Eyjapeyi fljótastur úr fötunum

Eyjapeyinn Nökkvi Dan Elliðason, sonur Elliða Vignissonar bæjarstjóra hefur unnið óformlegt Íslandsmót í því að fara úr fötunum á sem skemmstum tíma. Þetta kemur fram á vefnum Menn.is. Faðir Nökkva er hóflega sáttur við þetta framtak sonarins. „Ég hef reynt að veita syni mínum stuðning í öllu sem hann hefur metnað fyrir en…. Elsku Nökkvi […]
Frönsk skúta kom við í Eyjum

Franska skútan Étoile, eða Stjarnan kom við í Eyjum í vikunni. Skútan heimsækir í ferð sinni til Íslands þrjá staði þar sem reistir hafa verið franskir spítalar, Vestmannaeyjar, Reykjavík og Fáskrúðsfjörð. Spítalinn sem reistur var í Vestmannaeyjum er í dag íbúðarhús og stendur við Kirkjuveg 20 og gengur daglega undir nafninu Gamli spítalinn eða Gamló, […]
Eyjakonur duttu í lukkupottinn

Kvennalið ÍBV mætir Hetti frá Egilsstöðum í 16 liða úrslitum Borgunarbikarsins en dregið var í dag. Höttur leikur í B-riðli 1. deildar og er búið að spila einn leik, gegn nágrönnum sínum í Fjarðarbyggð og unnu þann leik 0:3. Leikur ÍBV og Hattar fer fram í Eyjum, sem er klárlega kostur, þótt ferðakostnaðurinn sé mikill […]
Tveir Eyjamenn í landsliðshópnum

Tveir Eyjamenn eru í landsliðshópi Íslands í knattspyrnu sem mætir Slóveníu á Laugardalsvelli 7. júní næstkomandi. Þetta eru þeir Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Þórarinn Ingi Valdimarsson. Gunnar Heiðar, sem á 23 leiki að baki með landsliðinu og hefur byrjað mjög vel í sænsku úrvalsdeildinni. Þórarinn Ingi á aðeins einn leik að baki með landsliðinu en […]
Eyjafréttum seinkar örlítið í dag

Vikublaðinu Eyjafréttum seinkar örlítið í dag. Vegna Sjómannadagsins á sunnudaginn, er umfang blaðsins mun meira en venjulega en blaðið í þessari viku er heilar 32 síður. Eins og gefur að skilja eru Eyjafréttir stútfullar af skemmtilegu efni. M.a. er fjallað um aflaskipið Sigurð VE sem hefur væntanlega siglt sinn síðasta fiskveiðitúr, rætt er við unga […]
Nei, það var Shaneka sem skoraði!

Enn á ný þarf að leiðrétta markaskorara úr leik ÍBV og Selfoss. Upphaflega var sagt frá því að Shaneka Gordon hefði skorað sigurmarkið en síðar kom í ljós að dómari leiksins hafði skráð markið á hina ungu og efnilegu Guðrúnu Báru Magnúsdóttur. Hið rétta er hins vegar að það var Shaneka sem skoraði sigurmarkið. (meira…)
Guðrún Bára skoraði sigurmarkið

Í gær lagði ÍBV Selfoss að velli í Pepsídeildinni 1:2. Elísa Viðarsdóttir kom ÍBV yfir í fyrri hálfleik en Selfoss jafnaði metin í upphafi þess síðari. Samkvæmt upplýsingum Eyjafrétta eftir leik skoraði Shaneka Gordon sigurmarkið en þær upplýsingar reyndust ekki réttar, því samkvæmt leikskýrslu dómara, skoraði hin unga og efnilega Guðrún Bára Magnúsdóttir sigurmarkið. (meira…)
Eyjamenn mæta �?rótti í bikarnum í dag

Eyjamenn sækja Þrótt heim í 32ja liða úrslitum Borgunarbikarsins en leikurinn fer fram á Valbjarnarvelli í Laugardalnum. Þróttarar hafa ekki farið vel af stað í sumar, hafa tapað öllum þremur leikjum sínum í 1. deildinni og eru neðstir. Þróttarar hafa reyndar tapað öllum leikjunum með minnsta mun, 2:1 og eru með markatöluna 3:6 eftir þrjár […]
Tveir úr ÍBV í U-21

Tveir leikmenn ÍBV eru í leikmannahópi karlaliði Íslands í knattspyrnu, skipað leikmönnum 21 árs og yngri. Brynjar Gauti Guðjónsson er á sínum stað í hópnum enda verið fastamaður í leikmannahópi liðsins undanfarið. Gunnar Þorsteinsson kemur hins vegar nýr inn í hópinn en Gunnar hefur leikið afar vel með ÍBV í byrjun Íslandsmótsins og vakið verðskuldaða […]
Erlingur til Austurríkis

Erlingur Richardsson mun ekki stýra nýliðum ÍBV í N1-deildinni í handbolta næsta vetur því hann hefur samið við austurríska liðið SG Insigni Westwien og gert við það tveggja ára samning. Þetta staðfestir Erlingur við vefsíðuna fimmeinn.is en Erlingur stýrði ÍBV til sigurs í 1. deildinni í vetur og verða Eyjamenn því á meðal þeirra bestu […]
Ráðuneyti staðfesti reglur Siglingastofnunar

