Brynjar Gauti fyrirliði U-21

Brynjar Gauti Guðjónsson, miðvörðurinn sterki úr ÍBV, er fyrirliði íslenska landsliðsins skipað leikmönnum 21 árs og yngri, sem leikur gegn Armenum ytra í dag. Guðmundur Þórarinsson, fyrrum leikmaður ÍBV er einnig í byrjunarliði íslenska liðsins en Gunnar Þorsteinsson, miðjumaðurinn efnilegi úr ÍBV er á bekknum. (meira…)

Vegagerð bregst við vegna óánægju Eyjamanna

Mikil óánægja var meðal Eyjamanna að Herjólfur hafi ekki siglt til Þorlákshafnar á þriðjudag, þegar ófært var í Landeyjahöfn. Engin ferð var farin þann dag og auk þess var ófært með flugi. Elliði Vignisson, bæjarstjóri fór fram á það við Vegagerðina að farið yrði tafarlaust yfir málið. „Að ósk minni hefur Hreinn Haraldsson, Vegamálastjóri nú […]

�?tluðu til Kanada en enduðu í Eyjum

Tveir laumufarþegar, sem ætluðu að komast til Kanada með erlendu skemmtiferðaskipi sem yfirgaf Reykjavíkurhöfn í morgun, komust ekki lengra en til Vestmannaeyja þar sem þeir voru afhentir lögreglu. Frá Eyjum liggur leið skipsins til Færeyja. (meira…)

Alls 31,5 milljónir króna til 28 verkefna

Grímur kokkur var meðal 28 umsækjenda sem hlutu styrki sem Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) auglýstu í apríl og er ætlað að efla atvinnulíf og nýsköpun á Suðurlandi. Um var að ræða peninga úr Vaxtarsamningi Suðurlands, ­Sóknaráætlun Suðurlands og fjármagn úr sameiginlegum sjóðum sveitarfélaganna sem áður var út­hlutað af Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands. (meira…)

Sannfærandi sigur á Aftureldingu

Bryndís Jóhannesdóttir, sóknarmaður í liði ÍBV skoraði þrennu í kvöld þegar ÍBV lagði Aftureldingu að velli á Hásteinsvelli. Lokatölur urðu 5:0 en með sigrinum færist ÍBV nær Breiðabliki, sem tapaði í kvöld fyrir FH. Nú munar aðeins tveimur stigum á liðunum en ÍBV er í þriðja sæti á meðan Breiðablik er í öðru sæti. Stjarnan […]

Engar samgöngur í einn og hálfan sólarhring

Samgöngur við Vestmannaeyjar síðustu daga hafa verið stopular og ­aldrei verri en í gær þegar Herjólf­ur lá bundinn við bryggju allan daginn. Óumdeilt er að Land­eyja­höfn var ófær, öldu­hæð milli þrír og fjórir metrar allan þriðjudaginn og komst hæst í 3,7 metra um kvöldmatarleytið í gær. Góðu fréttirnar eru að öldu- og veðurspá er hagstæð […]

Skjöldur um Surtsey afhjúpaður í dag

Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, afhjúpaði í dag skjöld á Breiðabakka á Heimaey í Vestmannaeyjum til staðfestingar á því að Surtsey er á heimsminjaskrá Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO). Í næsta mánuði eru fimm ár liðin frá því að eyjan var samþykkt inn á listann. (meira…)

Afturelding í heimsókn í dag

Kvennalið ÍBV tekur á móti Aftureldingu í kvöld, miðvikudag klukkan 18:00 á Hásteinsvelli. ÍBV er í þriðja sæti eftir fimm umferðir, með 10 stig á meðan Afturelding er í áttunda sæti með 4 stig. ÍBV þarf nauðsynlega á þremur stigum að halda í kvöld til að halda í við Breiðablik og Stjörnuna, sem eru í […]

Dregið í Evrópukeppninni 24. júní

ÍBV tekur þátt í undankeppni Evrópudeildarinnar þriðja árið í röð en Eyjamenn eru í neðri styrkleikaflokki þegar dregið verður í höfuðstöðvum Evrópska knattspyrnusambandsins í Nyon. Í fyrstu umferð er liðum skipt eftir landsvæðum og því getur ÍBV ekki dregist gegn liðum í austur eða suður Evrópu. Sterkasti hugsanlegi mótherjinn er norska úrvalsdeildarliðið Rosenborg en þar […]

�?jóðvegurinn opnar á ný

Þjóðvegurinn milli lands og Eyja opnar á ný klukkan 11:30 eftir ófærð undanfarinn sólarhring. Ekkert hefur verið hægt að sigla í Landeyjahöfn síðan í gærmorgun en rétt í þessu var að berast tilkynning frá Eimskip um að siglt verði frá Eyjum 11:30 og frá Landeyjahöfn 13:00. (meira…)

