Týndust í þoku og mótorinn bilaði

Björgunarfélag Vestmannaeyja var kallað út annað sinn á stuttum tíma undir miðnætti í gær. Slöngubátur fimm manns hafði bilað vestan við Heimaey og hafði fólkið samband við Landhelgisgæsluna, sem aðstoðaði við að finna bátinn. Slöngubátur á vegum Björgunarfélagsins fann fólkið og dró bát þeirra í land. (meira…)

Alvarlega slasaður eftir fall í Brandi

Karlmaður á sextugsaldri er alvarlega slasaður eftir fall í Brandi, einni af úteyjum Vestmannaeyja. Maðurinn var á leið niður úr eynni þegar hann missti fótanna og féll niður, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum. Maðurinn var fluttur í land með gúmmíbáti Ribsafari, þar sem björgunarbáturinn Þór er á þurru landi. Flytja á manninn […]

Evrópudraumurinn úti

ÍBV gerði markalaust jafntefli í kvöld gegn Rauðu stjörnunni og eru Eyjamenn því úr leik. Serbarnir unnu samanlagt 2-0. ÍBV voru manni fleiri síðasta korterið og klúðruðu vítaspyrnu. Stemmninginn á leiknum var mjög góð og eiga áhorfendur hrós skilið fyrir að gera góðan leik enn betri. Leikmenn ÍBV geta líka borið höfuðið hátt enda stóðu […]

Hóflega bjartsýnir

ÍBV leikur í Evrópukeppnini í kvöld eins og flestir vita. Eyjafréttir höfðu samband við Gunnar Már Guðmundsson, leikmann ÍBV og var hann ásamt öðrum leikmönnum klár í slaginn gegn Rauðu Stjörnunni. „Við erum vel stemmdir fyrir leikinn. Það er ákveðin brekka framundan að þurfa að vinna upp tveggja marka forskot þeirra, við mætum hóflega bjartsýnir […]

Ungir og efnilegir krakkar skrifuðu undir

Í gær skrifuðu þessi fimmtán ungmenni undir samning við ÍBV og Akademíuna. Aldrei hafa fleirri skrifað undir í einu og því var áfanginn mjög merkur. Þeir krakkar sem hafa verið í Akademíuni hafa allir verið viðlogandi yngri landsliðin og því má búast við að í þessum hóp séu framtíðar landsliðsfólk. (meira…)

Mæta Rauðu Stjörnunni í kvöld

ÍBV tekur á mót Rauðu Stjörnunni í kvöld kl 18:30. Klukkutíma fyrir leik verður hægt að gæða sér á hamborgurum og gosi gegn vægu gjaldi, einnig verður selt inn í VIP sal þar sem léttar veitingar verða í boði fyrir leik sem og í hálfleik. Serbarnir sigruðu úti 2-0 og eru í ágætri stöðu. Leikmenn […]

Vonast til að fá nokkra daga í ágúst

Bjargveiðimenn eru ekki ánægðir með tillögu umhverfis- og skipulagsráðs, og í framhaldi af því ákvörðun bæjarstjórnar, að leyfa veiði í fimm daga í þessum mánuði. Bæði finnst þeim dagarnir of fáir og tímasetningin röng en tímabilið hófst 19. júlí og lauk í gær, 23. júlí. Og það verður að viðurkennast að þeir hafa nokkuð til […]

Skrifað undir fyrir Akademíuna í kvöld

Í kvöld klukkan 20:00 munu ungir íþróttamenn skrifa undir samning við íþróttaakademíu ÍBV og FÍV. Þau börn sem ætla að stunda nám við Akademíuna á næstu önn, eru beðnir um að mæta á þessum tíma í fundarsal Íþróttamiðstöðvarinnar ásamt foreldrum sínum. (meira…)

�?g skal vinna í Dalnum

Þjóðhátíðin er handan við hornið og kominn tími á að láta frá mér þetta bréf sem ég ákvað að skrifa fyrir um ári síðan. Barningur um stæði fyrir hústjöldin í Herjólfsdal er eitt af því sem mér hefur alltaf fundist frekar leiðinlegur partur undirbúnings fyrir Þjóðhátíðina. Helsta ástæða þess er kannski sú að frá því […]

Líklegt að boðið verði upp á knattspyrnu á þjóðhátíð

Allt stefnir í að ÍBV taki á móti FH í Íslandsmótinu um verslunarmannahelgina. Fótbolti var áður fyrr fastur liður í hátíðahöldum þjóðhátíðarinnar en hefur ekki verið undanfarna áratugi. Ef af verður, er líklegt að leikurinn yrði annað hvort á föstudegi eða laugardegi. FH-ingar tryggðu sér sæti í 3. umferð Meistaradeildarinnar í gær og ef ÍBV […]

