næstkomandi fimmtudag en prufuútsendingar eru hafnar og nást útsendingar stöðvarinnar m.a. einnig í Landeyjahöfn. Útsending stöðvarinnar miðast að því að hita upp fyrir þjóðhátíð með tónlist, fréttum og spjalli um allt sem við kemur hátíðinni, eins […]

Tap á Skaganum

ÍBV tapaði gegn ÍA 2-1. Eyjamenn voru fyrir leik í 5. sæti deildarinnar með átján stig en Skagamenn á botni deildarinnar með aðeins fjögur stig. Leikurinn fór heldur rólega af stað og voru Eyjamenn meira með boltann þar sem af var. (meira…)

Árni tekur þjóðsönginn á þjóðhátíð

Það urðu margir svekktir þegar þeir heyrðu af því að Árni Johnsen myndi ekki stýra brekkusöng þjóðhátíðarinnar eins og hann hefur gert nánast sleitulaust í á fjórða áratug. Árni mun hins vegar koma fram á þjóðhátíð en hann mun stýra þjóðsöngnum í lok brekkusöngsins eins og hann hefur gert undanfarin ár. (meira…)

Dregið í 3. umferð Evrópudeildarinar

Rétt fyrir hádegi var dregið í 3. umferð Evrópudeildarinnar. Þrjú íslensk lið voru í pottinum, ÍBV,KR og Breiðablik. Ef ÍBV leggur Rauðu Stjörununa af velli næstkomandi fimmtudag eru þeir á leið til Úkraínu eða Moldavíu. (meira…)

Segir 5692 milljónir fluttar í burtu vegna skatta á sjávaútveginn

„Það er ekki víst að allir geri sér grein fyrir því hversu mikil búbót makríllinn er fyrir okkur Eyjamenn og þjóðarbúið í heild. Það er heldur ekki víst að fólk sé meðvitað um þá miklu verðmætasköpun sem á sér stað hér í Eyjum og hversu mikið við leggjum til ríkisins,“ segir Elliði Vignisson bæjarstjóri á […]

Göngum beinir í baki frá þessum leik

„Það er alveg á hreinu að við göngum beinir í baki frá þessum leik. Við vorum að mæta mjög sterku liði, með 33 þúsund áhorfendur á þeirra bandi, í miklum hita en við náðum að æsa þá upp og gera þá hrædda,“ sagði Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV í samtali við Eyjafréttir rétt í þessu. ÍBV […]

Tveggja marka tap í Belgrad

Rauða Stjarnan lagði ÍBV velli 2-0 í kvöld í Belgrad fyrir framan 35 þúsund stuðningsmenn serbneska liðsins. Ef undan eru skildar fyrstu fimmtán mínúturnar, þá áttu Eyjamenn í fullu tréi við leikmenn Rauðu Stjörnunnar, þótt heimaliðið hefði eðlilega verið meira með boltann. Rauða Stjarnan byrjaði mun betur og komst fljótlega yfir með marki frá Nejc […]

Landsliðsmarkverðir með námskeið í Eyjum

Landsliðsmarkmennirnir Daníel Freyr Andrésson og Dröfn Haraldsdóttir munu halda æfingu fyrir handknattleiksmarkmenn yngri flokka ÍBV, laugardaginn 20. júlí klukkan 15:00 upp í íþróttamiðstöðinni. Daníel Freyr sem er einn allra besti markvörður Íslands í dag, var valinn besti markvörður íslandsmótsins á síðastliðnu tímabili. Það er því mikill fengur að fá þennan hæfileikaríka leikmann til að miðla […]

�?fðu í gær á keppnisvellinum

ÍBV mætir Rauðu Stjörnunni frá Serbíu í kvöld kl. 18:30 að íslenskum tíma. Búast má við hörkuleik en fyrir leikinn eru Serbarnir taldir sigurstranglegri. Það er ljóst að strákarnir eiga eftir að mæta vel stemmdir til leiks en góð úrslit úti opna marga möguleika fyrir ÍBV. Seinni leikur liðanna fer fram á Hásteinsvelli fimmtudaginn 25. […]

Komnar í undanúrslit í bikar

Stelpurnar í 2. flokki kvenna sigruðu lið FH í 8.liða úrslitum bikarsins í gær 2-1. Guðrún Bára Magnúsdóttir kom ÍBV í 2-0. Eyjastúlkur hefðu hæglega getað bætt við fleiri mörkum en markvörður FH sá til þess að svo væri ekki. Undir lok fyrir hálfleiks náðu FH stúlkur að minnka muninn og staðan því í hálfleik […]

