Afmælisdagskrá í júlí

Í júlí eru 100 ár frá því Alþingi samþykkti lög um Vestmannaeyjahöfn og verður þess minnst í sumar. Þetta kom fram á fundi framkvæmda- og hafnarráðs á mánudaginn. Það var í júlí 1913 að Alþingi samþykkti sérstök lög um Vestmannaeyjahöfn og hlutu þau staðfestingu Danakonungs í september sama ár. Þetta var rætt á fundinum á […]
Leik ÍBV og Fylkis flýtt

Leik ÍBV og Fylkis, sem átti að fara fram sunnudaginn 9. júní, hefur verið flýtt um viku. Er það gert vegna landsliðsverkefna Úgandamannsins Tonny Mawejje. Leikurinn fer fram sunnudaginn 2. júní klukkan 17:00 og ætti aðsókn ekki að vera minni en á fyrstu þremur heimaleikjum ÍBV þar sem Sjómannadagshelgin er sömu helgi og flotinn í […]
Karlalið ÍBV sjötta vinsælasta liðið

Karlalið íBV er sjötta vinsælasta lið landsins samkvæmt könnun MMR um stuðning við knattspyrnulið í efstu deildum karla og kvenna. Athygli vekur að tvö kvennalið eru vinsælustu liðin, Þór/KA í raun langvinsælasta en 19% aðspurðra sögðust halda með Akureyrarliðinu. 11,3% sögðust halda með kvennaliði Breiðabliks. (meira…)
Simmonds spenntur fyrir sumrinu

Enski miðjumaðurinn Bradley Simmonds er tekinn tali á vef Sky Sports í Englandi. Þar er hann m.a. spurður út í komu sína til Íslands en hann fékk sitt fótboltauppeldi hjá QPR. „Ég naut þess að þroskast sem leikmaður hjá QPR en ég sé ekki eftir því að fara þaðan. Fótboltinn í Englandi er kannski aðeins […]
�?ruggt gegn �?rótti

Eyjastúlkur tóku á móti Þrótti í dag. Leikurinn var fjörugur af hálfu ÍBV og mikið um fín færi. ÍBV fór með sigur af hólmi í dag 4-0, sigurinn hefði getað orðið stærri en sláin bjargaði Þrótturum þrisvar í dag. Heimir Hallgrímsson stýrði liðinu í fjarveru Jóns Óla sem var í banni eftir að hafa fengið […]
Ítrekaðar óskir um svör við áleitnum spurningum

Í síðustu Eyjafréttum ritaði Andrés Sigurðsson grein þar sem hann bregst við grein sem ég skrifaði í Eyjafréttir í vikunni þar á undan. Því miður kýs Andrés enn að halda sig, að hluta til, við umræðu utan málefnisins, talar um drambsemi mína, að hann sé í ritdeilu og það sé ekki skynsamlegt að deila við […]
Dæmdar bætur vegna Pompei norðursins

Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt Vestmannaeyjabæ til að greiða Jóhannesi Þór Sigurðssyni 3,1 milljón kr. og Blámanni ehf., 184.000 kr. í skaðabætur vegna tjóns sem þeir urðu fyrir vegna uppgraftar mannvirkja, sem kallast Pompei norðursins, sem lentu undir gosefnum við eldgosið í Heimaey 1973. (meira…)
Skóladagur Barnaskólans í dag

Skóladagur Barnaskólans verður í dag frá kl. 17:00-19:30. Fjölbreytt dagskrá verður í boði sem nemendur og gestir geta tekið þátt í. Nemendur 9. bekkjar verða með kaffihlaðborð og rennur andvirðið í ferðasjóð þeirra. Skemmtidagskrá verður bæði í salnum og úti í porti. Þrautir og leikir verða víðs vegar um skólann og verkefni nemenda frá starfi […]
Hægt að fá samband við afgreiðslu Herjólfs á netinu

Svarbox Herjólfs er samskiptahugbúnaður sem gerir viðskiptavinum Herjólfs kleift að nálgast upplýsingar um þjónustu og netbókanir. Svarboxið virkar þannig að viðskiptavinir fara inn á heimasíðu Herjólfs, www.herjolfur.is og smella þar á flipa sem heitir Svarbox Herjólfs. Þannig kemst viðkomandi í samband við þjónustufulltrúa Herjólfs í gegnum netið og getur fengið upplýsingar, sem annars þyrfti að […]
Hamarsvegur, ÍBV og hótel

Nú er nýtt keppnistímabil hafið í knattspyrnu. Leikur var spilaður á Hásteinsvelli þann 12. maí 2013 með tilheyrandi lokun Hamarsvegar u.þ.b. hálftíma fyrir leik og á meðan á leik stendur. Þetta hefur viðgengist um áraraðir þrátt fyrir að engin lagastoð sé fyrir slíkri lokun. (meira…)
Björgvin orðaður við Strindheim Handball

