Pæjumótið hefst á morgun

Pæjumót TM og ÍBV hefst á morgun, fimmtudag en þátttakendur streyma nú til Vestmannaeyja. Mótið er fyrir leikmenn í 5. flokki kvenna og eins og fram kom í Eyjafréttum í síðustu viku, þá er mótið í ár talsvert stærra en í fyrra. Einar Friðþjófsson, mótsstjóri sagði að í ár verði liðin 75 en voru 60 […]

Mæta Breiðabliki á heimavelli

Í hádeginu í dag var dregið í 8-liða úrslit Borgunarbikars kvenna í knattspyrnu. ÍBV mætir Breiðabliki en þessi sömu lið áttust við í sömu keppni í fyrra og sá leikur var meira en lítið eftirminnilegur. Á sama tíma fór fram setning Shellmótsins með tilheyrandi listflugi og flugeldasýningu, sem hafði vissulega áhrif á leikinn. Þá var […]

�?trúlega slæm umgengni

Aðeins hefur verið fjallað um umgengni nokkurra óvandaðra einstaklinga í Vestmannaeyjum undanfarið en nú sem aldrei fyrr. Starfsmenn Áhaldahúss keyrðu fram á bílhræ sem búið var að skilja eftir á miðjum veginum að Urðarvita, austur á Nýja hrauni. „Er nema von að það vakni hjá manni spurningar, hvort sumt fólk sé ekki í lagi?“ spyr […]

Rontok di Kandang Berkat Own Goal Aubameyang, Arsenal Aman?

Arsenal di tumbangkan oleh Burnley di Emirates Stadium, rumah mereka sendiri di dalam laga lanjutan Liga Inggris. Ada begitu banyak kelemahan – kelemahan yang tampil sangat tidak rupawan mengenai penampilan bagi kalahnya pasukan Senapan London ini. Pertandingan Arsenal Melawan Burnley di Kandang Arsenal pada hari Senin 14 Desember2020 dini hari tadi, pada minggu ke – […]

Fjórar Eyjastelpur í U-16

Eyjastelpurnar Ásta Björt Júlíusdóttir, Sandra Erlingsdóttir, Sirrý Rúnarsdóttir og Þóra Guðný Arnardóttir hafa verið valdar í íslenska landsliðið í handbolta skipað leikmönnum 16 ára og yngri. Alls voru valdir 31 leikmaður en æfingarnar fara fram í Vestmannaeyjum dagana 19. til 21. júlí. Þjálfarar liðsins eru þeir Halldór Stefán Haraldsson og Jón Gunnlaugur Viggósson, sem á […]

Kári Steinn skráður til leiks

Vestmannaeyjahlaupið verður haldið í þriðja sinn í ár en í þetta sinn fer hlaupið fram 6. júlí en ekki í haust, eins og í hin tvö skiptin. Besti hlaupari landsins, Kári Steinn Karlsson hefur ávallt tekið þátt í hlaupinu og er engin undantekning á því í ár því Kári Steinn er búinn að skrá sig […]

Bjartmar með Goslokalagið 2013

Bjartmar Guðlaugsson semur Goslokalagið í ár en lagið heitir Leiðin heim og textann á Bjartmar. Hefð er komin fyrir Goslokalagi ár hvert en í fyrra átti hljómsveitin Brimnes Goslokalagið. Bjartmar bjó um árabil í Vestmannaeyjum og á hér stóran hóp aðdáenda. Hægt er að hlusta á lagið hér að neðan og rýna í texta lagsins. […]

Sara Björk hvetur ungar knattspyrnustelpur áfram!

Pæjumót TM í Vestmannaeyjum verður haldið dagana 12.- 15. júní. Pæjumót TM í Eyjum og á Siglufirði eru haldin árlega og eru fyrir knattspyrnustelpur í 5.6.7. og 8. flokki. „Pæjumótin eru fjörug og skemmtileg og eru hvatning fyrir ungar knattspyrnustelpur,“ segir Sara Björk Gunnarsdóttir fyrrum fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu. (meira…)

�?jóðarsinfónía �?kraínu spilar lag Árna Johnsen

Árni Johnsen er á förum til Kiev í Úkraínu síðar í vikunni en þar mun Þjóðarsinfóníuhljómsveit Úkraínu, sem er ein helsta sinfóníuhljómsveit landsins og talin ein fremsta sinfóníuhljómsveit í heimi, hljóðrita Sólarsvítuna eftir Árna. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. (meira…)

Opinn fundur Hafró um komandi fiskveiðiár

Fimmtudaginn 13. júní, klukkan 20:00 heldur Hafrannsóknastofnun opinn fund um fiskveiðiráðgjöf fyrir komandi fiskveiðiár. Fundurinn er haldinn í Akóges en frá stofnuninni mæta Jóhann Sigurjónsson, forstjóri, Björn Ævar Steinarsson og Þorsteinn Sigurðsson. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá stofnuninni. (meira…)

