Fyrsta ferð fellur niður

Fyrsta ferð Herjólfs í dag, þriðjudag fellur niður vegna ölduhæðar við Landeyjahöfn. Skipið átti að halda úr höfn klukkan 8:30 frá Vestmannaeyjum og 10:00 frá Landeyjahöfn. Í tilkynningu frá Eimskip segir að ölduspá sé nú að rætast og útlitið fyrir daginn sé ekki gott. Athuga á með næstu ferð skipsins klukkan 11:00 í dag. (meira…)

Nýr vefmiðill – kvótinn.is

Nýr vefmiðill kvótinn.is hefur hafið göngu á netinu. Ritstjóri vefsins er Hjörtur Gíslason einn reyndasti sjávarútvegsblaðamaður landsins. Að sögn Hjartar verður vefmiðillinn með alls kyns fréttir af sjónum og landvinnslunni og fylgist náið með allri þróun, tækni og tækjabúnaðar, er tengjast vinnslu og veiðum. (meira…)

Lögðu hald á fíkniefni og kannabisplöntu

Það var í ýmsu að snúast hjá lögreglu í vikunni sem leið og nokkur mál sem upp komu, m.a. fíkniefnamál, líkamsárás, eignaspjöll ofl. Eitthvað var um pústra og hefur þegar ein líkamsárás verið kærð til lögreglu. Skemmtanahald sjómannadags fór fram með ágætum og engin mál sem upp komu í tengslum við þau. (meira…)

Sjómannafjör á Vigtartorgi

Það var mikil gleði og mikið fjör á laugardegi Sjómannadagshelgarinnar. Eins og í fyrra, fóru hátíðahöld laugardagsins fram á og við Vigtartorgið en þessi staðsetning er komin til að vera. Fjölmargt var í boði, m.a. hefðbundin skemmtiatriði eins og kappróður, koddaslagur, karalokahlaup og bátaferðir. Þá var einnig boðið upp á róðrakeppni í landi og keppni […]

�?akkir til stuðningsmanna

ÍBV vill koma þökkum til þeirra fjölmörgu stuðningsmanna sem hjálpuðu til við að ganga yfir Hásteinsvöll í gær og laga hann til eftir leik ÍBV og Fylkis. Þetta er nauðsynlegur þáttur í því að halda vellinum sem bestum en það mun reynast erfitt meðan vætutíðinn er eins og búið er að vera undanfarið. (meira…)

Langt ferðalag framundan hjá ÍBV

Karlalið ÍBV mætir BÍ/Bolungarvík í 16 liða úrslitum Borgunarbikarsins en dregið var í hádeginu. Leikurinn fer fram á Torfnesvelli á Ísafirði föstudaginn 21. júní en BÍ/Bolungarvík er sem stendur í þriðja sæti 1. deildar en liðið hefur unnið þrjá leiki og tapað einum. M.a. hefur BÍ/Bolungarvík lagt Selfoss að velli en töpuðu reyndar stórt gegn […]

�?rjú góð stig í hús

ÍBV lagði Fylki að velli 3:1 í kvöld á Hásteinsvelli. Leikurinn var nokkuð kaflaskiptur því Fylkismenn voru mun betri fyrsta stundarfjórðunginn en næstu 45 mínútur leiksins voru það heimamenn sem voru sterkari. Á þeim tíma skoruðu þeir þrjú mörk en Eyjamaðurinn í liði Fylkis, markahrókurinn Tryggvi Guðmundsson minnkaði muninn fyrir gestina. Það var jafnframt 131. […]

Hemmi er skíthræddur

Tryggvi Guðmundsson, leikmaður Fylkis, mætir sínum gömlu félögum í ÍBV í Pepsi-deildinni klukkan 17:00 í dag. Tryggvi var fyrir helgi í leit að fari í Landeyjarhöfn til að komast til Eyja fyrir leikinn í dag en á endanum fékk hann far með fyrrum liðsfélaga sínum Þórarni Inga Valdimarssyni. (meira…)

Gamlir félagar í heimsókn í dag

Síðasti dagskrárliður Sjómannadagsins hefst klukkan 17:00 á Hásteinsvelli þegar ÍBV tekur á móti Fylki í 6. umferð Pepsídeildarinnar. Í liði Fylkis má finna nokkur kunnugleg andlis og fremstur í flokki fer þar markaskorarinn mikli Tryggvi Guðmundsson. Auk hans er Selfyssingurinn Viðar Örn Kjartansson, sem lék eitt sinn með ÍBV, í Fylkisliðinu en Finnur Ólafsson, annar […]

Ini Dia Serba-serbi Pragmatic Play Slot Online!