Eyjamaðurinn Björgvin Þór Rúnarsson, sem tók við þjálfun norska félagsins Öster/Volda fyrir síðasta vetur, er orðaður við norska B-deildarliðið Strindheim handball. Strindheim er eitt af stærri félögum norska boltans og teflir fram liði bæði í B- og C-deild og ætlar sér ad byggja upp sterkt úrvalsdeildarlið á næstu árum. Björgvini er ætlað að þjálfa B-deildarliðið […]
Stelpurnar taka á móti �?rótti í dag

Kvennalið ÍBV tekur á móti Þrótti á Hásteinsvelli í dag klukkan 18:00. ÍBV hefur farið ágætlega af stað í Íslandsmótinu en þegar þremur leikjum er lokið, hefur ÍBV unnið einn leik, gert eitt jafntefli og tapað einum. Það er ágætt í ljósi þess að tapleikurinn var gegn Stjörnunni á útivelli og jafnteflið gegn Val á […]
350 búnir að kjósa

Klukkan 16:00 höfðu 350 manns tekið þátt í íbúakönnun vegna hótels í Hásteinsgryfjunni en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Vestmannaeyjabæ. Um er að ræða samanlagða tölu þeirra sem kusu í Safnahúsinu og í rafrænni kosningu. Síðari kjördagur er í dag en hægt er að kjósa í Safnahúsinu til klukkan 16:00 og verður opið í […]
Guðmundur og �?órarinn skoruðu báðir

Þeir Þórarinn Ingi Valdimarsson og Guðmundur Þórarinsson skoruðu báðir í 3:3 jafntefli Sarpsborg 08 gegn Valeringa í dag í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Þórarinn, sem er á láni frá ÍBV, jafnaði metin á 38. mínútu 1:1 og Guðmundur gerði það sama á 60. mínútu, 2:2. Sarpsborg lenti í þriðja sinn undir í leiknum en náði […]
Hvetjum Eyjamenn til þátttöku í íbúakönnun

Í gær stóð H-Eyjar ehf. fyrir kynningarfundi um Hótel Heimaey á veitingastaðnum Kaffi Kró í Vestmannaeyjum. Fundurinn var mjög góður og upplýsandi, bæði fyrir okkur sem stöndum að hótelbyggingunni, og eins fyrir þá sem mættu á fundinn. (meira…)
�??Á þessu ferðalagi fylgjumst við að…�??

Á lítilli Eyju þar sem íbúar hugsa stórt eru skipulags- og umhverfismál vandasamur málaflokkur. Vitund um mikilvægi þess að vernda náttúru og umhverfi fer sífellt vaxandi hér í Vestmannaeyjum eins og víðar. Á sama tíma fer eftirspurn eftir aðgengi að byggingalóðum fyrir ferðaþjónustu vaxandi. Það kann að vera vandasamt að láta þetta tvennt fara saman. […]
Eyþór Ingi á leið til Eyja

Eyþór Ingi Gunnlaugsson stóð sig frábærlega vel í Malmö í Svíþjóð og „nelgdi þetta“ eins og sagt var í blöðunum. Nú er Eurovision afstaðin og við taka önnur og mikilvægari verkefni, eins og SkonRokkstónleikar og Sjómannadagsball í Eyjum. (meira…)
Byrja að sekta fyrir nagladekk í vikunni

Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu og engin alvarleg mál sem upp komu. Eitthvað var þó um pústra í kringum öldurhús bæjarins um helgina en engar kærur liggja fyrir eins og er. Eitt umferðaróhapp var tilkynnt lögreglu í liðinni viku en um var að ræða árekstur tveggja bifreiða á gatnamótum Ásavegar og Helgafellsbrautar. Engin […]
Magnús og Ester framlengja

Handboltaparið Magnús Stefánsson og Ester Óskarsdóttir eru búin að framlengja samningum sínum hjá ÍBV til 1. júní 2014. Greint er frá þessu á heimasíðu ÍBV. Þau spiluðu bæði stór hlutverk með liðum ÍBV í vetur en karlaliðið varð í efsta sæti í 1. deild og leikur í úrvalsdeild á næsta ári en Magnús var valinn […]
Nei við hóteli í Hásteinsgryfju

Dagana 21. og 22. maí standa bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum fyrir skoðanakönnun á meðal bæjarbúa, um hvort veita eigi byggingarleyfi fyrir hóteli í Hásteingryfju hér í Eyjum. Það er mjög mikilvægt að það verði góð þátttaka hjá öllum sem hafa atkvæðarétt í könnuninni, sem eru einstaklingar með lögheimili í Vestmannaeyjum, fæddir árið 1995 og fyrr. (meira…)