Fluttu laumufarþega til Reykjavíkur

Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu og engin alvarleg mál sem upp komu. Skemmtanahald helgarinnar fór fram með ágætum, þó þurfti lögreglan að aðstoða nokkra einstaklinga til síns heima þar sem þeir voru ógöngufærir sökum ölvunar. Þá var eitthvað um að kvartað væri yfir hávaða frá heimahúsum. (meira…)

Fundur um breytingar á sjávarútvegsstefnu ESB

Fimmtudaginn 13. júní, kl. 12:00 verður haldinn fundur um Evrópustofa halda opinn fund á Hótel Vestmannaeyjar um breytta og bætta sjávarútvegsstefnu ESB og kynna helstu efnisatriði hennar. Ole Poulsen, sérfræðingur í sjávarútvegsmálum ESB mun sitja fundinn en hann er einn helsti sérfræðingur Danmerkur í sjávarútvegsmálum en Danmörk er stærsta fiskveiðiþjóð Evrópusambandsins. Þetta kemur fram í […]

Vallarstjórinn þriðji í dag

Örlygur Helgi Grímsson, kylfingur úr Golfklúbbi Vestmannaeyja hafnaði í þriðja sæti í Securitas mótinu sem fór fram í Eyjum um helgina. Mótið er annað mótið í Eimskipsmótaröðinni en vallarstjórinn Örlygur spilaði feikilega vel, fór hringina þrjá á -2, 1 og 2, samtals 1 sem dugði í þriðja sæti en því sæti deildi hann með Ragnir […]

ÍBV komið áfram í 8-liða úrslit

ÍBV lagði 1. deildarlið Hött frá Egilsstöðum að velli í dag þegar liðin áttust við á Hásteinsvelli. Lokatölur urðu 4:1 en aðstæður í Eyjum voru erfiðar, rok sem stóð beint á annað markið, rigning og völlurinn rennandi blautur. Þrátt fyrir það náðu leikmenn beggja liða að sýna ágætis tilþrif og stóð 1. deildarliðið lengi vel […]

Mawejje tryggði �?ganda sigur

Tonny Mawejje leikmaður ÍBV tryggði Úganda sigur gegn Líberíu þegar þjóðirnar áttust við í undankeppni HM í knattspyrnu í Kampala í Úganda í dag. Mawejje skoraði eina mark leiksins á 4. mínútu leiksins. Úgandamenn eru jafnir Senegölum í efsta sæti riðilsins en liðin hafa 5 stig. Líbería er með 4 og Angóla 3. (meira…)

Stelpurnar taka á móti Hetti

Kvennalið ÍBV tekur í dag á móti 1. deildarliði Hetti frá Egilsstöðum í 16-liða úrslitum Borgunarbikarsins. Leikurinn fer fram á Hásteinsvelli og hefst klukkan 14:00 en gengi ÍBV í síðustu leikjum hefur verið mjög gott og er liðið í þriðja sæti Pepsídeildarinnar. Höttur hefur hins vegar leikið tvo leiki í A-riðli 1. deildar, gegn nágrönnum […]

KFS efstir í A-riðli

Hjalti Kristjánsson stýrði sínum mönnum upp á topp A-riðils í gær með sigri á Stokkseyri. Leikurinn fór fram á Helgafellsvelli, í svarta þoku þannig að þeir sem sátu í bílum sínum, eins og vanalegt er á þessu velli, sáu varla marka á milli. Lokatölur urðu 3:0 en Eyjamenn skoruðu tvö mörk í viðbót sem voru […]

Fær ekki afnot af sal Týsheimilisins

Á fundi Fjölskyldu- og tómstundaráð í vikunni, lá fyrir erindi frá Fimleikafélaginu Rán, um afnot af sal í Týsheimilinu fyrir æfingar iðkenda sinna. Ráðið hafnaði erindinu þar sem þær kröfur sem Fimleikafélagið Rán setur auka rekstrarkostnað Vestmannaeyjabæjar, umfram það sem fjárhagsáætlun 2013 leyfir. Að auki mun beiðni Fimleikafélagsins Ránar hamla öðrum aðilum notkun á Týsheimilinu. […]

Selur húsið í Vestmannaeyjum

„Við erum að selja húsið okkar í Vestmannaeyjum. Tilfinningarnar sem bærast innra með mér eru blendnar. Léttir að þetta hafi gengið hratt og vel fyrir sig,“ segir Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra á facebooksíðu sinni í dag en hún hyggst að sögn setjast að í Hafnarfirði. (meira…)

Fjallabræður og Lúðrasveit Vestmannaeyja með stórtónleika á Goslokum

Karlakórinn Fjallabræður og Lúðrasveit Vestmannaeyja blása til sannkallaðra stórtónleika á Goslokum í byrjun júlí. Tónleikarnir verða haldnir í stóra sal Íþróttamiðstöðvarinnar en í vetur voru haldnir álíka tónleikar í íþróttahúsinu við Torfnes á Ísafirði, auk þess sem kórinn og sveitin troðfylltu Háskólabíó á tvennum tónleikum í nóvember. Forsala miða á tónleikana hefst á morgun, föstudaginn […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.