Hásteinsvöllur verður klár

Hásteinsvöllur hefur oft litið betur út en óhagstætt veður að undanförnu hefur haft mikil áhirf á völlinn. Á morgun leikur karlalið ÍBV gegn Rauðu Stjörnunni á vellinum en miklar framkvæmdir hafa staðið yfir síðustu daga til að gera völlinn leikfæran. Blaðamaður Eyjafrétta hitti á þá Gísla Matthías Sigmarsson, vallarstjóra og Örlyg Helga Grímsson sem voru […]

Sigur hjá KFS í kvöld

KFS lagði Árborg að velli í kvöld en liðin áttust við í Eyjum. Eyjamenn voru mun betri í leiknum, sérstaklega í fyrri hálfleik en Einar Kristinn Kárason og Friðrik Sigurðsson sáu til þess að Eyjamenn voru 2:0 yfir í hálfleik. Síðari hálfleikur var ekki alveg eins vel leikinn af hálfu KFS en sigur heimamanna var […]

Lundaprins en lítil veiði

Fimm daga lundaveiði lýkur í Vestmannaeyjum í kvöld. Fyrstu veiðarnar eftir tveggja ára bann skiluðu litlu. Veiðimenn kenna aðstæðum um og segja nóg af fugli. Einn veiðimanna fangaði sérstakt afbrigði af lunda, svokallaðan lundaprins. (meira…)

Sól í dag

Þegar þessi orð eru rituð er sól í Eyjum. Það þykir fréttnæmt enda sumarið verið heldur þungbúið og síðustu daga hefur verið þykk þoka yfir eyjunum. Nú loksins virðist sólin ætla að hafa betur, Eyjamönnum til mikillar gleði. (meira…)

Lítur út fyrir gott veður á þjóðhátíð

Það verður sól og blíða á þjóðhátíð ef marka má veðurspána á vefsíðunni myweather2.com. Þar er að finna langtímaspá fyrir verslunarmannahelgina og samkvæmt henni verður sól föstudag og laugardag þjóðhátíðarinnar en gæti rignt örlítið á sunnudeginum, svona fyrir gróðurinn. (meira…)

Lögðu hald á 100 gr. af maríjúana

Eins og fram kom hér á Eyjafréttum lagði lögreglan í Vestmannaeyjum hald á um 100 gr. af maríjúana. Efnin fundust í bifreið manns á fimmtugsaldri en efnin voru ætluð til sölu. Sem fyrr er mikill viðbúnaður hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum þegar fíkniefni eru annars vegar, sérstaklega nú í aðdraganda þjóðhátíðar. Lögreglan óskar eftir liðsinni almennings […]

Skemmtanahald helgarinnar fór fram með ágætum

Það var í ýmsu að snúast hjá lögreglu í vikunni sem leið m.a. tvö fíkniefnamál, ölvunarakstur og akstur undir áhrifum fíkniefna. Skemmtanahald helgarinnar fór fram með ágætum en eitthvað var þó um að aðstoða þyrfti fólk sökum ölvunarástands þess. (meira…)

Forsala hafin á leik ÍBV gegn Rauðu Stjörnunni

Forsalan hófst í dag á leik ÍBV gegn Rauðu Stjörnunni sem fer fram fimmtudaginn 25. júlí. Hægt verður að nálgast miða á leikinn í Axel Ó, Tvistinum og Skýlinu. Miðaverð er 2500 kr. í nýju stúkuna og 2000 kr í gömlu stúkuna. Herjólfur hefur breytt brottfaratíma síðustu ferðar sinnar á fimmtudaginn í tengslum við leikinn. […]

Bráðefnileg söngkona

Birta Birgisdóttir er þrettán ára bráðefnileg söngkona. Hún hefur nú gefið út sitt fyrsta myndband þar sem hún syngur lagið When I was your man með Bruno Mars. Birta hefur sungið frá því hún var þriggja ára en þá söng hún á sinni fyrstu þjóðhátíð. Hún hefur m.a sungið á jólatónleikum, inn á plötu og […]

Serbi segir að markið hefði átt að standa

Halldór B. Halldórsson, kvikmyndagerðarmaður fékk skilaboð við eitt af myndböndum sínum á Youtube.com. Þar var serbneskur aðdáandi Rauðu Stjörnunnar en sá segir að ÍBV hefði átt að jafna metin í leiknum í Belgrad. „Okkar heimski markvörður gerði mistöku og þetta hefði átt að vera mark hjá ÍBV,“ segir Theamar Qaliria í skilaboðakerfi við eitt myndband […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.