Ini Dia Serba-serbi Pragmatic Play Slot Online! Berbicara soal slot online, tidak lengkap jika Anda tidak mencoba koleksi paling popular dan menarik, yaitu pragmatic. Tempat ini sangat popular karena game-nya yang menantang, seru, dan mudah untuk dimainkan oleh berbagai kalangan, terutama oleh member baru. Tak kalah menarik, berbagai hadiah menarik turut mewarnai arena tersebut. Sebelum […]

�?vintýraleg ferð vestur

Karlalið ÍBV mætti Víkingum á Ólafsvík í 5. umferð Pepsídeildar­innar um síðustu helgi. Uppskera ferðarinnar var reyndar ekki nema eitt stig en líklega hafa fleiri reiknað með þremur stigum í leikslok hjá ÍBV. En þrátt fyrir það var ferðin ævintýraleg hjá leikmönnum ÍBV. Eftir leikinn var komið við á bænum Syðri-Knarrartungu en miðvörðurinn sterki, ­Brynjar […]

Eyjapeyinn býður upp á Hlöllabáta í miðbænum

Kári Vigfússon, matreiðslumeist­ari og eigandi Krárinnar við Bessastíg, er að færa út kvíarnar um þessar mundir. Hann hefur keypt matsölubíl þar sem hann mun bjóða upp á hina klassísku Hlöllabáta. „Þetta er Eyja­peyinn, nefndur eftir Gústa skólabróður. „Ég er Eyjapeyi, kominn til að meika það,“ eins og segir í laginu,“ sagði Kári í samtali við […]

�?riðja ferð Herjólf fellur niður

Þriðja ferð Herjólfs í dag, föstudag hefur verið felld niður. Fara átti frá Vestmannaeyjum 14:30 og frá Landeyjahöfn klukkan 16:00. Ölduhæð við Landeyjahöfn klukkan 13:00 var 3,1 metri en athuga á klukkan 16:00 með fjórðu ferð dagsins. (meira…)

Bærinn framselur kauptilboð í Portland VE

Í framhaldi af tilkynningu um að Vestmannaeyjabær hafi nýtt sér forkaupsrétt á dragnótaskipinu Portland VE, óskuðu tvö útgerðarfyrirtæki í bænum eftir viðræðum um að Vestmannaeyjabær myndi framselja kauptilboðið til sín. Það hefur nú gengið eftir en útgerðarfyrirtækin tvö, Dala-Rafn og Glófaxi eru bæði rótgróin fjölskyldufyrirtæki í Vestmannaeyjum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá bæjaryfirvöldum. (meira…)

Einstakt skip með einstaka sögu

Allt stefnir í að aflaskipið Sigurður VE verði selt í brotajárn til Danmerkur en samkvæmt heimildum Eyjafrétta er undirbúningur hafinn fyrir siglingu skipsins út. Í vikublaði Eyjafrétta er farið aðeins yfir glæsilega sögu skipsins en þar kemur fram að Sigurður VE var smíðaður í Seebeck Werft skipasmíða­stöðinni í Bremerhaven í Þýskalandi árið 1960 og var […]

Vestmannaeyjabær hyggst nýta forkaupsrétt

Nú fyrir skömmu lauk aukafundi bæjarráðs Vestmannaeyja þar sem samþykkt var að neyta þess forkaupsréttar sem sveitarfélögum er áskilinn í 12. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða. Þar með gengur Vestmannaeyjabær inn í fyrirhugaða sölu á dragnótaskipinu Portland VE97 ásamt með öllu sem því fylgir og fylgja ber að engu undanskildu þ.m.t. tilheyrandi aflahlutdeild skipsins […]

�?nnur ferð Herjólfs fellur niður í dag

Önnur ferð Herjólfs fellur niður í dag. Ölduhæð í Landeyjahöfn var 2,5 metrar klukkan tíu í morgun og vindur 20 til 25 metrar á sekúndu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskip. Athuga á með þriðju ferð skipsins klukkan 13:30 en áætlað er að sigla frá Eyjum 14:30 og frá Landeyjahöfn 16:00. (meira…)

Hjálpsamur markvörður

Englendingurinn David James, markvörður ÍBV í fótbolta, þykir hafa smellpassað inn í samfélagið í Vestmannaeyjum eftir að hann fluttist þangað í vor. Til marks um góðmennsku hans og gott lundarfar var hann staddur í versluninni Krónunni á dögunum. Eldri kona stóð við afgreiðslukassann og dundaði sér ein við að setja matvörur ofan í poka. Henni […]

Vestmannaeyingar afburða skemmtilegt fólk

Þrjár myndlistarkonur, þær Guðmunda Kristinsdóttir, Lilja Braga­dóttir og Rannveig Tryggv­a­dóttir, opna síðdegis í dag, fimmtudag mál­verkasýningu í sal Akóges. Opn­un sýningarinnar er klukkan 18:00 en á sýningunni verður að finna verk eftir þær þrjár og verð­ur sýningin opin alla helg­ina. (meira…)

Eyjamenn áfram í bikarnum

Aaron Spear, sem var í fyrsta sinn í byrjunarliði ÍBV í sumar kom ÍBV yfir á 23. mínútu og staðan í hálfleik var 0:1 ÍBV í vil. Þróttur jafnaði hins vegar metin í upphafi síðari hálfleiks og var staðan jöfn þar til um tólf mínútur voru eftir en þá settu Eyjamenn í gír og tryggðu […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.