Innanríkisráðuneytið hefur staðfesti ákvörðun Siglingastofnunar um hertar reglur vegna svokallaðra Rib-báta. Nýjar reglur kveða á um að ekki er heimilt að sigla með farþega fyrir 1. júní og eftir 30. september, nema þeir séu klæddir í einangrandi flotbúninga. Auk þess er fjöldi farþega bundinn við 12 en bátarnir geta borið fleiri farþega. Í Vestmannaeyjum notast […]
Nágrannaslagur á Selfossi

Í dag klukkan 18:00 sækir ÍBV Selfoss heim í Pepsídeild kvenna. Bæði lið eru með sjö stig eftir fjórar umferðir og eðli málsins samkvæmt hafa bæði lið unnið tvo leiki, gert eitt jafntefli og tapað einum. Selfoss lagði Þrótt og FH í fyrstu tveimur leikjum sínum, sem báðir fóru fram á útivelli, gerði svo jafntefli […]
Tólf sækja um skólastjórastöðu GRV

Alls sóttu tólf um stöðu skólastjóra við Grunnskóla Vestmannaeyja. Fanney Ásgeirsdóttir, sem gengt hefur skólastjórastöðunni síðan 2006, lætur af störfum í sumar og tekur við sem skólastjóri í Hveragerði. Jón Pétursson, framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs Vestmannaeyjabæjar segir að nú sé verið að vinna úr umsóknunum en stefnt sé að því að niðurstaða liggi fyrir um […]
KFS lagði Álftanes

KFS lék sinn fyrsta heimaleik í sumar þegar liðið tók á móti Álftanesi á Týsvellinum. Liðin leika í A-riðli 4. deildar, sem er ný deild í Íslandsmótinu eftir breytingu sem gerð var á mótinu eftir síðasta tímabil. KFS tapaði fyrsta leik sumarsins, á útivelli gegn KFG 5:1 en Eyjamenn náðu að innbyrða sigur í gær […]
Lék sér að því að keyra glæfralega að skólakrökkum í gönguferð

Síðasta vika hjá lögreglunni í Vestmanneyjum var með rólegra móti. Engin alvarleg mál komu upp. Þó þurfti að hafa afskipti af fólki vegna ölvunarástands án þess að kært væri í þeim málum. Ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar um sl. helgi þegar aðili var sleginn þar sem hann var á skemmtistað í bænum. Ekki liggur […]
Nökkvi vann Meistaramót Skákskólans 2013

Eyjamaðurinn Nökkvi Sverrisson gerði sér lítið fyrir og vann Meistaramót Skákskólans 2013. Mótið var mjög sterkt en þátttakendur í mótinu voru bestu skákmenn landsins 20 ára og yngri. Nökkvi hlaut sex vinninga af sjö mögulegum og tapaði ekki skák, en samþykkti tvívegis jafntefli. (meira…)
Allir leikmenn sem gerðu fyrsta akademíusamninginn komnir í landslið

Í upphafi haustannar 2012 gerði handboltaráð tilraun með svokallaðan akademíusamning. Samningurinn virkar þannig að ÍBV greiðir allt skólanám leik – og námsmanna standi þeir reglur akademíunar. Þarna er um töluverða fjármuni að ræða sem er verið að leggja beint í ungviðinn okkar. Árangurinn lætur ekki á sér standa og greinilegt að rétt skref hefur verið […]
Fyrsta ferð Herjólfs féll niður í dag mánudag

Fyrsta ferð Herjólfs féll niður vegna ölduhæðar, 2,8m. Staðfest hefur verin brottför næstu ferðar dagsins, frá Vestmannaeyjum 11:30 og frá Landeyjahöfn 13:00. Farþegar eru vinsamlega beðnir að fylgjast með fréttum á herjolfur.is, facebook síðu herjólfs og síðu 415 í Textavarpi RUV. (meira…)
Markalaust jafntefli í tíðindalitlum leik

ÍBV og Víkingur skildu jöfn í kvöld á Ólafsvíkurvelli 0:0 en Víkingar náðu þar með í sitt fyrsta stig í Pepsídeildinni. Eyjamenn hafa hins vegar aðeins innbyrt tvö stig af níu mögulegum í síðustu þremur leikjum sínum. David James lék ekki í marki ÍBV í kvöld þar sem hann var staddur í Englandi vegna þjálfaranáms. […]
Eyjamenn fara vestur í dag

Í dag sækja Eyjamenn Víking Ólafsvík heim vestur á Snæfellsnesið. Gengi liðanna í upphafi móts hefur verið ólíkt því nýliðar Víkings eru á botni deildarinnar með ekkert stig á meðan ÍBV er í fjórða sæti með sjö stig. Víkingar eru sýnd veiði en alls ekki gefin en þeir spiluðu vel gegn Þór á Akureyri í […]