Saga og súpa í Sagnheimum

Í þessum mánuði eru 386 ár liðin frá því 242 Vestmannaeyingar voru fluttir nauðugir til Alsír og seldir í þrældóm. Af því tilefni býður Sögusetur 1627 til dagskrár í Sagnheimum, byggðasafni. Dagskrá: Gunnhildur Hrólfsdóttir sagnfræðingur flytur erindi um bók sína Ránið, sem er skáldsaga fyrir börn og byggist á Tyrkjaráninu 1627. (meira…)

Fyrsta skrefið í að tryggja öryggi á flutningi á raforku

Á föstudaginn lauk lagningu sæ­strengs frá landi til Vestmanna­eyja sem er fyrsti áfangi í að endurnýja flutningskerfi raforku til Vestmanna­eyja og auka flutn­ingsgetuna. Endanlegar áætlanir um framhaldið liggja ekki fyrir, en það gæti tekið nokkur ár að endurnýja kerfið og í heild gæti kostnaður verið nokkrir milljarðar króna. Áætlað er að sæstrengur­inn sem lagður var […]

Skortur á heimilislæknum í Eyjum

Kæru Vestmannaeyingar Í ljósi skorts á heimilislæknum á Íslandi hefur enn sem komið er ekki tekist að manna stöðu Einars Jónssonar heimilislæknis sem mun hætta störfum 1. September nk. Við munum reyna að vinna áfram í því að fá heimilislækni til starfa. (meira…)

Brimnes og Dans á rósum á SPOT í Kópavogi

Á laugardaginn næstkomandi verður stórdansleikur á skemmtistaðnum SPOT í Kópavogi þar sem Eyjasveitirnar Brimnes og Dans á Rósum munu halda uppi stuðinu. Um er að ræða upphitun fyrir þjóðhátíð en sveitirnar koma báðar fram á hátíðinni og verða á Tjarnarsviðinu eins og undanfarin ár og er ætlunin að vera með sömu stemmningu á SPOT og […]

Gefur ekki rétta mynd af Serbíu

ÍBV leikur gegn Rauðu Stjörnunni á morgun, fimmtudag en leikurinn fer fram á heimavelli serbneska liðsins í Belgrad. Stuðningsmenn Rauðu Stjörnunnar voru duglegir að setja inn myndbönd á facebooksíður sem tengdust ÍBV en myndböndin sýndu stuðningsmenn liðsins haga sér heldur ófriðlega í stuðningi sínum við liðið. Oftar en ekki fylgdu myndböndunum skilaboðin „Welcome to hell“ […]

Hundaskítur á gangstéttum bæjarins

Lesandi Eyjafrétta kom við á ritstjórn í morgun og var óhress með umgengni hundaeigenda. Sagðist hann hafa gengið fram á hundaskít fyrir framan heimili sitt í morgun en hann gengur mikið um bæinn og finnst mikið um hundaskít á gangstéttum bæjarins. Flestir hirða upp eftir sína hunda en ekki þarf nema einn til að skemma […]

Ásmundur í drullukasti

Ásmundur Friðriksson, nýkjörinn Alþingismaður lenti heldur betur í drullukasti á dögunum. Nei það var ekki á sumarþingi Alþingis eins og ætla mætti, heldur fékk hann drulluna yfir sig í orðsins fyllstu merkingu. Ásmundur tekur þátt í skemmtilegu verkefni sem ADHD samtökin, Barnaheill – Save the Children á Íslandi, MND félagið á Íslandi og Þroskahjálp standa […]

Meira rafmagn um nýjan streng eftir 2-3 ár

Þrettán kílómetra rafstrengur hefur verið lagður til Vestmannaeyja. Verkinu var flýtt vegna skemmda sem urðu á eldri streng í haust. Tveir eldri sæstrengir liggja milli lands og Eyja, annar frá 1962, hinn frá 1978. Fyrir sex árum hóf Landsnet undirbúning að endurnýjun þeirra. Þegar bilun varð í öðrum strengnum síðastliðið haust staðfestu danskir sérfræðingar að […]

Vilja ekki Gilz á Húkkaraball

Bréf stílað á framkvæmdastjóra ÍBV-íþróttafélags hefur gengið manna á milli á netinu en þar er því mótmælt að Egill Einarsson, eða Gilznegger, skemmti á Húkkaraballinu og er félagið hvatt til að leita annað. Bréfritarar týna eitt og annað til, máli sínu til stuðnings, aðallega það sem Egill skrifaði í bók sína, Mannasiðir Gillz. Um bréfið […]

�?ska eftir aðstoð almennings í baráttunni við fíkniefni

Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir aðstoð almennings í baráttunni við fíkniefni, sérstaklega nú í aðdraganda þjóðhátíðar. „Nú fer að nálgast Þjóðhátíð og því miður er það svo að fylgifiskur hátíðarinnar er aukin neysla fíkniefniefna. Lögreglan óskar eftir aðstoð almennings við að berjast við þennan vágest og hvetur fólk til að tilkynna til lögreglu ef það […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.