Ekkert siglt í dag

Nú er búið að aflýsa öllum fimm ferðum Herjólfs í dag, þriðjudag. Í tilkynningu frá Eimskip kemur fram að ölduhæð við Landeyjahöfn sé 3,6 metrar og ekki er útlit fyrir að ölduhæð lækki fyrr en á miðnætti samkvæmd ölduspá. Spáin sé betri fyrir morgundaginn og verður send út tilkynning klukkan sjö í fyrramálið varðandi fyrstu […]

Blátindi komið fyrir vestan við Hringskershafnargarðinn

Á fundi framkvæmda- og hafnarráðs Vestmannaeyja var tekin ákvörðun um framtíðarstaðsetningu Blátinds VE 21. Báturinn hefur legið undir skemmdum á þurru landi en Sveinn Rúnar Valgeirsson, forstöðumaður greindi frá heimsókn Árna Antonssonar, skipasmiðs á Akureyri til Eyja til að leggja mat á nauðsynlegar viðgerðir á Blátindi og einnig Létti, þjónustubát Vestmannaeyjahafnar. (meira…)

Litboltar eru náttúruvænir

Ég heiti Jón Marvin Pálsson og er einn af þessum svokölluðu „vitleysingum“ sem eru að reyna halda uppi litboltastarfsemi hér í Eyjum. Við viljum endilega byrja á því að þakka viðkomanndi aðilum fyrir frábæra auglýsingu sem sett var inn á samskiptavefinn Facebook fyrir ekki svo löngu. Því öll umfjöllun er jú auðvitað góð umfjöllun, þó […]

Skemmdir og skítur

Er virkilega svo komið fyrir okkur að setja þurfi upp eftirlitsmyndavélar um allan bæ? Það er alltof mikið um að unnin séu skemmdarverk á eigum okkar Vestmannaeyinga, skemmdir sem greiddar eru af okkur sjálfum, og með okkar skattpeningum. Þar sem eftirlitsmyndavélar hafa verið settar upp, svo sem á Skanssvæðinu, hefur tekist að upplýsa hverjir standa […]

Enn ófært í Landeyjahöfn

Enn er ófært í Landeyjahöfn og búið er að fella niður aðra ferð skipsins í dag. Fyrsta ferð var einnig felld niður en ölduhæð á bakkafjörudufli var 3,4 metrar klukkan 11 og hefur hækkað jafnt og þétt í morgun. SKipið átti að fara frá Eyjum 11:30 og frá Landeyjahöfn klukkan 13:00. Athugun fyrir síðdegisferðina er […]

Fyrsta ferð fellur niður

Fyrsta ferð Herjólfs í dag, þriðjudag fellur niður vegna ölduhæðar við Landeyjahöfn. Skipið átti að halda úr höfn klukkan 8:30 frá Vestmannaeyjum og 10:00 frá Landeyjahöfn. Í tilkynningu frá Eimskip segir að ölduspá sé nú að rætast og útlitið fyrir daginn sé ekki gott. Athuga á með næstu ferð skipsins klukkan 11:00 í dag. (meira…)

Nýr vefmiðill – kvótinn.is

Nýr vefmiðill kvótinn.is hefur hafið göngu á netinu. Ritstjóri vefsins er Hjörtur Gíslason einn reyndasti sjávarútvegsblaðamaður landsins. Að sögn Hjartar verður vefmiðillinn með alls kyns fréttir af sjónum og landvinnslunni og fylgist náið með allri þróun, tækni og tækjabúnaðar, er tengjast vinnslu og veiðum. (meira…)

Lögðu hald á fíkniefni og kannabisplöntu

Það var í ýmsu að snúast hjá lögreglu í vikunni sem leið og nokkur mál sem upp komu, m.a. fíkniefnamál, líkamsárás, eignaspjöll ofl. Eitthvað var um pústra og hefur þegar ein líkamsárás verið kærð til lögreglu. Skemmtanahald sjómannadags fór fram með ágætum og engin mál sem upp komu í tengslum við þau. (meira…)

Sjómannafjör á Vigtartorgi

Það var mikil gleði og mikið fjör á laugardegi Sjómannadagshelgarinnar. Eins og í fyrra, fóru hátíðahöld laugardagsins fram á og við Vigtartorgið en þessi staðsetning er komin til að vera. Fjölmargt var í boði, m.a. hefðbundin skemmtiatriði eins og kappróður, koddaslagur, karalokahlaup og bátaferðir. Þá var einnig boðið upp á róðrakeppni í landi og keppni […]

�?akkir til stuðningsmanna

ÍBV vill koma þökkum til þeirra fjölmörgu stuðningsmanna sem hjálpuðu til við að ganga yfir Hásteinsvöll í gær og laga hann til eftir leik ÍBV og Fylkis. Þetta er nauðsynlegur þáttur í því að halda vellinum sem bestum en það mun reynast erfitt meðan vætutíðinn er eins og búið er að vera undanfarið. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.